Sjálfsbjörg - 01.07.1978, Page 21

Sjálfsbjörg - 01.07.1978, Page 21
Því aðeins er hægt að ráða bót á þessu svo afgerandi sé, að til grundvallar ein- kennum liggi læknanlegir sjúkdómar eða starfsemi litla heilans hafi truflast, t. d. vegna lyfja, sem gefin hafa verið í lækn- ingaskyni eins og t. d. á við um sum lyf gegn flogaveiki. Miklu oftar er það þó svo, að enda þótt hægt sé að nema meinsemd- ina í burtu eða með öðrum hætti að ráða bót á undirliggjandi sjúkdómi, þá hverfa ekki einkennin, hafi þau fengið að standa nokkurn tíma. Þá er það æfingameðferðin ein er að gagni má verða, en hún er oft mjög erfið í þessum tilvikum og styrktar- og öryggisbúnaður er að öllu jöfnu nauð- synlegur. Meinsemdir í djúpkjörnum heilans. Enn taka svo þátt í mótun eðlilegrar hreyfingar sérstakir kjarnar, sem liggja djúpt í heilanum og senda boð sín út um aflkerfið og hafa á það áhrif. Þessir kjarn- ar samræma hreyfingar og viðhalda eðli- legu viðnámi í vöðvunum og talið er að þeir gefi frá sér tvenns konar efni og að ekki sé að vænta neinna sjúkdóma er rekja megi til truflaðrar starfsemi þess- ara kjarna svo lengi sem eðlilegt og heil- brigt jafnvægi er milli þessara tveggja efna. Raskist það hins vegar koma fram margvislegar sjúkdómsmyndir, sem lýsa sér fyrst og fremst með margvíslegum, ósjálfráðum hreyfingum, stirðleika og oft mjög ankannalegri stöðu á bol og líkama, auk þess sem öll, bæði andleg og líkamleg starfsemi verður óeðlilega hæg. Best þekkti sjúkdómurinn, sem stafar af truflaðri starfsemi þessara djúpkjama heilans er svonefnd Parkinson-veiki. Á henni höfum við öðlast nokkurn skilning. I þessum sjúkdómi sýnist vanta annað þeirra efna sem áður er um getið og sé fólki með Parkinson-veiki gefið þetta efni má vænta mikils bata og jafnframt að sjúkdómurinn gangi afar hægt fyrir sig og jafnvel versni alls ekki svo árum eða áratugum skiptir. Parkinson-veikin er ann- ars mikil bæklun með stirðleika, sem gerir alla hreyfingu hæga og þar með göngu- lagið stíft og í stuttum skrefum, handa- sveifiur litlar og svipbrigði fátækleg auk þess sem fylgir vel þekktur skjálfti. — 1 hinni venjulegu Parkinson-veiki eru sjúk- lingar í raun hins vegar alveg andlega heilbrigðir, en hugsunin eða tjáning henn- ar er hins vegar oft óeðlilega hæg eins og allar aðrar athafnir þessara sjúklinga. Æfingameðferð er öllum sjúklingum með Parkinson-veiki mjög mikilsverð, en lyfjameðferðin hefur þó valdið mestum straumhvörfum í allri meðferð á Parkin- son-veiki, þannig að þeir sjúklingar, sem af þessari veiki líða, þurfa nú ekki að kvíða jafn miklu og áður var og sem bet- ur fer eru nú margir sjúklingar með Park- inson-veiki hér á landi, sem bera engin merki veikinnar utan á sér og eiga ekki af hennar völdum við neina umtalsverða bæklun að stríða. Allir aðrir sjúkdómar, sem stafa af trufl- aðri starfsemi djúpkjarna heilans, eru til- tölulega fágætir og lýsa sér oftast með mjög miklum ósjálfráðum hreyfingum eða ankannalegri stöðu á bol og útlimum. Slíka sjúklinga sjáum við hér annað slagið og geta þeir vel að öllu öðru leyti verið fullkomlega heilbrigðir. Þessar ósjálfráðu hreyfingar há sjúklingum verulega við allar athafnir. Oft er þetta meðfætt ástand sem í raun fer ekkert versnandi, en stund- um afleiðing af heilaslysum eða heila- bólgu og stöku sinnum til komið vegna lyfja, en hverfur þó venjulegast þegar lyfjagjöf er hætt. Sumar þessara ósjálf- ráðu hreyfinga má lagfæra með skurðað- gerð í heila, en slíkar aðgerðir eru að vonum ekki hættulausar og bati ekki tryggður, hvorki í bráð eða lengd og á SJÁLFSBJÖRG 19

x

Sjálfsbjörg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.