Fréttablaðið - 26.03.2022, Síða 70
Lóan er komin og vor er
í lofti og þá er tilefni til
að fagna með ljúffengum
smáréttum og freyðandi
drykkjum. Í tilefni þess
að vorið er komið og það
styttist í sumarið er upplagt
að bjóða upp á blinis með
sælkeratvisti sem gleður
bæði augu og munn.
sjofn@frettabladid.is j
Hér er á ferðinni uppskrift að blinis
með heitreyktri bleikju og epla-
salati toppuðu með rifnu, fersku,
íslensku wasabi sem fullkomnar
daginn. Hægt er að setja það sem
hugurinn girnist á blinis, það má
til að mynda framreiða blinis
með piparrótarsósu, reyktum laxi
og toppa með harðsoðnu korn-
hænueggi eða leika sér með tvisti
af geitaosti og kryddjurtum. Leyfa
bragðlaukunum og hugmynda-
fluginu að ráða för og bjóða upp á
freyðandi drykki með.
Blinis með heitreyktri
bleikju, eplasalati og toppað
með fersku wasabi
1-2 heitreykt bleikjuflök
(hægt að kaupa í flestum mat-
vöruverslunum)
Wasabi rót - íslensk (fæst hjá
Nord ic Wasabi á Skólavörðustíg)
Blinis
Eplasalat
Blinis
400 g bókhveiti
2 tsk. þurrger
½ tsk. salt
6 dl volg mjólk
4 egg
1 dl matarolía
Blandið þurrefnunum saman í
skál, hellið svo volgu mjólkinni
út í smátt og smátt og hrærið vel
í. Bætið nú olíu og eggjum út í og
látið skálina standa á hlýjum stað
í klst. Bakið örlitlar lummur úr
deiginu á meðal hita en notið góða
pönnu, þá festast lummurnar síður
á. Þegar búið er að kæla þær er upp-
lagt að setja á þær kræsingar sem
hugurinn girnist.
Eplasalat
2 epli, skræld og skorin í bita
1 fennel, skorið í teninga
½ sítróna, safi og börkur
Örlítið salt
100 ml rjómi, léttþeyttur
20-30 g rifið wasabi (ferskt)
10 g dill (eiga auka til skreytingar
ef vill)
10 g hunang
Setjið epli og fenniku í skál,
bætið smávegis sítrónusafa og
salti saman við og látið standa.
Saltið lítillega léttþeyttan rjóma og
blandið honum saman við eplin og
fennelið. Passið að það komi ekki
of mikill safi af eplunum. Rétt áður
en þetta er sett ofan á bleikjusneið-
arnar á blinis-kökunum, bætið þá
fínt söxuðu dilli og hunangi saman
við. Vert er að geta þess að þetta
salat passar með öllum reyktum og
söltum mat og hægt er að leika sér
með það sem meðlæti.
Samsetning
Skerið bleikjuflökin í litlar sneiðar
sem passa á blinis, mega fara
aðeins út fyrir þegar þær eru lagðar
þvert yfir á blinis-kökurnar. Raðið
blinis-kökunum upp á bökunar-
pappír eða stóra ofnplötu, setjið
eina sneið af heitreyktri bleikju á
hverja blinis-köku, setjið síðan smá
eplasalat ofan á bleikjusneiðina,
rífið loks niður ferska wasabi-rót
yfir hverja blinis og skreytið með
wasabi-blómum og/eða dilli. n
Dýrðlegar blinis
með heitreyktri bleikju
Hægt er að raða
smáréttum fal-
lega á borð.
oddurfreyr@frettabladid.is
Þessi bragðgóða og einfalda útgáfa
af klassískum malasískum rétti
birtist á matarvef BBC, Good Food.
Það tekur bara um 15-20 mínútur
að gera hana til og hún er nóg fyrir
fjóra.
500 ml af heitu kjúklinga- eða
grænmetissoði
400 ml af kókosmjólk úr dós
1 matskeið af grænu eða rauðu
taílensku karrýmauki
1 teskeið af möluðu túrmerik
3 húð- og beinlausar kjúklinga-
bringur, skornar í sneiðar
250 grömm af hrísgrjónanúðlum
300 grömm af foreldaðri „stir-fry“
grænmetisblöndu sem inniheldur
baunaspírur
Skref 1: Sjóðið fyrst vatn. Takið
svo soðið, kókosmjólkina, karrý-
maukið, túrmerik og kjúklinginn
og setjið í stóra skál sem þolir
örbylgjuofn. Setjið matarfilmu
yfir, gatið hana nokkrum sinnum
og hitið í örbylgjuofni á mesta hita
í fimm mínútur. Takið skálina svo
úr ofninum og fjarlægið matar-
filmuna, hrærið og eldið í fimm
mínútur í viðbót þar til kjúkling-
urinn er eldaður í gegn.
Skref 2: Á meðan skulið þið setja
núðlurnar í aðra stóra skál. Hellið
svo sjóðandi vatni yfir og látið þær
liggja í bleyti í fjórar mínútur og
hellið vatninu svo af.
Skref 3: Blandið grænmetinu
og núðlunum út í skálina með
kjúklingnum og notið svo ausu
til að setja í djúpar skálar og berið
fram með skeiðum og göfflum. n
Ofureinfaldar kjúklinganúðlur
Kjúklinganúðlur standa alltaf fyrir sínu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Aðalfundur
Geðhjálpar 2o22
Aðalfundur Landssamtakanna Geðhjálpar verður haldinn
í sal Geðhjálpar, Borgartúni 30
Á dagskrá verða hefðbundin aðalfundarstörf, m.a. kosning
fulltrúa í stjórn og umöllun um ársskýrslu og ársreikning
samtakanna. Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Virðingarfyllst,
stjórn Geðhjálpar
laugardaginn 23. apríl kl. 14
6 kynningarblað A L LT 26. mars 2022 LAUGARDAGUR