Fréttablaðið - 26.03.2022, Blaðsíða 2
Aðalheiður Ámunda-
dóttir og Björk Eiðs-
dóttir hlutu tilnefn-
ingar.
Nýjar kröfur Loftslagsverkfallsins
Loftslagsverkfallið stóð fyrir mótmælum á Austurvelli í gær. Nýjar kröfur hreyfingarinnar fela í sér uppfærða aðgerðaáætlun í loftslagsmálum, aukið vægi
ungs fólks í ákvarðanatökum og að stjórnvöld verji minnst fjórum prósentum af vergri landsframleiðslu í loftslagsaðgerðir. „Þetta er barátta sem heldur
áfram og við megum engan tíma missa,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar, sem var viðstaddur mótmælin. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Aðalfundur BÍ 2022
Fimmtudaginn 28. apríl kl. 20.00 í Síðumúla 23
Aðalfundur Blaðamannafélags Íslands árið 2022
verður haldinn fimmtudaginn 28. apríl n.k. að Síðumúla 23,
3. hæð, 108 Reykjavík þar sem félagið er til húsa
og hefst fundurinn stundvíslega kl. 20.00
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
Skýrslur frá starfsnefndum
Kosningar*
Lagabreytingar
Önnur mál
BÍ-félagar eru hvattir til að mæta
*Framboð til formanns BÍ þarf að berast skrifstofu BÍ
ekki síðar en tveimur vikum fyrir boðaðan aðalfund.
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum
fékk mest allra ferðamanna-
staða í tæplega þriggja
milljarða úthlutun fjármuna
til uppbyggingar innviða og
náttúruverndar.
benediktboas@frettabladid.is
FERÐAÞJÓNUSTA „Það er heilmikil
skrif borðs- og pappavinna eftir
áður en við fáum að sjá bílastæði
og göngustíga birtast,“ segir Einar
Á. E. Sæmundsen, þjóðgarðsvörður
og framkvæmdastjóri Þingvalla-
nefndar, en í úthlutun fjármuna til
uppbyggingar innviða og náttúru-
verndar á ferðamannastöðum fékk
Þjóðgarðurinn mest allra.
Lagning bílastæða og gerð
gönguleiðar norðan Öxarárfoss og
Stekkjargjár, að undangenginni
frumathugun; uppfærsla á skiltum
og merkingum í Þinghelgi, fær 171
milljón á næsta ári.
Uppfærsla á skiltum og merking-
um; deiliskipulag fyrir strandlengju
og áframhaldandi uppbygging mal-
arstígs fær 34 milljónir og merking-
ar á meginaðkomum í þjóðgarðinn
á þremur stöðum fær 16,2 milljónir.
Viðgerð á föllnum brúarsporði við
Öxará fær fjórar milljónir.
„Það er mikilvægt að hlúa vel að
náttúru og minjastöðum okkar,
sem svo margir njóta að heimsækja.
Áætlunin gefur fyrirsjáanleika og
fjármagn til lengri tíma, en einn-
ig svigrúm til að bregðast hratt og
örugglega við óvæntu álagi vegna
ferðamanna, eins og við höfum
gert,“ segir Guðlaugur Þór Þórðar-
son, umhverfis-, orku- og loftslags-
ráðherra, þegar hann tilkynnti um
úthlutunina. Gert er ráð fyrir um 2,8
milljarða króna framlagi til næstu
þriggja ára til uppbyggingarinnar
víðs vegar um land.
Alls er nú 151 verkefni á áætlun
næstu þriggja ára á rúmlega 90
ferðamannastöðum, þar af 65 ný
verkefni sem bætast við að þessu
sinni. Þar má nefna uppbyggingu á
Geysissvæðinu, byggingu útsýnis-
palls og göngustíga í Ásbyrgi, yfir-
byggingu minja þjóðveldisbæjarins
á Stöng í Þjórsárdal, skála með góðri
heilsárs salernisaðstöðu í Vagla-
skógi, vandaða göngustíga við Búr-
fellsgjá, áframhaldandi umbætur
á aðgengi ofan við Gullfoss með
steyptum stígum og frekari skref
til bættrar aðstöðu við Jökulsárlón.
Einar segir að hann sé ánægður
með verkefnaáætlunina og segir það
vera verkfæri sem virkar vel.
„Við stöndum frammi fyrir þeirri
spurningu hvað mikið við getum
byggt af innviðum á hverjum stað
og hvað við getum tekið á móti
mörgum ferðamönnum á hverjum
stað. Við erum langt frá þeirri stöðu
núna en það er skylda okkar sem
erum að reka þessa staði að skanna
inn í framtíðina hvort sem það eru
þrjú, fimm eða tíu ár,“ segir Einar
glaður í bragði.
„Hér er snjó að taka upp og syndir
vetrarins að koma í ljós. Sandurinn
sem við notuðum til að hálkuverja
er þó að tætast um allt. Það er nán-
ast Reynisfjara við Hakið,“ segir
hann og skellir upp úr. ■
Mikil pappírsvinna eftir
áður en göngustígarnir sjást
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum fékk mest úr úthlutun ríkisins til uppbyggingar
innviða og náttúruverndar á ferðamannastöðum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Það er mikilvægt að
hlúa vel að náttúru og
minjastöðum okkar.
Einar Á.E. Sæ-
mundsen, þjóð-
garðsvörður og
framkvæmda-
stjóri Þingvalla-
nefndar
FKA-konur í mannvirkjaiðnaði saman komnar á sýningunni Verk og vit.
ser@frettabladid.is
SAMFÉLAG Konum í iðngreinum á
Íslandi er að fjölga að mun eins og
vel sést á sýningunni Verk og vit sem
nú stendur yfir í Laugardalshöll.
„Þeim er að fjölga, já, en ekki
nógu hratt að mínu viti,“ segir
Hildur Ingvarsdóttir, skólameistari
Tækniskólans, en hún segir breyt-
inguna þó augljósa frá því fyrir tíu
árum eða svo. „Og það gleðilega er
að þessar stúlkur eru að koma til
iðnnáms beint úr grunnskóla.“
„Konum fjölgar helst í rafiðn-
greinunum, en einnig í húsasmíði
og pípulögn – og núna eru til dæmis
fjórar stúlkur að læra vélstjórn sem
var óþekkt fyrir nokkrum árum,“
segir Hildur.
„Það eru gríðarleg tækifæri fyrir
konur í þessum greinum,“ segir
Hildur jafnframt og skorar á stúlkur
og ungar konur að huga að þessum
atvinnumöguleika, en iðnaðar-
menn eru afar eftirsóttir til starfa.■
Konum fer fjölgandi í iðngreinum
arnartomas@frettabladid.is
FJÖLMIÐLAR Tveir blaðamenn
Fréttablaðsins hlutu í gær tilnefn-
ingar til Blaðamannaverðlauna
fyrir árið 2021. Verðlaunin eru veitt
í fjórum flokkum og eru þrjár til-
nefningar í hverjum flokki.
Björk Eiðsdóttir hlaut tilnefningu
í flokknum Viðtal ársins fyrir viðtal
sitt við Sigríði Gísladóttur sem lýsir
barnæsku sinni hjá móður með
geðsjúkdóm. Aðalheiður Ámunda-
dóttir hlaut tilnefningu í f lokknum
Rannsóknarblaðamennska ársins
fyrir fréttaskýringar um dóma-
framkvæmd Landsréttar í nauðg-
unarmálum.
Meðal annarra tilnefndra eru
Arnar Þór Ingólfsson og Þórður
Snær Júlíusson, Kjarnanum, fyrir
fréttaskýringar um skæruliðadeild
Samherja. Sunna Karen Sigurþórs-
dóttir, hjá Stöð 2, fyrir umfjöllun
um tilefnislausar lífslokameðferðir
á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, og
Aðalsteinn Kjartansson, Stundinni,
fyrir umfjöllun um eignir og eigna-
tengsl í íslenskum sjávarútvegi. ■
Fréttablaðið fékk
tvær tilnefningar
2 Fréttir 26. mars 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ