Fréttablaðið - 26.03.2022, Page 56
Skrifstofustjóri
húsnæðis- og skipulagsmála
Hæfnikröfur
• Háskólapróf sem nýtist í starfi. Framhaldsmenntun skilyrði
eða umfangsmikil stjórnunarreynsla sem nýtist í starfi.
• Árangursrík reynsla af stjórnun.
• Árangursrík reynsla af stefnumótun og áætlanagerð.
• Framsýni, drifkraftur, metnaður og skipulagshæfni.
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur.
• Afburða hæfni til að tjá sig og eiga samskipti í ræðu
og riti á íslensku og ensku.
• Hæfni til að skapa liðsheild ásamt jákvæðu
og lausnamiðuðu hugarfari.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Ábyrgð á stjórnun og rekstri skrifstofunnar í samræmi
við áætlanir og markmið.
• Umsjón með stefnumótun í málaflokkum, áætlunum,
umbótum og framtíðarþróun.
• Forgangsröðun og framkvæmd verkefna í samræmi
við áætlanir og skipulagning á faglegu starfi.
• Tekur virkan þátt í samhæfingu áætlana á málefnasviði
ráðuneytisins.
• Leiðir víðtækt samráð við stofnanir og hagaðila.
Innviðaráðuneytið leitar að öflugum stjórnanda, sem hefur brennandi áhuga á húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsmálum
til að stjórna nýrri skrifstofu húsnæðis- og skipulagsmála og taka þátt í að móta framtíðarstefnu í þessum málaflokkum.
Nýtt og öflugt innviðaráðuneyti tekst á við nýja tíma. Hlutverk þess er að líta eftir, upplýsa og leiða samfélagið til aukinna
lífsgæða. Í ráðuneytinu fara saman mikilvægir málaflokkar, s.s. húsnæðismál, mannvirkjamál, skipulagsmál, sveitarstjórnarmál,
byggðamál og samgöngumál. Stefnur og áætlanir í þessum málaflokkum eru samhæfðar.
Skrifstofa húsnæðis- og skipulagsmála er ný skrifstofa sem mun hafa umsjón með stefnumótun á sviði húsnæðis-,
mannvirkja- og skipulagsmála og framkvæmd laga í samræmi við stefnu stjórnvalda og alþjóðlegar skuldbindingar.
Innviðaráðuneytið
Skipað verður í embættið til fimm ára frá og með 1. júní 2022. Um er að ræða fullt starf.
Ráðuneytið hvetur alla hæfa einstaklinga til að sækja um, óháð kyni.
Umsóknarfrestur er til og með fimmtudeginum 31. mars nk. Umsókn skal skila rafrænt
á irn@irn.is. Nánari upplýsingar um starfið á starfatorg.is.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri,
ragnhildur.hjaltadottir@irn.is eða 545-8200.
RÁÐNINGARRÁÐGJÖF RANNSÓKNIR
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum
við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan
bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini
til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.
20 ATVINNUBLAÐIÐ 26. mars 2022 LAUGARDAGUR