Fréttablaðið - 26.03.2022, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 26.03.2022, Blaðsíða 10
Ef maður er bólu- settur eru allir mjög slakir, það er frekar verið að einblína á þá óbólu- settu í sambandi við tak- markanir. Halldór Arnarsson Fjöldi Covid-tilfella í Evrópu eykst hratt. Svæðisstjóri Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunarinnar í Evrópu telur ástæðuna hratt afnám sam- komutakmarkana en er þó bjartsýnn á að faraldurinn sé að líða undir lok. birnadrofn@frettabladid.is COVID-19 Alþjóðaheilbrigðisstofn- unin (WHO) segir að fjöldi Covid- 19 tilfella sé að aukast hratt hjá um þriðjungi Evrópuþjóða eftir að sam- komutakmarkanir, grímuskylda og sóttvarnareglur hafi víða verið felldar úr gildi. Lönd sem stofnunin nefnir sér- staklega og segir þurfa að hafa áhyggjur eru Kýpur, Þýskaland, Grikkland, Frakkland, Bretland, Ítalía og Írland. Hans Kluge, svæðisstjóri Alþjóða- heilbrigðismálastofnunarinnar í Evrópu, telur þær þjóðir sem eigi það sameiginlegt að sjá mestu aukn- ingu Covid-tilfella einnig eiga það sameiginlegt að hafa nýlega farið úr því að búa við miklar samkomu- takmarkanir og harðar sóttvarna- reglur í það búa við nánast engar takmarkanir. Í síðustu viku fjölgaði staðfestum tilfellum Covid í Evrópu afar hratt og voru þá orðin 5,4 milljónir talsins samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismála- stofnuninni, í lok febrúar voru þau 4,9 milljónir. Í síðustu viku létust yfir tólf þúsund manns af völdum Covid-19 í Evrópu. Þrátt fyrir þessar háu tölur seg- Covid-tilfellum fer ört fjölgandi innan Evrópu © GRAPHIC NEWS *staðfest tilfelli í Evrópu síðustu sjö daga Heimild: Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO), Bloomberg, Our World in Data Daglegur öldi staðfestra tilfella (á hverja milljón íbúa, meðaltal síðustu sjö daga þann 22. mars) Kýpur Þýskaland Grikkland Frakkland Bretland Ítalía Írland Evrópa Bandaríkin 4,342,61 2,257,45 2,121,01 1,467,42 1,252,34 1,189,79 1,085,71 979,27 93,38 Lönd sem WHO nefnir sérstaklega % af fullbólusettum íbúum Til samanburðar Ný tilfelli* 5,4 m Úr 4,9 m í lok feb. 00 72 75 73 78 72798065 65 Um þriðjungur Evrópulanda sér mikla ™ölgun í tilfellum Covid-19 eœir að takmörkunum var ažétt hratt. Covid-tilfellum ölgar í Evrópu ist Kluge bjartsýnn. Þar spili inn í hjarðónæmi, sem sé að byggjast upp með bólusetningum, vetur sé að enda og sumar á næsta leiti ásamt því að Omíkron-afbrigði veirunnar sé vægara en fyrri afbrigði. Í Grikklandi var meðaltal dag- legra nýrra Covid-tilfella þann 22. mars um 2.100 á dag. Þar hafa um 73 prósent verið fullbólusett. Halldór Arnarsson býr í Grikk- landi þar sem hann stundar nám. Hann segir aukinn fjölda smita ekki hafa áhrif á hans daglega líf, enn séu í gildi sömu takmarkanir og þegar hann f lutti til landsins, í byrjun október. Á mánudaginn tilkynntu yfirvöld í Grikklandi framlengingu núgildandi takmarkana til 4. apríl. „Bólusetningarvottorðið þarf maður að sýna nánast alls staðar ég þarf að sýna það til að komast í skólann og líka til að fara á kaffihús og bari þó maður ætli að sitja úti,“ segir Halldór og bætir við: „Ef maður er bólusettur eru allir mjög slakir, það er frekar verið að einblína á þá óbólusettu í sambandi við takmark- anir.“ Í Þýskalandi þar sem meðalfjöldi daglegra tilfella er enn hærra en í Grikklandi er sagan önnur. Á föstu- daginn fyrir viku voru samþykkt ný lög sem heimila niðurfellingu nán- ast allra sóttvarnaaðgerða í landinu. Yfirvöld í Þýskalandi hafa þó gefið út að enn verði grímuskylda í almenningssamgöngum og á sjúkrahúsum og hjúkrunarheim- ilum. Grímuskylda er ekki lengur við lýði í verslunum eða á veitinga- stöðum. ■ Forgangssvið 2022 eru: Efla samstarf fræðsluaðila í þróun stafrænnar hæfni í kennslu, óháð búsetu. Gerð er krafa um samstarf minnst þriggja fræðsluaðila. Gerð og þróun rafrænna námsgagna, með áherslu á talað mál og menningu, í íslenskukennslu fyrir innflytjendur. Sérstök áhersla á neðri þrep evrópska tungumálarammans (A1, A2, B1). Hæfnigreiningar og starfaprófíllar í samstarfi atvinnulífs og fræðsluaðila eða Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Við mat á umsóknum er m.a. litið til þess hvernig þær falla að markmiðum 2. greinar laga nr. 27/2010 um framhaldsfræðslu, faglega þekkingu og reynslu umsækjanda af að vinna verkefni sem sótt er um styrk til. Að auki þurfa umsóknir að uppfylla eftirfarandi skilyrði: Vera vandaðar og skýrt fram settar. Skýr tenging við markhóp laga um framhaldsfræðslu. Mæti sýnilegri þörf fyrir úrræði í framhaldsfræðslu. Hafi skýr skilgreind markmið og skilgreinda verkefnastjórn. Hafi skýra kostnaðar-, verk- og tímaáætlun. Skili hagnýtri afurð og verði vel kynnt. Verkefnin skulu vera opin öllum fræðsluaðilum, mega ekki gera kröfu um umtalsverðan eða íþyngjandi kostnað, eða flókna sérfræðiþekkingu fyrir þá sem nýta sér afurðina. Eingöngu er tekið við umsóknum á rafrænu formi. Umsóknareyðublað, lög um framhaldsfræðslu nr. 27/2010 og nánari upplýsingar um vinnuferli og viðmið vegna styrkumsóknar er að finna á vef Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, www.frae.is Umsóknarfrestur er frá 28. mars og til 1. maí. Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Fræðslusjóði til nýsköpunar- og þróunarverkefna. Styrkir Þórólfur Guðnason, sótt- varnalæknir helenaros@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Þórólfur Guðna- son sóttvarnalæknir segist svolítið smeykur við umfang inflúensunnar, útbreiðsluna og alvarleikann, sem gæti orðið meiri en áður. „Vegna þess að því að við höfum ekki verið með inflúensuna í gangi síðastliðin tvö ár. Það er alveg mögulegt en það er kannski of snemmt að segja til um það,“ segir hann. Nú þegar er búið að staðfesta til- felli inflúensu hjá hátt í 300 manns að sögn Þórólfs, sem telur inflúens- una koma bratt inn. Aðspurður hvort möguleiki sé á að ónæmi fólks sé lélegra gagnvart inflúensu nú frekar en áður vegna tveggja ára pásu svarar Þórólfur játandi. „Jú, það er ástæða fyrir því að menn óttast að útbreiðslan geti orðið meiri og alvarleikinn kannski meiri því að við höfum ekki verið með neina inflúensu síðastliðin tvö ár, þannig gæti ónæmi verið lakara núna af því að svona reglubundnar sýkingar efla ónæmið í samfélaginu og efla þannig viðnámsþróttinn.“ Þórólfur segir ákveðna möguleika á því að útbreiðsla inflúensunnar verði meiri og þá sé einnig möguleiki á því að veikindin gætu orðið verri. „Við þurfum bara að vera við því búin. Við höfum verið að hvetja til bólusetningar og það er búið að bólusetja mjög marga, eitthvað um 85 þúsund manns, og enn þá eru til um tíu þúsund skammtar í sam- félaginu og aldrei verið bólusett eins mikið og núna.“ ■ Þórólfur er smeykur við inflúensuna kristinnhaukur@frettabladid.is VESTMANNAEYJAR Próf kjör Sjálf- stæðisflokksins í Vestmannaeyjum fer fram í dag. Flokkurinn klofnaði í Eyjum árið 2018 vegna óánægju hluta flokksmanna með ákvörðun um uppstillingu. Hrapaði flokkur- inn úr rúmlega 73 prósenta fylgi í 45 og hefur verið í minnihluta á kjör- tímabilinu. Þeir sem vildu próf kjör komu að stofnun bæjarmálafélagsins Fyrir Heimaey undir forystu Írisar Róbertsdóttur. Listinn fékk rúm- lega 34 prósent og leiðir meirihluta með Eyjalistanum. Klofningurinn olli miklum sárindum og hörð orð voru látin falla. Að sögn heimildar- manna sem til þekkja eimir enn eftir af þessum erfiðleikum milli meiri- og minnihluta í bæjarstjórn. Að þessu sinni gefa tvö kost á sér til að leiða listann. Annars vegar Hildur Sólveig Sigurðardóttir, sjúkraþjálfari og núverandi oddviti. Hins vegar Eyþór Harðarson, útgerð- arstjóri hjá Ísfélagi Vestmannaeyja. Tveir aðrir frambjóðendur tilgreina ekki það sæti sem þeir sækjast eftir en alls gefa 15 kost á sér. ■ Prófkjör á nýjan leik eftir klofning Elliða Vignissyni bæjarstjóra var stillt upp í 5. sætið en hann náði ekki kjöri. MYND/SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN 10 Fréttir 26. mars 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.