Sjálfsbjörg - 01.07.1978, Page 25

Sjálfsbjörg - 01.07.1978, Page 25
(■ ii ð iu ii ii <1 iii* Löve Minning Það er góð tilhögun forsjónarinnar að láta okkur ekki vita fyrirfram hvað skeð- ur. Ekki grunaði okkur á skrifstofu ör- yrkjabandalags Islands þegar við kvöddum Guðmund Löve að loknum vinnudegi hinn 26. apríl s. i. að það yrði í síðasta sinn sem við sæum hann í lifanda lífi. Hann ætlaði aðeins að skreppa vikutíma til Kaupmannahafnar til að sitja þar fund Evrópufulltrúa Alþjóða Endurhæfingar- sambandsins og heimsækja son sinn í leið- inni. En bilið er mjótt milli blíðu og éls — hinn 3. maí er okkur tilkynnt lát hans. Þegar slíkar sorgarfregnir berast er líkt og maður lamist á örsnöggri stundu — þetta getur ekki verið satt, aðeins slæmur draumur. En raunveruleikinn blasir við blákaldur og þegar aðeins fer að rofa til í huganum ber þar efst þakklæti fyrir að hafa kynnst, starfað með og eignast vin- áttu öðlingsins Guðmundar Löve. Hann var fæddur í Reykjavík 13. febr- úar 1919, sonur hjónanna Þóru Guðmundu Jónsdóttur og Sophusar Carls Löve. Hann ólst upp á Isafirði og lauk gagnfræðaprófi við Gagnfræðaskóla Isafjarðar. Guðmund- ur hugði á framhaldsnám en þær vonir brugðust um sinn þar eð hann veiktist af berklum 17 ára gamall og dvaldi næstu ár á sjúkrahúsum og hælum. Á Reykjahæli hvatti yfirlæknirinn, Óskar Einarsson, hann til að fara í Kennaraskólann og það gerði Guðmundur er hann útskrifaðist þaðan. Þrisvar sinnum varð hann að hverfa frá námi vegna berklanna, en kennaraprófi lauk hann 1941. Síðan kenndi hann tvö ár við Austurbæjarskólann í Reykjavík en veiktist þá enn og dvaldist á Kristnesi, Vífilsstöðum og Reykjalundi næstu þrjú ár. — Það sést á þessari upptalningu að hér var enginn venjulegur maður á ferð. Þetta var persónuleiki sem fór fyrir björg og brotnaði ekki, eins og sagt er í ævin- týrunum. Og það er dæmigert fyrir Guð- mund Löve að eftir að hafa horft upp á svo marga menn ýmist verða dauðanum að bráð eða koma hálförkumla á sál og likama út úr veikindunum, að þá skyldi hann fyrst og fremst hugsa um hvað mætti best verða gert til þess að hjálpa þessu fólki til að verða nýtir þjóðfélagsþegnar á ný og öðlast trú á lífið og tilveruna. Guðmundur talaði aldrei um sín eigin veik- indi nema til þess að sýna fram á hvernig áður var búið að þessu fólki og hver breyt- ing væri orðin á högum þess nú, því mikið hefur áunnist þó margt mætti betur fara. Eftir að Guðmundur útskrifaðist af Reykjalundi 1945 gerðist hann skrifstofu- stjóri og félagsmálafulltrúi hjá SlBS og vann þar til ársins 1961, að öryrkjabanda- lag Islands var stofnað og hann gerðist framkvæmdastjóri þess til dauðadags. — Þá var berklaveikin á hröðu undanhaldi en svo margir öryrkjar af völdum annars konar sjúkdóma nutu nú félagslegrar hjálp- ar Guðmundar. Hann annaðist m. a. með SJÁLFSBJÖRG 23

x

Sjálfsbjörg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.