Sjálfsbjörg - 01.07.1978, Page 22

Sjálfsbjörg - 01.07.1978, Page 22
þetta raunar einnig við um Parkinson- veikina þegar skjálfti er mjög áþerandi einkenni. Meinsemdir í skynkerfi. Enn er svo þess að geta að til þess að hreyfing sé eðlileg þarf öll skynjun að vera í lagi. Ég mun ekki fjalla hér um truflaðar hreyfingar sem leiðir af blindu, og í raun- inni þarf hreyfing ekki að verða um of óeðlileg, þótt við finnum ekki eðlilega snertingu eða sársauka. Hins vegar truflar það mjög allar hreyfingar ef stöðuskynið bregst. Stöðuskynið gefur okkur til kynna hvar limir eru og hver afstaða þeirra er hvers til annars og gagnvart bol og höfði. Bregðist þessi skynjun getum við ekki notað hendur nema horfa ávallt á þær og jafnvel það dugar ekki til svo handahreyf- ingar og notkun handa verði eðlileg. Með sama hætti verður göngulag mjög óöruggt, því við vitum ekki nákvæmlega hvenær fóturinn hittir það sem á er gengið, vitum í rauninni ekki hvar fóturinn er nákvæm- lega nema hafa alltaf augun á honum. Því vill göngulagið verða breiðspora og sjúkl- ingarnir reika og hætt er við falli. Það þarf tæplega að taka fram, að oft halda utanað- komandi að hér sé drukkið fólk á ferð. f einstökum tilfellum liggja hér að baki sjúkdómar sem hægt er að laga og upp- götvist þeir í tæka tíð, geta öll einkenni horfið. Finnist hins vegar ekki orsökin eða þá að einkenni hafa staðið það lengi að meinsemd er komin í taugavefinn, vilja einkennin að vonum sitja eftir, þótt takist að ráða bót á undirliggjandi sjúkdómi. Þá verður aðeins hægt að koma við æfingum sem oft eru erfiðar og verður fljótt að gripa til hjálpartækja. Lokaorð. Ég mun ekki hafa þetta lengra. Hér er ekki um neinn tæmandi fróðleik að ræða enda ekki til þess ætlast. Ég hef ekki nefnt marga sjúkdóma sér- staklega, enda gerir það út af fyrir sig ekkert til, en þó er það svo í því sambandi að upp í huga mér kemur sérstakur bækl- unarsjúkdómur sem kallaður er heila- og mænusigg (multiple sclerosis) og því kem- ur hann í huga mér, að ég hef í þessu greinarkorni fjallað um bæklanir eftir því í hvaða hluta taugakerfisins meinsemdin væri og jafnframt sem væri hún ávallt á einum stað. Hitt er auðvitað jafn oft, að fleiri en einn hluti taugakerfisins líður vegna meinsemdar og tekur þá bæklunin á sig fjölbreyttari mynd, þ. e. a. s. ekki aðeins máttleysi, hvort heldur er stirt eða slappt, heldur einnig stjórnleysi eða skjálfta svo annað sé nefnt. Heila- og mænusigg er gott dæmi um þetta. Sjúkdómur þessi kemur i köstum. Meinsemd myndast á einum stað og skap- ar þá ákveðna bæklun. Hún getur því næst komið á annan stað í taugakerfinu og skap- að nýja mynd bæklunar. Þannig getur þetta gengið áfram og að lokum situr sjúkl- ingur eftir með bæklun, þar sem einkenni má rekja til nánast allra hluta taugakerf- isins. Sem betur fer eru málin ekki alveg svona einföld í sjúkdómum heila- og mænu- siggs. Stundum koma köstin ekki hvert eftir annað og stundum skilur hver mein- semd eftir sig lítil merki eða engin, svo heildarbæklun sem eftir stendur verður smá og sem betur fer stundum ekki um- talsverð. Allur er þessi sjúkdómur svo sér- stakur, að hann verðskuldar sérstaka um- ræðu og mun ég því fjalla um hann einan sér í annarri grein. Tilgangur með þessu greinarkorni var því kannski fyrst og fremst sá að vekja athygli á þvi, að öll bæklun, að undanskil- inni slæmri liðagigt, er vegna meinsemda í taugakerfi líkamans. Ætlunin var einnig að vekja athygli á þvi, að eftir því hvar 20 SJÁLFSBJÖRG

x

Sjálfsbjörg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.