Fréttablaðið - 12.02.2022, Page 38

Fréttablaðið - 12.02.2022, Page 38
70 bensínstöðvar 2 vetnisstöðvar 1 metanstöð 9 ON hleðslustöðvar 16 bílaþvottastöðvar 6 apótek 6 matvöruverslanir Orkustöðvarnar okkar eru fjölorkustöðvar: forstjóri Orkunnar? Við auglýsum eftir orkumiklum forstjóra sem mun bera ábyrgð á spennandi verkefnum, áskorunum og tækifærum sem framundan eru hjá Orkunni. Viðkomandi mun leiða öflugan og fjölbreyttan hóp starfsfólks sem öll eiga þátt í að þróa og framkvæma stefnu félagsins. Markmið Orkunnar er að einfalda líf viðskiptavina sinna á snjallan, hagkvæman og um- hverfisvænan hátt. Við trúum því að framtíðin sé fólgin í nýtingu fjölbreytilegra orkugjafa, tækni og að þægindi framtíðarinnar snúist um að spara tíma og einfalda amstur dagsins. Áhersla okkar er hagkvæmur rekstur og viðskiptaþróun með ánægju viðskiptavina okkar að leiðarljósi. Við erum að leita að einstaklingi sem ert eins og þú: → Framúrskarandi leiðtogi. → Hefur brennandi áhuga á smásölumarkaði og framtíð orkugeirans. → Ert drífandi og orkumikill. → Hefur reynslu af breytingastjórnun og getu til að skapa sterka liðsheild. → Metnaðarfullur, skapandi og framsækinn. → Með skýra framtíðarsýn og stefnumótandi hugsun. Umsóknarfrestur er til og með 22.02.22. Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is Upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir, framkvæmdastjóri Hagvangs. katrin@hagvangur.is Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum svarað að ráðningu lokinni. Vilt þú starfa sem Framkvæmdastjóri Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga óskar eftir að ráða drífandi einstakling í starf framkvæmdastjóra sem hefur brennandi áhuga á kjara- og réttindamálum. Nánari upplýsingar um starfið veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Helga Birna Jónsdóttir (helga@intellecta.is) í síma 511 1225. Umsóknarfrestur er til og með 21. febrúar 2022. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni. • Dagleg stjórnun og ábyrgð á rekstri skrifstofu félagsins • Framkvæmd ákvarðana stjórnar • Hagsmunagæsla fyrir félagið, ráðgjöf til félagsmanna vegna kjara- og réttindamála • Undirbúningsvinna vegna gerð kjarasamninga og stofnanasamninga Helstu verkefni og ábyrgð: Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga (KVH) er stéttarfélag viðskipta- og hagfræðinga. Félagið sér um að gera kjarasamninga fyrir hönd félagsmanna, bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði. KVH hefur það að markmiði að félagsmenn þess njóti bestu mögulegrar þjónustu og hagsmunagæslu á hverjum tíma. Félagsmenn KVH eru á annað þúsund. Um helmingur þeirra starfar á almennum vinnumarkaði en tæplega helmingur hjá hinu opinbera. KVH er aðili að Bandalagi háskólamanna. Nánari upplýsingar um KVH má finna á www.kjarafelag.is. • Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Reynsla af kjarasamningagerð og þekking á vinnumarkaðsmálum • Góð greiningarhæfni • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð • Færni í samskiptum, samvinnu og rík þjónustulund • Góð íslensku- og enskukunnátta og færni til að tjá sig skipulega bæði í ræðu og riti Menntunar- og hæfniskröfur: 6 ATVINNUBLAÐIÐ 12. febrúar 2022 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.