Fréttablaðið - 26.03.2022, Síða 84
Faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Arthur Sveinsson
frá Norðfirði,
lést á Hjúkrunarheimilinu Grund,
2. mars sl. Útförin hefur farið fram.
Þökkum auðsýnda samúð.
Rúnar Ármann Arthúrsson
Brynja Arthúrsdóttir
Rut Arthúrsdóttir
og fjölskyldur.
Ástkær eiginkona mín,
móðir okkar, stjúpmóðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Rósamunda Kristjánsdóttir
Rósa
Roðasölum 4, Kópavogi,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði, laugardaginn 19. mars.
Útför verður frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 31. mars
klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Ljósið, kt. 590406-0740, reikn. 0130-26-410420.
Stefán Arndal
Kristín Gunnarsdóttir Pétur Júlíus Halldórsson
Auður S. Arndal Vignir Örn Guðnason
Elísabet S. Arndal Hafþór Þórarinsson
Hlíf S. Arndal Jón Sigurðsson
Sigrún G. Arndal Sveinn Pálsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Valdemar Hansen
læknir,
lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold
14. mars sl. Útför hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hins látna.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunar-
heimilisins Ísafoldar fyrir einstaka umönnun og kærleika
í hans langvarandi veikindum.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Barnaspítalasjóð
Hringsins, www.hringurinn.is
Erna Andrésdóttir Hansen
Hlíf Hansen Ásbjörn Björnsson
Thelma Hansen
Arna Hansen Guðjón Norðfjörð
Drífa Hansen Konráð Sigurðsson
barnabörn og langafabarn.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Tryggvi Björnsson
Hjúkrunar- og dvalarheimilinu
Höfða, Akranesi,
áður til heimilis að Jaðarsbraut 33,
Akranesi,
lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Akranesi,
þriðjudaginn 22. mars. Útför hans fer fram frá
Akraneskirkju þriðjudaginn 5. apríl kl. 13.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hjúkrunar- og
dvalarheimilisins Höfða fyrir hlýja og góða umönnun.
Streymt verður frá athöfninni á vef Akraneskirkju,
www.akraneskirkja.is
Helga Bjarnadóttir
Bryndís Tryggvadóttir Áki Jónsson
Guðbjörn Tryggvason Þóra Sigurðardóttir
Tryggvi Grétar Tryggvason Þórey Þórarinsdóttir
afabörn og langafabörn.
Flugvélin TF-VOR hrapaði yfir Búr-
fjöllum þennan dag árið 1973. Sex
létust, þar á meðal Björn Pálsson
flugmaður. Umfangsmikil leit var
gerð að vélinni, en að morgni 27. mars
1973 lögðu tólf flugvélar af stað frá
Reykjavík til leitar og tvær þyrlur frá
Keflavíkurflugvelli.
TF-VOR fannst í Búrfjöllum, norðan
Langjökuls. Hún var í heilu lagi en
mikið skemmd. Ljóst var að mennirnir
sex hefðu látist samstundis og var
ástæða óhappsins rakin til mikillar og
skyndilegrar ísingar sem leiddi til þess
að hreyflarnir misstu afl.
Björn Pálsson fæddist 10. janúar árið
1908 og var frumkvöðull í sjúkraflugi
á Íslandi. Honum var lýst sem braut-
ryðjanda og varð hann landsþekktur
fyrir sjúkraflug sitt, oft við hrikaleg
skilyrði. Árið 1960 hóf Björn sjúkraflug
með TF-VOR, sem var tveggja hreyfla
Beech Twin-Bonanza-flugvél. Um
mikla byltingu var að ræða í íslensku
sjúkraflugi. Þegar Björn lést þann 26.
mars árið 1973 hafði hann flutt 3.400
sjúka og slasaða. ■
Þetta gerðist: 26. mars 1973
TF-VOR ferst með sex um borð
Frá slysstað í Búrfjöllum, norðan Langjökuls. Allir sex farþegarnir um borð létust.
1876 Lúðurþeytarafélag Reykjavíkur stofnað. Það er talin
vera fyrsta hljómsveit á Íslandi.
1920 Varðskipið Þór kom til Vestmannaeyja, en hann er
fyrsta björgunar- og varðskip Íslendinga.
1947 Knattspyrnusamband Íslands er stofnað.
1995 Schengensáttmálinn gengur í gildi.
1997 Lík 39 meðlima í nýtrúarhreyfingarinnar Heaven's
Gate finnast í Kaliforníu.
2000 Vladimír Pútín kosinn forseti Rússlands.
2002 Íslenska kvikmyndin Reykjavík Guesthouse er
frumsýnd.
2003 Félag lesblindra á Íslandi stofnað.
2017 Yfir 700 eru handteknir í víðtækum mótmælum
gegn stjórn Pútíns í Rússlandi.
2018 Yfir 100 rússneskir ríkiserindrekar í 20 löndum eru
reknir vegna eitrunar Sergej og Juliu Skripal.
Merkisatburðir
1.670 hljómsveitir hafa
tekið þátt í Músíktilraun-
um síðustu fjörtíu ár, eða
um 8.350 manns.
Músíktilraunir hófu göngu sína
árið 1982 og fagna því fertugsaf-
mæli í ár. Keppnin í ár hefst í dag
með sannkölluðu Pálínuboði
tónlistar í Hörpu.
benediktboas@frettabladid.sis
Músíktilraunir fagna nú fjörutíu ára
stórafmæli. Keppnin hófst árið 1982
og er ein elsta tónlistarhátíð og keppni
landsins. Þessi rótgróna tónlistarhátíð
er vel þekkt af fagfólki innan tónlistar-
iðnaðarins, sérstaklega þar sem margt
af því fagfólki hefur sjálft tekið þátt í
keppninni á einhverjum tímapunkti.
Um 1.670 hljómsveitir hafa tekið þátt í
Músíktilraunum síðustu fjörutíu ár eða
um 8.350 manns.
Hátíðin er stökkpallur fyrir ungt tón-
listarfólk þar sem það fær tækifæri til að
spila við góðar aðstæður, kynnast öðru
tónlistarfólki og freista þess að vinna til
veglegra verðlauna sem geta hjálpað því
í sinni tónlistarvegferð.
Hátíðin hefst í dag og er fyrir alla,
konur, hán og kalla, krakka með hár og
kalla með skalla. Undankvöld Músík-
tilrauna verða haldin í Norðurljósasal
Hörpu alla helgina og hefjast hálf átta.
Litríkt úrslitakvöld verður síðan á
sama stað 2. apríl, kl. 17.00. Það má með
sanni segja að um Pálínuboð tónlistar sé
að ræða þar sem alls konar tónar munu
óma áhorfendum til skemmtunar.
Um 10-12 hljómsveitir komast í úrslit
og hljóta efstu þrjár sveitirnar glæsileg
verðlaun. Efnilegustu hljóðfæraleikar-
arnir eru einnig valdir af dómnefnd en
áhorfendur velja vinsælustu hljómsveit-
ina með símakosningu. Undanfarin ár
hefur úrslitakvöldinu verið útvarpað um
land allt af Rás 2.
Músíktilraunirnar veita frábært tæki-
færi til þess að fylgjast með grasrótinni
í íslensku tónlistarlífi og hafa hljóm-
sveitir á borð við Of Monsters and Men,
Samaris, Vök, Mínus og Mammút borið
sigur úr býtum. Miðaverð á hvert undan-
kvöld er 1.500 krónur. ■
Fertugar Músíktilraunir
Sunnlenska hljómsveitin RetRoBot fóru með sigur úr býtum í keppninni árið 2012. MYND/ ÁRNÝ FJÓLA ÁSMUNDSDÓTTIR
Of Monsters and
Men unnu Músík-
tilraunir árið
2010, skömmu
áður en sveitin
vann sér inn til
heimsfrægðar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Ungir meðlimir Bróður Svartúlfs 2009.
44 Tímamót 26. mars 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ