Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.02.2022, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 12.02.2022, Qupperneq 2
Sjaldséðir gestir á heiðinni Það er ekki á hverjum degi sem sleðahundar sjást á Mosfellsheiðinni. Kjöraðstæður voru til slíkra ferðalaga í gær, kalt og stillt. Höfuðborgarbúar nýta hvert tækifæri sem gefst fyrir margs konar vetrarútiveru. Ef fólk býr sig vel getur ómæld ánægja verið í boði. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Alhliða vertakaþjónusta og öll almenn smíðavinna Drífandi ehf Gunnar / s. 777 8371 gunnariceman@gmail.com ... eignilega allt sem þig vantar að gera. Gluggar, hurðir, kjarnaborun, steinsögun, fræsun, parket, flísar... Samgöngustofa segist hafa fengið ábendingar um „meint flug“ flugmannsins Haraldar Diego í atvinnuskyni án þess að hafa tilskilin leyfi. Málinu hafi verið vísað til lögreglu sem hafi síðan fellt það niður. gar@frettabladid.is FLUGMÁL Málefni félagsins Volcano Air og eiganda þess, f lugmannsins Haraldar Diego, voru til skoðunar hjá Samgöngustofu í fyrra vegna ábendinga um meintan ólöglegan flugrekstur. Lögregla tók við rann- sókn málsins og felldi það síðan niður. Haraldur Diego, sem fórst fimmtudaginn 3. febrúar síðastlið- inn, átti í gegnum félag sitt Volcano Air sem hefur leyfi sem seljandi ferða sem standa yfir í að hámarki sólarhring og fela ekki í sér nætur- gistingu. Undir Volcano air var starf- ræktur ljósmyndaklúbburinn Over Iceland. Meðlimir þar áttu sam- kvæmt reglum félagsins rétt á því að f ljúga með atvinnuf lugmanni gegn því einu að kostnaði við flugið væri skipt milli þeirra sem voru um borð hverju sinni. Á þeim grundvelli fór Haraldur með farþega í útsýnis- og ljósmyndaflug og önnur flug af þeim toga. Þar sem hvorki Haraldur né félög hans höfðu f lugrekstrarleyfi og þar með heimild til að f ljúga með greiðandi farþega bárust Sam- göngustofu athugasemdir frá flug- rekendum um að starfsemi hans uppfyllti ekki skilyrði laga. Töldu þeir sem kvörtuðu flug Haraldar í raun leyfisskyldan atvinnurekstur og í samkeppni við fyrirtæki sem uppfylla þyrftu strangari skilyrði og eftirlit. Í svari til Fréttablaðsins kveðst Samgöngustofa geta staðfest að mál tengt viðkomandi loftfari og eiganda, sem sagt Cessna-flugvél- inni TF-ABB og Haraldi Diego, hafi verið til meðferðar hjá stofnuninni. „Var það meðal annars vegna ábendinga um meint flug viðkom- andi í atvinnuskyni án þess að hafa til þess tilskilin leyfi,“ segir í svari Samgöngustofu, sem jafnframt staðfestir að TF-ABB hafi ekki verið með f lugrekstrarleyfi. Um einka- flugvél hafi verið að ræða. „Samgöngustofa tók málið til rannsóknar eftir hefðbundnum leiðum og ákvörðun var tekin í kjölfarið um að vísa því til lögreglu. Málinu lauk af hálfu lögreglunnar síðastliðið haust með niðurfellingu þess. Þá skal tekið fram að engin nýleg mál hafa borist stofnuninni vegna umrædds loftfars eða eiganda þess,“ er undirstrikað í svarinu. Samkvæmt þessu taldi lögregla að ekkert ólöglegt væri við það f lug sem Haraldur heitinn stundaði. Eins og kunnugt er náðust lík Haraldar og hinna þriggja farþega hans upp úr Ölfusvatnsvík í mik- illi aðgerð við erfiðar aðstæður á fimmtudaginn. Til stóð að halda starfi þar áfram í gær og ná upp flugvél Haraldar, en vegna ísmynd- unar var ákveðið að fresta aðgerð- um þar til aðstæðurnar verða hag- stæðari. ■ Lögreglan felldi rannsókn á umsvifum flugmanns niður Má skipta beinum kostnaði Óheimilt er að fljúga með farþega gegn gjaldi á Íslandi, nema með flugrekstrarleyfi fyrir flutningaflug. Hins vegar er heimilt að skipta kostnaði við einkaflug þar sem óbreytt- ir einstaklingar skipta með sér beinum kostnaði, sem deilist niður á alla sem eru um borð, flugmanninn þar með talinn. Um er að ræða kostnað vegna eldsneytis, lendingargjöld eða leigugjöld fyrir flugvél. Enginn hagnaður má vera af fluginu. HEIMILD: SAMGÖNGUSTOFA Björgunaraðgerðir við Ölfusvatnsvík þar sem mennirnir fjórir sem fórust með TF-ABB fundust. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK birnadrofn@frettabladid.is COVID-19 Almennar fjöldatakmark- anir eru nú 200 manns í stað 50 en breytingar á sóttvarnareglum tóku gildi á miðnætti. Ríkisstjórnin samþykkti í gær annað skref í af léttingaráætlun sinni. Með því duttu úr gildi reglur um sóttkví en reglur um einangrun eru enn þær sömu og reglugerð um skólahald var afnumin. O pnu na r t ími veit inga- og skemmtistaða lengdist um eina klukkustund og er nú leyfilegt að taka á móti gestum til miðnættis en allir skulu hafa yfirgefið staðinn fyrir klukkan eitt. Grímuskylda er áfram í gildi þar sem ekki er hægt að tryggja eins metra fjarlægð, engar fjölda- takmarkanir eru í verslunum eða á sund-, líkamsræktar- og skíða- svæðum. Íþróttakeppnir og æfingar eru heimilar með 200 manns í hólfi og heimilt er að halda þúsund manna viðburði að því tilskildu að allir sitji í sæti og beri grímu. ■ Takmörkunum létt vegna Covid Grímuskylda er áfram í gildi þar sem ekki er hægt að tryggja fjarlægð. birnadrofn@frettabladid.is SVEITARSTJÓRNIR Prófkjör Samfylk- ingarinnar í Reykjavík og Hafnar- firði fyrir sveitarstjórnarkosningar hefjast í dag. Dagur B. Eggertsson og Heiða Björg Hilmisdóttir gefa ein kost á sér í tvö efstu sætin í Reykja- vík. Hann í fyrsta sæti og hún í annað sæti. Töluverð barátta er um sætin þar fyrir neðan. Sextán manns bjóða sig fram í sex efstu sæti listans í borg- inni. Í sveitarstjórnarkosningum í maí verður kosið um 23 einstaklinga til setu í borgarstjórn Reykjavíkur. Um opið prófkjör er að ræða sem þýðir að bæði flokksfólk í Samfylk- ingunni og þeir sem hafa skráð sig sem stuðningsfólk hafa kosninga- rétt. Töluvert hefur verið um nýskrán- ingar í f lokkinn í aðdraganda próf- kjörsins, en prófkjörinu í Hafnar- firði lýkur í dag en í Reykjavík stendur það til morguns og má búast við niðurstöðu síðdegis eða snemma annað kvöld. Próf kjör Samfylkingarinnar í Kópavogi fer fram um næstu helgi. Sömu helgi fer fram prófkjör Pírata í Reykjavík og Kópavogi. ■ Prófkjör um helgina Dagur B Eggerts son, borgarstjóri 2 Fréttir 12. febrúar 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.