Fréttablaðið - 26.03.2022, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 26.03.2022, Blaðsíða 4
Þetta er hrottafengið stríð þar sem rússneski herinn drepur fólk í borgum, þetta ástand minnir mjög á seinna heimsstyrjöldina. Gerard Pokruszyński, sendiherra Póllands á Íslandi 45 prósent Reykjavíkinga eru hlynnt frekari þéttingu byggðar, 35 pró- sent eru því andvígir. 162 milljónir króna er samanlögð bótakrafa á hendur eiganda Bræðraborgarstígs 1. 953 almennir borgarar hafa látist vegna innrásarinnar í Úkraínu samkvæmt tölum SÞ. 101 almennir lögreglumenn starfa hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæð- inu, fækkun um sex frá árinu 2015. 42 alþjóðlegar ráðstefnur verða haldnar á Íslandi í ár, árið 2019 voru þær 34. n Tölur vikunnar n Þrjú í fréttum 100% RAFMÖGNUÐ ÍTÖLSK HÖNNUN FIAT 500e ER FYRSTI FALLEGI RAFMAGNSSMÁBÍLLINN. SJÓN ER SÖGU RÍKARI UMBOÐSAÐILI FIAT Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR S. 590 2300 • FIAT.IS • ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16 TÍMALAUS ÍTÖLSK HÖNNUN MEÐ ALLT AÐ 433 KM DRÆGNI. Salvör Nordal umboðsmaður barna sendi bréf til mennta- og barna- málaráðherra þar sem hún fór fram á að hætt yrði að leggja fyrir svokölluð píp- test í íþróttakennslu grunnskóla. Hún segir að mörg börn upplifi vanlíðan og kvíða fyrir prófunum auk þess sem mörg þeirra upplifi niðurlægingu þegar þau detta út í hlaupinu fyrir framan skólafélaga sína. Al eks and er Mos hen sky kjör ræðismaður Íslands í Hvíta-Rússlandi var í umfjöllun Stundarinnar sagður vera einn áhrifa- mesti auðjöfur heimalands síns og náinn bandamaður forsetans Aleksanders Lúkasjenkó. Utan- ríkisráðuneytið hafnar því að hafa haldið sérstakri verndar- hendi yfir honum þegar kom að refsi aðgerðum. Þá sagði Vinnslu- stöðin að hann hefði reynst vel þegar fyrirtækið hafi misst leyfin til inn f lutn ings til Rúss lands. Elín María Óladóttir móðir nítján ára drengs sem fæddist með skarð í vör og gómi er nú í baráttu við Sjúkratryggingar Íslands um að fá greiðslur til að ljúka aðgerðum vegna meðfæddu gallanna. Sjúkra- tryggingar hafi misst þolinmæðina á meðferðinni. Hefur hún leitað til ráðherra. Ráðuneytið vill ekki veita málinu stuðning. n Við ættum að hætta að tala um innrás Rússa og frekar tala um stríð, segir sendiherra Póllands á Íslandi. Pútín sé búinn að eyðileggja öryggið í heiminum. bth@frettabladid.is ÚKRAÍNA Gerard Pokruszyński, sendiherra Póllands á Íslandi, segir að ef Úkraínumenn gefist ekki upp verði næsta skref Pútíns að myrða konur og börn. Hann telur baráttu- vilja Úkraínumanna gríðarlegan. Ástandið minni á heimsstyrjöldina síðari. „Rússland hefur ráðist á sjálfstætt ríki Úkraínu. Ef Úkraína fellur ekki munu Rússar næst drepa konur og börn. Við Pólverjar lýsum yfir fullri samstöðu með Úkraínu,“ segir sendiherra Póllands á Íslandi. Spurður hvort Pólverjar óttist innrás Rússa í Pólland, svarar Pok- ruszyński að Pólverjar séu öllu undirbúnir. „Mitt svar er þetta. Ef þeir ráðast á okkur þá erum við til- búnir að taka á móti.“ Hann vitnar til framkvæmda- stjóra NATO sem ítreki að ef ráðist verði á eitt ríki innan þess muni allt bandalagið svara. Það sé þó vandamál að ef Pútín ráðist inn í Finnland, þá séu Finnar ekki aðilar að NATO. „Pútín hefur gjörsamlega eyðilagt öryggi heimsins. Okkar verkefni er að finna nýjan arkitektúr að endur- reistu öryggi.“ Ekkert land í nágrenni Úkraínu hefur tekið við öðrum eins fjölda flóttamanna og Pólland. Talið er að úkraínskir f lóttamenn í Póllandi séu nú á þriðju milljón og hafa Pól- verjar af miklu örlæti opnað híbýli sín fyrir f lóttafólkinu. Hins vegar telur sendiherrann að sú staða gæti komið upp að fjöldi úkraínskra flóttamanna tvöfaldist. „Það er áætlað að nú hafi um 10 milljónir manna misst heimili sitt. Ef Pútín ræðst líka á vesturhluta Úkraínu má vænta þess að aðrar 10 milljónir f lóttamanna bætist við. Evrópa og allur heimurinn þarf að taka á móti þessu fólki,“ segir Ger- ard Pokruszynski. Sendiherrann segist hafa verið í Úkraínu. Hann hafi sjálfur kynnst hugrekki þjóðarinnar. „Ég vissi þegar Pútín fór fram að Úkraínumenn myndu berjast og þeir munu berjast af enn meiri ákefð ef þeir geta verið vissir um að flóttafólkið, konur þeirra og börn, séu í öruggum höndum. Það er fjöldaverkefni okkar allra að verja þessi líf.“ Bara í Póllandi eru nú um 700.000 f lóttabörn frá Úkraínu. Pólskt skólakerfi, líkt og f leiri innviðir, er undir miklu álagi en það er til bóta að margir úkraínskir kennarar starfa nú í Póllandi. Varðandi þátt Íslands í mót- töku flóttafólks lýsir sendiherrann ánægju með að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hafi ákveðið að veik börn frá Úkraínu hljóti skjól á Íslandi. „Sá flutningur er nú í bígerð,“ segir Pokruszynski. Hann segir að um 300 Úkraínu- menn hafi búið á Íslandi fyrir stríð- ið. Flóttinn hafi nú þegar tvöfaldast og muni að líkindum vaxa mikið. „Þetta er harmleikur – við getum kallað þetta hernaðaraðgerðir eða krísu en við ættum að kalla þetta stríð af því að þetta er stríð. Þetta er hrottafengið stríð þar sem rússneski herinn drepur fólk í borgum, þetta ástand minnir mjög á seinni heims- styrjöldina,“ segir Pokruszynski. n Sendiherra Póllands á Íslandi segir ástandið minna á heimsstyrjöldina Sendiherra Póllands á Ís- landi segir að Pólverjar séu viðbúnir innrás Pútíns í Pólland. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK 4 Fréttir 26. mars 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.