Fréttablaðið - 26.03.2022, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 26.03.2022, Blaðsíða 28
Þær Þórunn Högnadóttir, Dís- ella Lárusdóttir, Þórunn Erna Clausen, Berglind Ólafsdóttir og Christina Gregers eiga það sameiginlegt að hafa eignast barn eftir fertugt og allar segjast þær meðvitaðri í dag um hversu hratt tíminn líði. Velmegun síðustu ára- tuga hefur bæði birst í hækkandi dánartíðni þjóðarinnar sem og hækkandi aldri mæðra. En bæði eru konur farnar að fresta barneignum lengur auk þess sem þróun virðist í þá átt að dreifa þeim yfir lengra tímabil, jafnvel halda þeim áfram lengur. Við hugsum betur um okkur og lifum lengur, skiptum um starfs- frama og jafnvel maka og því ekki að bæta við barni á seinni hlut- anum? Auðvitað eru ýmsir kostir og gallar við að eignast barn upp úr tvítugu rétt eins og upp úr fertugu og ólíku saman að jafna. Mjóbakið er klárlega betra upp úr tvítugu en foreldrar upp úr fertugu eru líklegri til að vera búnir að koma sér vel fyrir og geta gefið barninu óskipta athygli án þess að lífsgæðakapp- hlaupið trufli um of. Náttúran segir okkur að eignast börn fyrr enda bæði líkur á þungun og kvillalítilli meðgöngu meiri þegar konur eru yngri. Hætta á fóst- urgöllum eykst með hækkandi aldri og svo er auðvitað líklega meira eftir af ævinni þegar þú eignast barn um tvítugt heldur en um fertugt, en auðvitað er ekki á vísan að róa með nokkuð slíkt. Ef við þó horfum á ytri aðstæður, búsetuform, atvinnu og fjárhag, þá erum við augljóslega betur í stakk búin til að taka á móti nýjum ein- Meðvitaðar um að gera sem mest úr tímanum staklingi þegar aldurinn færist yfir. Partístandið og prófgráðurnar eru að mestu að baki og fókusinn meira inn á við eða á fjölskylduna. Flestir hafa minni fjárhagsáhyggjur og eru almennt öruggari í eigin skinni. Ef markmiðið er að koma þaki yfir höfuðið og klára að mennta sig áður en barneignir eru teknar föstum tökum eru allar líkur á að þær frest- ist allavega fram yfir þrítugt. Blaðamaður, sem sjálf bætti við örverpi eftir fertugt, settist niður með fimm konum sem allar eiga það sameiginlegt að hafa eignast barn eftir fertugt. Sögur þeirra eru ólíkar eins og gefur að skilja, sum börn plönuð, önnur voru óvæntur glaðn- ingur á meðan enn öðrum þurfti að berjast fyrir. Allar eru mæðurnar þó sammála um að aukinn þroski hafi gert ferlið ánægjulegra, og allar nema ein hafa þær samanburðinn af því að eignast börn á yngri árum. Aldurinn … Berglind Ólafsdóttir heldur á frum- burði sínum, Ísey Von sem er sex mánaða gömul. Hún er í mömmu- hóp með öðrum konum yfir fertugu og segist þar heyra að þær upplifi annað viðhorf en hún sem eignaðist sitt fyrsta barn 44 ára gömul. „Þær hafa margar rekist á það við- horf hversu gamlar þær séu á meðan ég fæ meira að heyra að það sé æðis- legt að ég hafi loks eignast barn.“ Þórunn Högnadóttir eignaðist dótturina Leuh Mist, sitt fjórða barn, 44 ára gömul: „Þegar ég eign- aðist mitt fyrsta barn var ég að læra á bíl. Það eru 28 ár á milli elsta og yngsta hjá mér. Tengingin á milli þeirra tveggja er ótrúleg. Elsti sonur minn á líka tvö börn og þau eru bara eins og systkini Leuh,“ segir Þórunn um ömmubörnin sem eru orðin tvö. Þórunn Clausen: „Ég var að verða 45 ára á árinu sem Hrefna Margrét fæddist en fyrir átti ég tvo syni og fjögur stjúpbörn svo þetta er svona Von Trapp-fjölskylda.“ Dísella Lárusdóttir eignaðist þriðja barnið, dótturina Snædísi Lind, þegar hún var 43 ára: „Ég upp- lifi helst að ég sé yfirleitt elst af leik- skólaforeldrunum og finnst það voða skrítið. En það er þó enginn að benda mér á það.“ Christina Gregers var fertug þegar örverpið, dóttirin Arnhildur, kom í heiminn en fyrir átti hún tvo syni og einn stjúpson: „Ég upplifði þetta með aldurinn meira á meðgöng- unni og var þá mun meðvitaðri um það hvað mömmurnar í mömmu- hópnum og meðgöngusundinu væru ungar. Hins vegar fattaði ég hvaða árgerð ég er þegar dóttir mín byrjaði í leikskólanum og ein yndis- leg mamma sagðist kannast við mig því ég þekki mömmu hennar,“ segir hún og hlær. Þórunn Clausen: „Ég upplifi mig ekkert gamla – tengi bara ekki við það að vera gömul mamma.“ Berglind: „Nei, maður er alltaf bara maður sjálfur.“ Christina: „Ég man þegar ég labb- aði inn í 20 vikna sónarinn, hversu ungir foreldrarnir sem biðu voru. Ég leit á manninn minn og sagði: „Shit, hvað við erum gömul!“ en hann svaraði á móti: „Hvað eru svona ung börn að eignast börn?“ Það er miklu betra viðhorf.“ Berglind: „Við fundum fyrir þessu þegar við fórum í para-meðgöngu- jóga. Þar voru flestallir um tvítugt – þrítugt og við vorum samtals 99 ára,“ segir hún og hlær. Þórunn Clausen: „Ég er líklega eitthvað veruleikafirrt og held greinilega að ég sé yngri en ég er.“ Þungunin og meðgangan … Berglind: „Ég var búin að bíða svo lengi eftir henni að ég var yfirfull af ást sem var farin að flæða yfir börn vinkvenna minna,“ segir hún um litlu dótturina. „Ég var svo tilbúin og held að það sé ekki hægt að elska meira.“ Berglind, sem kynntist mannin- um sínum fyrir nokkrum árum, var alltaf ákveðin í að vilja verða móðir. Það gekk þó ekki hratt fyrir sig og fór hún í alls níu tæknifrjóvganir. „Hún er sú níunda,“ segir Berglind og horfir hugfangin á dótturina í fanginu. „Ég missti ítrekað en fór að lokum í aðgerð í Grikklandi sem líklegast hjálpaði því að verða ófrísk og klára meðgöngu. Ég var alltaf alveg ákveðin í að halda áfram og gefast ekki upp, sérstaklega eftir að ég kynntist einni konu sem fór í tólf skipti, hún var mér hvatning um að halda áfram. Ég gerði þetta bara að vinnunni minni. Ég var orðin nógu þroskuð og búin að ganga í gegnum það margt í lífinu til að takast á við þetta.“ Þórunn Högna : „Það var allt annað en þungun sem kom upp í huga minn. En ég hafði verið svo slöpp og rosalega f lökurt. Ég gat hvorki drukkið kaffi né borðað margar tegundir matar. Ég var búin að taka próf sem var neikvætt og ég var farin að halda að það væri eitthvað alvarlegt að mér. En svo tók ég annað próf sem var jákvætt. Ég hringdi þá í manninn minn sem var himinlifandi en ég sagði á móti: „Ertu að grínast?““ segir hún og hlær. „Ég var ekki eins ánægð og hann þarna fyrst. Hann var svo fljótlega til í annað, en ég bað hann þá að panta tíma og láta klippa á,“ segir hún og hlær. Berglind Ólafsdóttir átti dótturina Íseyju Von 44 ára en fyrir átti maðurinn hennar þrjú börn. Christina Gregers við hlið hennar eignaðist dóttur sína Arnhildi fertug en fyrir átti hún tvo syni og einn stjúpson. Þórunn Högna, í miðið, átti Leuh Mist 44 ára gömul en fyrir átti hún þrjú börn. Dísella Lárusdóttir eignaðist dóttur sína Snædísi Lind 43 ára en fyrir átti hún tvö börn og Þórunn Erna Clausen, lengst til hægri, eignaðist dótturina Hrefnu Margréti, í fangi hennar, þegar hún var 44 ára en fyrir átti hún tvo syni og fjögur stjúpbörn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Björk Eiðsdóttir bjork @frettabladid.is Ég var ekki eins ánægð og hann þarna fyrst. Hann var svo fljót- lega til í annað, en ég bað hann þá að panta tíma og láta klippa á. Þórunn Högna 28 Helgin 26. mars 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.