Fréttablaðið - 26.03.2022, Blaðsíða 34
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Úlfur Atlason er verkefnastjóri
hjá Skema, en hann byrjaði að
vinna þar 13 ára gamall eftir að
hafa setið námskeið. Þegar hann
er spurður hvernig það hafi komið
til, svarar hann: „Ég sótti námskeið
hjá Skema þegar ég var 13 ára og
þótti mjög skemmtilegt auk þess
sem mér gekk mjög vel. Síðar var ég
gestur á UT Messu í Hörpu en þar
var Skema að kynna sig. Þá var mér
boðin vinna sem aðstoðarþjálfari,
jafnt að hjálpa til í kennslunni
og aðstoða krakkana ef á þurfti
að halda. Síðan vann ég mig upp
í starfi og varð þjálfari og eftir
því sem tíminn leið fékk ég fleiri
verkefni og meiri ábyrgð. Nú er ég
orðinn verkefnastjóri,“ segir Úlfur
sem verður 22 ára síðar á árinu.
Allir geta lært forritun
Úlfur segist snemma hafa fengið
áhuga á tölvum og tölvuleikjum.
„Ég fann mig ekki í öðrum tóm-
stundum. Spilaði mikið tölvuleiki
og var aðeins farinn að fikta við
forritun. Þegar ég fór á námskeiðið
kom það mér mjög vel af stað og
ég sé ekki eftir að hafa sótt það.
Það var ekki flókið fyrir mig að
læra forritun enda geta allir lært
hana. Best er að byrja á einhverju
einföldu og nauðsynlegt að læra
grunninn sem krakkarnir gera
hjá Skema. Við kennum forritun
í gegnum leik þannig að þetta
er mjög skemmtilegt og flestum
nemendum finnst þetta gaman
auk þess sem áhugi þeirra kviknar
á forritun.“
Úlfur segir að atvinnumöguleik-
ar séu miklir í forritun. „Við sjáum
fram á það í framtíðinni að forrit-
unar-, tölvu- og tæknikunnátta séu
mikilvægustu eiginleikar sem fólk
getur haft á vinnumarkaðnum.
Sú vegferð er auðvitað hafin en á
eftir að verða mun mikilvægari.
Ég myndi segja að forritunarnám
opni margar dyr,“ segir hann.
Fjölbreytt og skapandi nám
Námskeiðin hjá Skema sem fara
fram í Háskólanum í Reykjavík eru
fjölbreytt og skapandi. Kennt er
allt árið og sumarnámskeiðin hafa
verið afar vinsæl. „Skema miðar
að því að veita öllum börnum á
Íslandi tækifæri til þess að læra for-
ritun. Við höfum tileinkað okkur
fjölbreyttar leiðir til þess að ná
þessu markmiði en við höldum
námskeiðin í HR allt árið, þjálfum
einnig grunnskólakennara og
kennum forritun inni í grunnskól-
um. Þá höldum við opna viðburði/
smiðjur á bókasöfnum og mætum
á stóra tækniviðburði, eins og UT-
messuna og Vísindavöku Rannís,“
upplýsir Úlfur.
„Námskeiðin eru gríðarlega
vinsæl og við fáum nokkur þúsund
nemendur á hverju ári,“ segir hann.
„Við náum mjög vel til krakkanna í
gegnum grunnskólana en nem-
endur á námskeiðunum okkar eru
frá 4 -14 ára. Yngstu börnin eru
einstaklega móttækileg og eru fljót
að tileinka sér forritun. Þeim mun
yngri sem börnin eru því betra er
að kenna þeim. Þau læra í gegnum
skemmtilega leiki sem efla sköp-
unargáfu þeirra auk þess sem þau
tileinka sér gagnrýnni hugsun og
stafrænt læsi. Kynjahlutföllin á
námskeiðunum eru nokkuð jöfn
en við viljum leggja áherslu á að
fá fleiri stelpur, sérstaklega vegna
þess að konur eru í miklum minni-
hluta í tæknigreinum yfirleitt.
Okkur er sérstaklega annt um
að rétta þennan kynjahalla. Við
bjóðum upp á sérstök sjálfstyrkj-
andi forritunarnámskeið fyrir
stelpur. Einnig leggjum við áherslu
á að vera með góðar kvenkyns
fyrirmyndir í okkar starfsmanna-
hópi en meirihluti þjálfaranna er
stelpur,“ segir Úlfar. „Þess má geta
að fyrsti forritarinn í heiminum
var kona, Ada Lovelace. Konur
eru mjög góðar og jafnvel betri en
karlar í forritunarstörfum. Alls
kyns rannsóknir hafa sýnt það,“
segir Úlfur. „Það þarf að brjóta
niður staðalímyndir hjá börnum
sem telja oft að einungis sveittir
karlar séu forritarar. Fæstir gera
sér grein fyrir hversu fjölbreyttur
starfsvettvangur forritun er,“ segir
Úlfur.
Sumarævintýri í HR
„Aðferðafræðin sem notuð er við
kennsluna var þróuð af stofnanda
Skema árið 2011 en hún felur í
sér að mæta hverjum nemanda
þar sem hann er staddur með
námi í gegnum leik og skapandi
hugsun. Við bjóðum upp á þrjár
vetrarannir og eina sumarönn.
Á veturna erum við með lengri
námskeið í ellefu vikur. Einnig er
boðið upp á stök helgarnámskeið
og síðan sumarnámskeiðin sem
standa yfir í fimm daga. Þá er
boðið upp á skemmtilega dagskrá í
leik og námi. Krakkarnir fá að kafa
djúpt í forritunina og svo hvílum
við okkur á milli og skoðum fal-
lega náttúruna í kringum skólann.
Við leggjum áherslu á að stunda
heilbrigða tölvunotkun og þetta er
sannkallað sumartækniævintýri.
Ef krakkarnir byrja ungir í Skema
geta þau komið sumar eftir sumar
og bætt sig enn frekar.“
Úlfur segir að krakkarnir séu
upp með sér að setjast á skólabekk
í háskóla. „Þau eru afar stolt af því
og segja gjarnan að HR sé skólinn
þeirra. Foreldrar eru líka stoltir
af börnum sínum að vera komin
í háskóla að læra forritun. Krakk-
arnir eru áhugasamir um námið
auk þess sem það gefur þeim góða
reynslu út í lífið. Þeir sem komu
á námskeið í upphafi Skema eru
sjálfir komnir í háskólanám núna
eða að útskrifast úr menntaskóla.
Margir sem ég hef talað við hafa
sagt mér að námskeiðið hjá Skema
hafi vakið áhuga þeirra á tækni-
geiranum og þau hafi gjarnan valið
sér menntaskólagreinar í framhaldi
af því, til dæmis tölvunarfræði. Það
er mjög gaman að sjá að verk-
efnið skilar sér út í atvinnulífið. Hjá
Skema starfa nokkrir fyrrverandi
nemendur,“ segir Úlfur enn fremur.
Skema er samfélagslegt verkefni
og rekið án hagnaðar. „Allt sem við
gerum er til að bæta samfélagið
og veita börnum tækifæri til að
nýta tæknina til að vinna með
sér en ekki einungis vera neyt-
endur hennar. Verkefnið er liður í
samfélagslegri ábyrgð Háskólans í
Reykjavík. Við hjá Skema tökum á
móti öllum börnum og hægt er að
greiða fyrir námskeiðið með frí-
stundastyrk.“
Næstu vetrarnámskeið hjá
Skema er 1. og 2. apríl, síðan verða
námskeið í maí áður en sumar-
námskeiðin hefjast. Einnig verður
Skema með viðburð í páskafríinu
sem kallast Skapandi tæknidagar
sem verður mjög spennandi. ■
Hægt er að skoða námskeiðin
og skrá börnin á heimasíðunni
skema.is.
Börn frá 4 ára
aldri geta komið
á námskeið í for-
ritun hjá Skema.
Fyrrverandi
nemendur fá
oft tækifæri til
að þjálfa þau
yngri.
Forritunin er
kennd í gegnum
skemmtilega
leiki.
Úlfur segir að börn séu mjög móttekileg fyrir forritun og allir geti lært hana. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGYR ARI
Krakkarnir eru
áhugasamir um
námið auk þess sem það
gefur þeim góða reynslu
út í lífið.
2 kynningarblað A L LT 26. mars 2022 LAUGARDAGUR