Fréttablaðið - 12.02.2022, Page 55

Fréttablaðið - 12.02.2022, Page 55
Matvælaráðuneytið Hæfnikröfur: • Háskólapróf sem nýtist í starfi, svo sem alþjóðasamskipti, lögfræði, hagfræði, stjórnmálafræði, sjávarútvegsfræði, verkfræði eða samningatækni. Framhaldsmenntun er skilyrði. • Afburða hæfni til að tjá sig og eiga samskipti í ræðu og riti á íslensku og ensku, • Metnaður, lausnamiðuð hugsun og góð skipulagshæfni. • Mjög góð greiningahæfni. • Reynsla af alþjóðlegu samstarfi er kostur. • Reynsla af samningaviðræðum er kostur. • Hæfni í norsku, dönsku eða sænsku er kostur. • Þekking á sjávarútvegi er kostur. • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur. Laun samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins. Umsóknum þarf að fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá á íslensku ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. reglur um auglýsingar lausra starfa nr. 1000/2019. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu. Starfshlutfall er 100%. Nánari upplýsingar um starfið veitir Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir, skrifstofustjóri sjávarútvegs, aslaug.holmgeirsdottir@mar.is eða 545-9700. Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar 2022. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Matvælaráðuneytið er öflugt ráðuneyti þar sem mætast málaflokkar sjávarútvegs, landbúnaðar, fiskeldis, matvæla, landgræðslu og skógræktar. Í starfi ráðuneytisins er áhersla lögð á sjálfbærni, jöfnuð og nýsköpun. Á skrifstofu sjávarútvegs er góð liðsheild og starfsmenn vinna að því skapa sjávarútvegi skilvirkt og ábyrgt starfsumhverfi. Skrifstofan fer með þjóðhagslega mikilvæg verkefni í alþjóðastarfi og annast gerð og framkvæmd fiskveiði- samninga við aðrar þjóðir. Matvælaráðuneytið leitar að öflugum einstaklingi til að hafa forystu í alþjóðastarfi á sviði sjávarútvegsmála. Við leitum að starfsmanni til að vera í fyrirsvari og leiða sendinefndir sem vinna að gerð fiskveiðisamninga við fiskveiðiþjóðir, einkum í Norður-Atlantshafi. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem hefur burði og þrautseigju til að takast á við krefjandi samningagerð þar sem miklir hagsmunir eru í húfi. Nýr starfsmaður þarf að búa yfir skapandi hugsun, krafti og getu til að ná árangri. Hann þarf að hafa hæfni til að vera í forystu í alþjóðastarfi, verja stefnu og hagsmuni Íslands og ná árangri við samningaborðið. Ertu klár í alþjóðasamskiptum? Allar nánari upplýsingar á www.starfatorg.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.