Fréttablaðið - 12.02.2022, Page 12

Fréttablaðið - 12.02.2022, Page 12
Sif Sigmarsdóttir n Mín skoðun n Gunnar ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is …að öllum öðrum ólöstuðum hlýtur ráðuneyti kvótamála að vera þar mesti próf- steinninn á hvort það skipti yfirleitt nokkru máli hvort handhafi valdsins sé kok- hraustur kapítalisti eða sann- færður sósíalisti. Svo virðist sem SFS telji sig standa á glæstum hátindi framþró- unar. Sigmundur Ernir Rúnarsson ser @frettabladid.is Hvenær verðum við sú manneskja sem okkur er ætlað að vera? Samkvæmt niður- stöðum rannsóknar sem gerð var við Har- vard háskóla í Bandaríkjunum er svarið: Aldrei. „Manneskjur eru verk í vinnslu sem halda ranglega að þær séu tilbúnar,“ segir Daniel Gilbert, sem fór fyrir rannsókninni. Samkvæmt henni teljum við okkur flest hafa tekið miklum breytingum síðustu tíu ár. Aftur á móti gerum við flest ráð fyrir því að breytast lítið sem ekkert næstu tíu ár. Gilbert segir að þótt tíminn sé kraftmikið afl sem breyti persónuleika okkar, smekk og lífsgildum, virðumst við þó aðeins skynja tímann sem breytingarafl í fortíð. Í núinu teljum við okkur alltaf nýbúin að breytast í þá persónu sem við munum vera út ævina. Gilbert kallar þessa skynvillu „tálsýn um sögulok“ og segir manneskjuna sem við erum í dag vera jafnskammæra og öll þau sjálf sem komu á undan. Slík ímynduð sögulok eiga sér þó ekki aðeins stað meðal einstaklinga. Grátbrosleg flónska Árið 1975 kom út bók sem hófst á eftir- farandi orðum: „Þessi bók fjallar um kúgun manna á ómennskum dýrum. Þessi kúgun hefur valdið og veldur enn sársauka og þjáningum sem eiga sér hliðstæðu í alda- langri kúgun hvítra manna á svörtum.“ Þegar bókin Frelsun dýra eftir siðfræðing- inn Peter Singer kom fyrst út, þótti fyrrnefnd fullyrðing fráleit. Singer viðurkenndi að sjálfur hefði hann hlegið að sambærilegri samlíkingu nokkrum árum fyrr. En nú, tæpri hálfri öld eftir að tímamótaverk Singers leit dagsins ljós, eru hugmyndir hans um dýra- vernd útbreiddar og grænkerar á hverju strái. Samtímanum þykir fortíðin gjarnan fávís. Það sem eitt sinn þótti rétt, eins og þræla- hald, þykir okkur nú fásinna. Eina flónsku eigum við þó sameiginlega með undan- gengnum kynslóðum. Árið 1992 lýsti bandaríski stjórnmálafræð- ingurinn Francis Fukuyama yfir „endalokum sögunnar“. Fukuyama taldi að hugmynda- fræðilegri þróun mannkynsins væri formlega lokið. Hið vestræna lýðræði hefði í anda nátt- úruvals Darwins orðið ofan á og bolað burt óæðri stjórnarháttum á borð við harðstjórn, einræði og kommúnisma. Hvort sem um ræðir einstaklinginn, samfélagið eða hugmyndafræði er ljóst að sögulok eru tálsýn. Í dag hlæjum við að því þegar okkur fannst við fáránlega flott með herðapúða og sítt að aftan. Í dag rífum við niður styttur af löngu liðnum þrælahöld- urum. En þótt hvert einasta tímabil fortíðar sem taldi sig hafa náð glæstum hátindi fram- þróunar hafi haft rangt fyrir sér, virðumst við ekki velkjast í nokkrum vafa um að samtími okkar sé þvert á móti sá glæsti endapunktur sem hinir töldu sig upplifa. Á forsíðu Fréttablaðsins í vikunni birtust niðurstöður könnunar sem sýndi að rúm- lega sextíu prósent landsmanna eru andvíg kvótakerfinu. Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, gaf í skyn að þeir sem væru á móti núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi væru á móti sjálfbærum veiðum. Hún sagði mikil- vægt að hafa „alla söguna í forgrunni“. Hér áður fyrr hefðu „of mörg skip“ verið að eltast við „of fáa fiska“. Kerfið hefði ekki orðið til í einu vetfangi árið 1983 heldur hefði leiðin að umhverfislegri, efnahagslegri og samfélags- legri sjálfbærni verið löng og erfið. „En okkur Íslendingum tókst þetta.“ Svo virðist sem SFS telji sig standa á glæstum hátindi framþróunar. En förum við að ráðum Heiðrúnar og höfum „alla söguna í forgrunni“ sést að slíkt dramb er oftast falli næst. Líklegra er að í náinni framtíð verði málflutningur þeirra, sem halda fram að öryggi fiskistofna verði aðeins tryggt með því að arður fiskveiða renni í vasa fárra, álitinn grátbrosleg flónska fortíðar. n Kvótinn og endalok sögunnar Í þeim pólitíska ómöguleika sem einkennir yfirbragð íslenskra stjórnmála er einna áhugaverðast að hugsa til þess mögulega. Þrír ólíkir flokkar leggja hver öðrum lið í ríkisstjórn, en hana skipa fyrrum froðu- fellandi andstæðingar sem stíga nú vangadans- inn af slíkri alvöru að ekkert lát virðist vera á ástríkinu. En er mögulegt að sundurgerðin sé minni en sagan segir? Getur verið að litlu skipti um ákvarðanir og efndir, hvort ráðsettur hægrimað- ur stjórni ábúðarfullu ráðuneyti eða að róttækur vinstrimaður haldi þar um valdaþræði? Í þessu efni er áhugavert að skoða nokkra kima stjórnarráðsins, en að öllum póstum ólöst- uðum hlýtur ráðuneyti kvótamála að vera þar mesti prófsteinninn á hvort það skipti yfirleitt nokkru máli hvort handhafi valdsins sé kok- hraustur kapítalisti eða sannfærður sósíalisti. Svarið mun blasa við á næstu mánuðum og árum í valdatíð Svandísar Svavarsdóttur á stóli atvinnumálaráðherra, sem tiltölulega nýverið tók við lyklunum af Kristjáni Þór Júlíussyni. Það mun með öðrum orðum ráðast á næstu misserum hvort þau skötuhjúin tilheyri sama flokknum í sann og raun, eða ekki, altso kyrrláta kvótaflokknum sem ætlar sér ekki með nokkru móti að ógna auðríki þessa fámenna hóps sem eignast hefur auðlindina í sjónum í kringum landið. Sú var tíðin að stjórnmálamaður af reyndari skólanum synjaði lögum staðfestingar á stóli for- seta, á þeim forsendum að gjá væri á milli þings og þjóðar. Af þeim sökum var málinu vísað til almennings í sögulegri þjóðaratkvæðagreiðslu sem braut í blað í lýðveldissögunni. Hyldjúp gjáin sem blasað hefur við í þjóð- málaumræðunni, bæði fyrir og eftir þá atkvæða- greiðslu – og má heita opið sár á samfélaginu – varðar stjórn fiskveiða við landið, ekki að skipt hafi verið úr sóknarmarki í sjálfbærari veiðar, heldur hvað eignarhaldið varðar og arðinn sem situr eftir í sameiginlegum sjóðum landsmanna. Ástæða þess að yfir 60 prósent landsmanna eru andvíg núverandi tilhögun kvótakerfisins og að aðeins fimmtungur landsmanna er hlynntur henni, svo sem fram kom í skoðanakönnun sem birtist í Fréttablaðinu í vikunni, verður einkum rakin til þess hróplega óréttlætis sem alþýða manna verður vitni að í málaflokknum: Helstu auðmenn landsins segjast ekki hafa efni á að greiða markaðsleigu fyrir fiskinn í sjónum og komast upp með slikkið. Nú reynir á Svandísi Svavarsdóttur. Er hún Kristján Þór í sauðargæru? Er hún VG eða varan- legt íhald? Hún ein getur svarað því. n Prófraunin SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 12. febrúar 2022 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.