Fréttablaðið - 26.03.2022, Síða 90
Fyrsti bíll Abarth sem
nýtt merki verður
rafúgáfa byggð á Fiat
500 bílnum.
Nýr BMW X1 verður
byggður á endurhann-
aðri útgáfu UKL-undir-
vagnsins sem er undir
núverandi kynslóð en
rafútgáfan fær nýjan
undirvagn.
njall@frettabladid.is
BMW hefur tekið yfir Alpine breyt-
ingafyrirtækið, en Alpine hefur
meðal annars breytt BMW-bílum í
hartnær 60 ár. Fyrstu BMW-bílarnir
með Alpine-hlutum komu fram á
sjónarsviðið árið 1964.
Réttur BMW á merkinu gefur
BMW leyfi að nota nafnið á
BMW-bíla og þess er eflaust
ekki langt að bíða að við
sjáum Alpine-útgáfur í
sýningasölum.
Þegar er samningur í
gangi á milli fyrirtækj-
anna sem rennur út árið
2025, en þangað til mun
Alpine starfa sjálfstætt.
Um 300 manns vinna
hjá Alpine og breytti fyr-
irtækið um 2.000 bílum
fyrir fyrir viðskiptavini
sína. n
BMW yfirtekur Alpine-fyrirtækið
njall@frettabladid.is
Abarth-merkið er á leiðinni að fara
að frumsýna fyrsta bíl merkisins
sem byggður er á rafútgáfu Fiat 500
bílsins.
Bíllinn á að hafa meira af l og
aksturseiginleika og vera með
sportlegra útliti þegar hann kemur
á markað í byrjun næsta árs.
Öflugasta útgáfa Fiat 500 er með
42 kWst rafhlöðu og 116 hestafla
rafmótor svo það er pláss fyrir meira
afl. Hann þarf þó að keppa við bíla
eins og Alpine R5 sem byggir á
Renault 5 sem er með 215 hestafla
mótor.
Fiat 500 er með 320 km drægi
en ólíklegt er að Abarth 500 bæti
nokkru við það. n
Abarth 500 rafbíllinn á leiðinni
Sportleg Abarth
útgáfa byggir á
grunni Fiat 500
rafbílsins.
MYND/ABARTH
Alpine hefur breytt
BMW bílum í næstum
60 ár og byggt stóran
hluta framleiðslu
sinnar á þeim.
njall@frettabladid.is
BMW hefur látið frá sér mynd sem
sýnir hluta útlits nýs raf bíls af
minni gerðinni en hann mun kallast
iX1. Áætlað er að bíllinn fari í sölu
undir lok næsta árs en hann verður
frumsýndur í lok þessa árs ásamt
bensínknúinni útgáfu.
Myndin sýnir að bíllinn er hefð-
bundinn í útliti með breytingum á
grilli sem er kantaðra og minna en
áður. Engar tækniupplýsingar um
bílinn hafa verið gefnar út en búast
má við að hann verði byggður á
endurhannaðri útgáfu UKL-undir-
vagnsins sem er undir X1-bílnum í
dag fyrir bensínútgáfuna.
Rafútgáfan mun fá næstu kynslóð
undirvagns og rafmótora sem gefur
möguleika á allt að 282 hestafla raf-
mótor. n
BMW með mynd af væntanlegum iX1
Breytingar á nýjum BMW iX1 eru ekki miklar frá X1 ef grillið er undanskilið.
MYND/BMW
Honda hefur kynnt til sög-
unnar tvo nýja jepplinga sem
væntanlegir eru á markað á
næsta ári.
njall@frettabladid.is
Honda e:Ny1 er frumgerð rafdrif-
ins jepplings sem mun verða mið-
punktur framleiðslu þeirra á kom-
andi árum. Stærðarflokkur bílsins
er sá sami og fyrir Opel Mokka eða
Hyundai Kona Electric. Bíllinn
verður annar bíll Honda sem er
100% rafdrifinn fyrir Evrópumark-
að, en fyrir er Honda e smábíllinn.
Botnplata nýja jepplingsins verður
byggð á stækkaðri útgáfu botnplötu
Honda e en með stærri rafhlöðu og
meira drægi.
Honda hefur kynninguna með
því að senda frá sér myndir af
frumgerð hans sem sýna að um
Evrópuútfærslu e:NP1 jepplingsins
sé að ræða sem er fyrir Kínamarkað.
Sá bíll er með framdrifi og 68,8 kWst
rafhlöðu og drægi allt að 500 km.
Hvort að hann fái sömu innréttingu
með 15 tommu miðjuskjá er ekki
vitað enda engar myndir birtar af
innréttingu bílsins. Bíllinn byggir
mikið á útliti hans sem og núver-
andi kynslóðar HR-V en nýrrar
kynslóðar hans er að vænta á næst-
unni. Sá bíll mun stækka nokkuð
og keppa nú við bíla eins og Nissan
Qashqai og Kia Sportage. Nýr HR-V
verður þó aðeins seldur sem tvinn-
bíll enda telur Honda að slíkir bílar
eigi enn þá töluvert inni. Ef hann fær
sömu tvinnútfærslu og nýr Honda
Civic verður hann með tveggja lítra
vél sem skilar 181 hestafli og 315 Nm
togi. n
Tveir nýir jepplingar koma
frá Honda á næsta ári
Honda e:Ny1 verður annar rafbíll Honda fyrir Evrópumarkað þegar hann
kemur á næsta ári. MYND/HONDA
Von er á nýrri kynslóð Honda HR-V á næsta ári hérna í Evrópu en styttra er í að bíllinn komi á markað í Bandaríkunum.
MYND/HONDA
njall@frettabladid.is
Vegna stríðsins í Úkraínu hefur
Renault þurft að stöðva aftur fram-
leiðslu í verksmiðju sinni í Moskvu,
sem framleiðir um 20% af bílum
Renault árlega. Eru það bílar eins
og Renault Captur og Arkana, sem
og Dacia Duster, Logan og Sandero.
Renault hafði lokað verksmiðju
sinni þegar stríðið hófst, en svo
opnað hana aftur. Var Renault
gagrýnt harðlega fyrir að halda
framleiðslu áfram, meðal annars af
forseta Úkraínu, Volodímír Selensk-
íj. Renault er að 15% í eigu frönsku
ríkisstjórnarinnar og því þótti það
alvarlegt í ljósi þess að einkarekin
merki eins og Volkswagen, BMW
og Mercedes-Benz höfðu stöðvað
framleiðslu sína.
Renault bílaframleiðandinn á
einnig 67% hlut í rússneska bíla-
framleiðandanum Autovaz sem
framleiðir Lada og hefur um 45.000
manns í vinnu. Autovaz framleiðir
Lada Niva ásamt fimm öðrum gerð-
um og rekur tvær stórar verksmiðj-
ur. Renault hefur fjárfest mikið
í innviðum þeirra og gert fram-
leiðslu þeirra nýtískulegri. Renault
hefur stefnt að því að nota íhluti
frá Renault svipað og hjá Dacia og
því hafa þessar væringar haft mikil
áhrif á framleiðsluna og sett framtíð
hennar í uppnám. n
Renault lokar verksmiðju í Moskvu
og endurskoðar Autovaz-samstarf
Renault-bíla-
risinn gæti þurft
að taka afdrifa-
ríkar ákvarð-
anir vegna
framleiðlu í
Rússlandi á
næstunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
BÍLAR FRÉTTABLAÐIÐ 26. mars 2022 LAUGARDAGUR