Sjálfsbjörg - 01.07.1978, Síða 19

Sjálfsbjörg - 01.07.1978, Síða 19
vegna í líkamanum, vegna þess hversu aflbrautirnar til beggja hliða líkamans liggja nálægt hvor annarri í heilastofni og mænu. Vert er auðvitað að geta þess að sé meinsemd neðar en svarar til hálshluta mænunnar koma einkenni auðvitað ein- göngu fram í ganglimunum. Það er sömu sjúkdómum til að dreifa er orsaka meinsemdir í heilastofni og mænu og getið er í sambandi við heilann sjálfan. Þó er það svo, að æxli og blóðrás- artruflanir eru hvorutveggja sjaldgæf í mænunni. Lang algengast er að mænan skemmist vegna utanaðkomandi þrýstings og vert er að geta þess, að mænan er sér- staklega viðkvæmt líffæri og má aldrei leyfa þrýsting á hana nema örfáar klukku- stundir eigi að vera nokkur minnsta von um varanlegan bata. Það á raunar við um meinsemdir í taugavef, að taugavefurinn er háþróaðasti og sérhæfðasti vefur lík- amans og því er það svo, er hann skemm- ist, að ekki kemur nýr taugavefur í staðinn heldur aðeins bandvefur. Það köllum við gjaman ör. Áður en ég svo skil við efri hluta afl- kerfisins er rétt að láta það koma fram, að sé meinsemd þar beggja vegna, hefur það áhrif á eðlilega stjóm á þvaglátum og hægðum. Sjúklingar vita hvenær þeim er mál, en þeir fá lítið svigrúm til að komast á réttan stað áður en blaðra og endaþarm- ur hafa tæmt sig án þess að þeir fái við ráðið. Þetta er erfitt viðureignar þótt stundum megi hafa á þetta dálítil áhrif með Iyfjum. Oftar verður þó að gripa tii erfiðrar þjálfunar eða gripa til annarra ráða eins og þvagleggs og poka við enda- þarm. Meinsemdir i neðri hluta aflkerfis. Ef meinsemd er í neðri hluta aflkerfis- ins er útbreiðsla einkenna oft nokkuð óregluleg eftir því hvaða taugar, tauga- rætur eða vöðvar eru sjúkir. Það er hins vegar sameiginlegt meinsemdum í neðri hluta aflkerfisins, að máttleysi kemur auð- vitað fram og hinir máttlausu limir eru slappir, þeir xýma og sinaviðbrögð eru dauf eða hverfa með öllu. Orsakir em þekktar fyrir sumum þessara sjúkdóma og má þá lækna suma þeirra og náist til þeirra snemma, þarf ekki að verða mikill skaði i taugavef og þar með ekki umtals- verð bæklun. Þá eru orsakir þekktar fyrir öðru, en því miður engin lækning ennþá til og loks eru svo allt of margir sjúkdómar, þar sem orsökin er ókunn og því ekki upp á neina afgerandi lækningu að bjóða. Af sjúkdómum í neðri hluta aflkerfisins leiðir yfirleitt mikla bæklun, þótt oft geti hún sem betur fer verið mjög staðbundin. Mátt- leysið verður að vonum mjög mikið, m. a. vegna þess hve hratt vöðvarnir vilja rýma. Hér gagnar því æfingameðferð oft ekki svo mjög og grípa verður fljótt til útbún- aðar til þess að vega upp á móti máttleys- inu og hinum mikla slappleika sem í lim- unum er og séu einkenni sjúkdómsins út- breidd, verður raunar fyrr en siðar að grípa til hjólastóls. Sem dæmi um meinsemd af þessu tagi skal nefnd lömunarveiki, en þar vei’ða skemmdir í framhornum mænunnar. Sem betur fer er þessi meinsemd venju- lega tiltölulega staðbundin við einhvem hluta framhoi’nanna og kemur því lömun- in fram t. d. í öði’um ganglim eða báðum eða um handlegg. Það verður fljótt mikil rýrnun og mikið máttleysi. Þessi sjúkdóm- ur hefur sinn gang og líkaminn vinnur á honum að lokum svo að hann fer ekki frekar vaxandi eftir að mótefnamyndun líkamans hefur komist á ákveðið stig. Hins vegar vitum við að besta vörnin við þess- um sjúkdómi í dag er bólusetning. Annað dæmi um sjúkdóma í neðri hluta aflkerfisins eru bólgur í svokölluðum út- SJÁLFSBJÖRG 17

x

Sjálfsbjörg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.