Sjálfsbjörg - 01.07.1978, Qupperneq 43

Sjálfsbjörg - 01.07.1978, Qupperneq 43
HULDA STEINSDÓTTIR: Stofnun Sjálfsbjargar Þegar Sjálfsbjörg, landssamband fatl- aðra, var stofnað árið 1959, höfðu starf- að hér um nokkurt skeið samtök Styrktar- félags lamaðra og fatlaðra. Meðlimir styrktarfélagsins eru velflest- ir heilbrigt fólk, sem vinnur að góðu og gegnu málefni. Mér verður á að hugsa, hvers vegna voru þessi samtök nefnd félag „lamaðra og fatlaðra“? Lamaður maður hlýtur óumdeilanlega að vera fatlaður. Þetta er því eingöngu tvítekning á hug- takinu. Allt frá stofnun Sjálfsbjargar hefur gætt mikils misskilnings meðal fólks, um starfsemi og tilgang þessara tveggja fé- laga. Margir halda að hér sé um einn og sama félagsskapinn að ræða, en þar er töluverður greinamunur á. Ég tel því ekki vanþörf á, að varpa skýrara ljósi á mál- efnin eins og þau liggja fyrir. Eins og fyrr er getið, standa að styrktar- félaginu nær eingöngu heilbrigt fólk, sem hefur með starfi sínu gert mikið gagn í endurhæfingamálum fatlaðra, einkum til styrktar fötluðum börnum, og má þar til nefna æfingastöðina að Háaleitisbraut 13, sumardvalarheimili fyrir fötluð börn í Reykjadal o.fl. Alla þessa starfsemi ber að virða og meta. Hinsvegar er erfitt fyrir ófatlaða að tileinka sér skilning á innra borði hins fatlaða, þar sem sá þáttur mannlegrar gerðar er ekki öðrum ljós en þeim, sem sjálfir hafa fatlast. Að stofnun Sjálfsbjargar, félags fatl- aðra, stóð fólk, sem hafði hlotið marg- víslega líkamlega fötlun, sem háði því til eðlilegrar hreyfigetu, og fann sig því fyrst og fremst knúið til að vinna að félags- legum málum sínum sjálft. Fram að þeim tíma hafði þorri þessa fólks, nánast verið gleymdur. Tilkoma samtakanna varð því mörgum nokkurs konar iífgjafi, enda kom áhuginn greinilega í ljós á næstu árum, og æ síðan hefur starfsemi Sjálfsbjargar auk- ist ár frá ári og er nú dreifð um allt land. Þegar skoðaður er árangur starfseminn- ar undanfarin ár, ber að sjálfsögðu hæst í hugum okkar bygging Vinnu- og dvalar- heimilisins að Hátúni 12 í Reykjavík og rekstur þess, sem er ávöxtur fórnfýsi og félagslegrar samstöðu. Þar er að vísu mikið verk óunnið, og margir erfiðleikar við að etja, en von okkar er sú, að vegna hinnar geysimiklu þarfar á vistunarrými fyrir fatlað fólk, þar sem því er jafnframt búin aðstaða til endurhæfingar og félags- legrar starfsemi, verði öldur erfiðleikanna lægðar með góðum skilningi ráðamanna, svo að hægt verði að ljúka þessari bygg- ingu sem allra fyrst. Félagsdeildir víða um land hafa komið sér upp, eða stuðlað að á ýmsan hátt, að komið yrði á fót aðstöðu til endurhæf- ingar, hver í sínu byggðarlagi. Á Akureyri eru framkvæmdir við stór- byggingu á byrjunarstigi. Þar hefur um nokkur ár, eins og kunnugt er, verið rekin Plastiðjan Bjarg, vernduð vinnustofa fyrir öryrkja. Sjálfsbjörg á Akureyri hefur einnig rekið endurhæfingarstöð í húsi sínu Bjargi, en sú stöð er nú orðin alltof lítil fyrir svo umfangsmikla starfsemi, og getur ekki nærri annað allri eftirspurn. Með tilliti til þessarar aðsóknar, er orðin mikil þörf fyrir aukna endurhæfingar- aðstöðu á Akureyri, og þar mun þessi nýja bygging koma að góðu gagni og verða fé- laginu þar til sóma, er fram líða stundir. FRAMHALD á bls. 14. SJÁLFSBJÖRG 41
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Sjálfsbjörg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.