Fréttablaðið - 26.03.2022, Page 84

Fréttablaðið - 26.03.2022, Page 84
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Arthur Sveinsson frá Norðfirði, lést á Hjúkrunarheimilinu Grund, 2. mars sl. Útförin hefur farið fram. Þökkum auðsýnda samúð. Rúnar Ármann Arthúrsson Brynja Arthúrsdóttir Rut Arthúrsdóttir og fjölskyldur. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, stjúpmóðir, tengdamóðir, amma og langamma, Rósamunda Kristjánsdóttir Rósa Roðasölum 4, Kópavogi, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði, laugardaginn 19. mars. Útför verður frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 31. mars klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Ljósið, kt. 590406-0740, reikn. 0130-26-410420. Stefán Arndal Kristín Gunnarsdóttir Pétur Júlíus Halldórsson Auður S. Arndal Vignir Örn Guðnason Elísabet S. Arndal Hafþór Þórarinsson Hlíf S. Arndal Jón Sigurðsson Sigrún G. Arndal Sveinn Pálsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Valdemar Hansen læknir, lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold 14. mars sl. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunar- heimilisins Ísafoldar fyrir einstaka umönnun og kærleika í hans langvarandi veikindum. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins, www.hringurinn.is Erna Andrésdóttir Hansen Hlíf Hansen Ásbjörn Björnsson Thelma Hansen Arna Hansen Guðjón Norðfjörð Drífa Hansen Konráð Sigurðsson barnabörn og langafabarn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Tryggvi Björnsson Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, áður til heimilis að Jaðarsbraut 33, Akranesi, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Akranesi, þriðjudaginn 22. mars. Útför hans fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn 5. apríl kl. 13. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Höfða fyrir hlýja og góða umönnun. Streymt verður frá athöfninni á vef Akraneskirkju, www.akraneskirkja.is Helga Bjarnadóttir Bryndís Tryggvadóttir Áki Jónsson Guðbjörn Tryggvason Þóra Sigurðardóttir Tryggvi Grétar Tryggvason Þórey Þórarinsdóttir afabörn og langafabörn. Flugvélin TF-VOR hrapaði yfir Búr- fjöllum þennan dag árið 1973. Sex létust, þar á meðal Björn Pálsson flugmaður. Umfangsmikil leit var gerð að vélinni, en að morgni 27. mars 1973 lögðu tólf flugvélar af stað frá Reykjavík til leitar og tvær þyrlur frá Keflavíkurflugvelli. TF-VOR fannst í Búrfjöllum, norðan Langjökuls. Hún var í heilu lagi en mikið skemmd. Ljóst var að mennirnir sex hefðu látist samstundis og var ástæða óhappsins rakin til mikillar og skyndilegrar ísingar sem leiddi til þess að hreyflarnir misstu afl. Björn Pálsson fæddist 10. janúar árið 1908 og var frumkvöðull í sjúkraflugi á Íslandi. Honum var lýst sem braut- ryðjanda og varð hann landsþekktur fyrir sjúkraflug sitt, oft við hrikaleg skilyrði. Árið 1960 hóf Björn sjúkraflug með TF-VOR, sem var tveggja hreyfla Beech Twin-Bonanza-flugvél. Um mikla byltingu var að ræða í íslensku sjúkraflugi. Þegar Björn lést þann 26. mars árið 1973 hafði hann flutt 3.400 sjúka og slasaða. ■ Þetta gerðist: 26. mars 1973 TF-VOR ferst með sex um borð Frá slysstað í Búrfjöllum, norðan Langjökuls. Allir sex farþegarnir um borð létust. 1876 Lúðurþeytarafélag Reykjavíkur stofnað. Það er talin vera fyrsta hljómsveit á Íslandi. 1920 Varðskipið Þór kom til Vestmannaeyja, en hann er fyrsta björgunar- og varðskip Íslendinga. 1947 Knattspyrnusamband Íslands er stofnað. 1995 Schengensáttmálinn gengur í gildi. 1997 Lík 39 meðlima í nýtrúarhreyfingarinnar Heaven's Gate finnast í Kaliforníu. 2000 Vladimír Pútín kosinn forseti Rússlands. 2002 Íslenska kvikmyndin Reykjavík Guesthouse er frumsýnd. 2003 Félag lesblindra á Íslandi stofnað. 2017 Yfir 700 eru handteknir í víðtækum mótmælum gegn stjórn Pútíns í Rússlandi. 2018 Yfir 100 rússneskir ríkiserindrekar í 20 löndum eru reknir vegna eitrunar Sergej og Juliu Skripal. Merkisatburðir 1.670 hljómsveitir hafa tekið þátt í Músíktilraun- um síðustu fjörtíu ár, eða um 8.350 manns. Músíktilraunir hófu göngu sína árið 1982 og fagna því fertugsaf- mæli í ár. Keppnin í ár hefst í dag með sannkölluðu Pálínuboði tónlistar í Hörpu. benediktboas@frettabladid.sis Músíktilraunir fagna nú fjörutíu ára stórafmæli. Keppnin hófst árið 1982 og er ein elsta tónlistarhátíð og keppni landsins. Þessi rótgróna tónlistarhátíð er vel þekkt af fagfólki innan tónlistar- iðnaðarins, sérstaklega þar sem margt af því fagfólki hefur sjálft tekið þátt í keppninni á einhverjum tímapunkti. Um 1.670 hljómsveitir hafa tekið þátt í Músíktilraunum síðustu fjörutíu ár eða um 8.350 manns. Hátíðin er stökkpallur fyrir ungt tón- listarfólk þar sem það fær tækifæri til að spila við góðar aðstæður, kynnast öðru tónlistarfólki og freista þess að vinna til veglegra verðlauna sem geta hjálpað því í sinni tónlistarvegferð. Hátíðin hefst í dag og er fyrir alla, konur, hán og kalla, krakka með hár og kalla með skalla. Undankvöld Músík- tilrauna verða haldin í Norðurljósasal Hörpu alla helgina og hefjast hálf átta. Litríkt úrslitakvöld verður síðan á sama stað 2. apríl, kl. 17.00. Það má með sanni segja að um Pálínuboð tónlistar sé að ræða þar sem alls konar tónar munu óma áhorfendum til skemmtunar. Um 10-12 hljómsveitir komast í úrslit og hljóta efstu þrjár sveitirnar glæsileg verðlaun. Efnilegustu hljóðfæraleikar- arnir eru einnig valdir af dómnefnd en áhorfendur velja vinsælustu hljómsveit- ina með símakosningu. Undanfarin ár hefur úrslitakvöldinu verið útvarpað um land allt af Rás 2. Músíktilraunirnar veita frábært tæki- færi til þess að fylgjast með grasrótinni í íslensku tónlistarlífi og hafa hljóm- sveitir á borð við Of Monsters and Men, Samaris, Vök, Mínus og Mammút borið sigur úr býtum. Miðaverð á hvert undan- kvöld er 1.500 krónur. ■ Fertugar Músíktilraunir Sunnlenska hljómsveitin RetRoBot fóru með sigur úr býtum í keppninni árið 2012. MYND/ ÁRNÝ FJÓLA ÁSMUNDSDÓTTIR Of Monsters and Men unnu Músík- tilraunir árið 2010, skömmu áður en sveitin vann sér inn til heimsfrægðar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Ungir meðlimir Bróður Svartúlfs 2009. 44 Tímamót 26. mars 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.