Fréttablaðið - 26.03.2022, Side 80
Hún kaup-
ir stóran
poka af
hvítlauk
frá bónda,
tekur
hýðið af og
malar
hann með
mortéli,
svo þurrk-
ar hún
hvítlauk-
inn í sól-
inni og
malar
hann svo
aftur.
Mig langaði að gera
eitthvað annað en að
sitja allan daginn við
tölvu að forrita.
Safa Jemai er hugbúnaðar
verkfræðingur frá Túnis sem
lætur verkin sannarlega tala
en meðfram framkvæmda
stjórastöðu í hugbúnaðar
geiranum hefur hún
stofnað fyrirtækið Mabruka í
kringum heimagerð krydd frá
heimalandi sínu.
Safa Jemai vissi það strax í
barnæsku að hún vildi fara
óhefðbundnar leiðir í líf
inu. Þrátt fyrir ungan aldur
hefur hún afrekað ótrúlega
margt og er hvergi nærri hætt. Safa
er fædd í Túnis, nyrsta landi Afríku.
Hún hefur allt frá barnsaldri verið
metnaðarfullur námsmaður, haft
gaman af náminu og sett sér mark
mið um góðan námsárangur. Sama
má segja um önnur markmið sem
hún setur sér, hún lætur verkin tala.
Safa er menntuð sem hugbún
aðarverkfræðingur og starfar sem
framkvæmdastjóri hjá hugbún
aðarfyrirtækinu Vikonnekt sem
tók meðal annars þátt í Gullegg
inu með Treatablyappinu, sem er
hugsað fyrir einstaklinga sem glíma
við króníska skjaldkirtilssjúkdóma.
Safa er á 28. aldursári, búsett á
Íslandi og á íslenskan kærasta. Nýj
asta verkefnið sem Safa hefur tekið
sér fyrir hendur er að stofna eigið
fyrirtæki, Mabruka, sem flytur inn
heimagerð krydd frá Túnis og hafa
þau slegið í gegn.
„Ég lærði hugbúnaðarverkfræði
í háskólanum í Túnis sem var bæði
erfitt og krefjandi,“ segir Safa sem á
einn bróður og tvær systur í Túnis
og hefur alltaf verið mjög náin bróð
ur sínum. „Síðan ég var barn langaði
mig til að gera eitthvað öðruvísi, að
búa til eitthvað sérstakt, því að mig
langaði að gera foreldra mína stolta
af mér. Ég hef líka verið heppin með
fjölskylduna sem hefur stutt við
bakið á mér, líka þegar ég ákvað að
flytja að heiman.“
Vann fyrst í gróðurhúsi
Safa er dolfallin yfir fegurð Íslands
og hefur eignast marga góða vini á
þeim tíma sem hún hefur búið hér.
En hvers vegna lá leið hennar til
Íslands?
„Ég var 22 ára gömul þegar ég sá
myndir af Íslandi í fyrsta sinn á fés
bókarsíðu. Ég var alveg heilluð af
þessu fallega og einstaka landi. Á
þessum tíma var námið erfitt og ég
var orðin þreytt á því. Mig langaði
að gera eitthvað annað en að sitja
allan daginn við tölvu að forrita. Ég
sá að Aiesec var að auglýsa eftir fólki
í sjálfboðaliðastarf sem vildi koma
til Íslands og vinna í gróðurhúsi. Ég
sótti um, fékk starfið og kom fyrst til
Íslands í júní árið 2017 og var í Hvera
gerði í þrjá mánuði þar sem ég vann
sem „Camp leader“ við að aðstoða
sjálfboðaliða og vinna í gróðurhúsi.
Þetta var ein af bestu ákvörðunum
sem ég hef tekið í lífinu. Þetta var
gullið tækifæri til að læra um annan
menningarheim og öðruvísi bak
grunn fólks. Ég fór heim til Túnis
eftir þessa dvöl og það var erfitt að
kveðja vini mína sem ég kynntist hér
á Íslandi á þessum tíma. Mig langaði
að kynnast landinu betur. Eftir að
hafa hugsað mig vel um ákvað ég að
tala við mömmu og sagði: Mig langar
að fara aftur til Íslands og prófa eitt
hvað nýtt. Ég sótti um nám á Íslandi
og kom aftur í ágúst 2018. Nýtt ævin
týri hófst.“
Besta leiðin til að læra íslensku
„Mér var tjáð að ég þyrfti fyrst að
læra íslenskuna áður en ég héldi
áfram að læra hugbúnaðarverk
fræði, sem ég gerði. Ég vissi ekkert
hvað beið mín, fyrir mér var þetta
spennandi, ég var 23 ára og tilbúin
í allt. Ég átti mér eitt markmið sem
var að skilja vel íslenska menningu
og eignast fleiri vini. Ég vissi að ef
ég vildi ná þessu markmiði þyrfti
ég fyrst að læra tungumálið og það
hef ég gert en fyrir talaði ég arabísku,
frönsku, ensku og smá þýsku.“
Safa tók eitt ár í íslenskunámi í HÍ
en þar lærði hún málfræði og beyg
Verkefnið sprottið af ást
Safa er fædd í Túnis sem er nyrsta landið í Afríku og hefur allt frá barnsaldri verið metnaðarfullur námsmaður. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Nýjasta verkefnið sem Safa hefur
tekið sér fyrir hendur er að stofna
eigið fyrirtæki, Mabruka, sem flytur
inn heimagerð krydd frá Túnis.
Mamma Söfu, Mabruka, hefur tekið
fullan þátt í þessu með henni ásamt
bróður hennar Yosri. MYND/AÐSEND
ingu orða. „Þetta var besta leiðin
til að læra íslenskuna almennilega.
Árið 2019 starfaði ég jafnframt við
liðveislu og aðstoðaði fatlaðan ein
stakling og náði mjög góðum tökum
á íslenskunni enda samskiptin náin.
Eftir átta mánuði var ég orðin mjög
fær í íslenskunni.“
Heimagerð krydd frá Túnis
„Þegar ég f lutti til Íslands tók ég
góðan tíma til að upplifa íslenska
menningu. Það liðu tvö ár áður en ég
heimsótti fjölskyldu mína til Túnis
og það var magnað. Þegar þú býrð í
20 ár á sama stað hættirðu stundum
að sjá hlutina í kringum þig. Mamma
eins og flestar mömmur elskar að
elda góðan mat fyrir börnin sín. Í
þessari heimsókn fann ég hvað mat
urinn hennar var bragðgóður, hún
malaði ferskan chilli og setti það út
í kúskús, fékk hvítlauk frá nágranna
sem ræktar hvítlauk heima hjá sér og
notaði. Mömmu finnst mikilvægt að
fá ávallt bestu hráefnin og búa til sín
eigin krydd.
Ég var úti í tíu daga og kom til baka
til Íslands með margar tegundir
af kryddi sem mamma gaf mér. Ég
byrjaði strax að prófa kryddin með
íslensku hráefni, eins og bleikju,
þorski, kjöti og íslensku grænmeti.
Útkoman var frábær og ég fór að
deila kryddinu með kærastanum
mínum og vinkonum. Allir voru
alsælir að fá að prófa ný og spenn
andi brögð. Við kölluðum þetta
„Game changer“.
Í framhaldi langaði mig að leyfa
fleirum að smakka kryddin að heim
an, sannfærð um að ef Íslendingar
fengju að smakka kryddin frá Túnis
myndu þeir finna ný brögð og nýja
matarupplifun. Eftir að hafa ígrund
að þetta mjög vel ákvað ég að hefja
innflutning á kryddum frá Túnis.
Þráinn Freyr Sigfússon, eigandi Óx
og Sumac, hvatti mig líka áfram
þegar ég nefndi þetta við hann og
var strax spenntur fyrir vörunni. Í
framhaldi hóf ég að skoða að stofna
fyrirtæki sem er risavaxið verkefni.
Ég var heppin að fá bróður minn til
að aðstoða mig og leita ráðgjafar,
hjálp hans hefur verið ómetanleg.
Þetta verkefni er sprottið af ást beint
frá hjartanu.“
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.is
Mabruka eftir móður Söfu
Móðir Söfu gerir kryddin frá grunni
og aldagamlar hefðir eru í for
grunni. „Hún vill alltaf gera hluti
eins og í gamla daga og vill ekki
breyta neinu. Til dæmis kaupir hún
stóran poka af hvítlauk frá bónda,
tekur hýðið af og malar hann með
mortéli, svo þurrkar hún hvít
laukinn í sólinni og malar hann svo
aftur. Allt sem hún gerir er gert með
höndunum.“
Safa segir það ekki hafa verið
auðvelt að finna nafn á fyrirtækið.
„Þetta var ekki einfalt verkefni. Fólk
í kringum mig sagði að það væri best
að nefna það eftir mömmu, hún
heitir Mabrúka (Mabrouka á arab
ísku). Mér fannst það skrítið vegna
þess að nafnið hennar mömmu er
of persónulegt og ég prófaði margt
annað, en það var ekkert sem pass
aði vel nema Mabrúka svo það var
niðurstaðan að lokum og ég er
alsæl.“
Safa lagði mikla áherslu á að hafa
umbúðirnar umhverfisvænar. „Við
erum mjög lánsöm með hönnuðinn
okkar, Hönnu, sem er virkilega hug
myndarík og frábær samstarfsaðili.
Saman tókst okkur að hanna flott
vörumerki og lógó. Eitt af erfiðustu
verkefnunum var að finna umhverf
isvænar og flottar umbúðir. Flestir
eru að nota plast eða gler. Okkur
langaði ekki að nota plast og eftir
langa leit og vangaveltur kom hug
myndin um að nota viðarstauka.
Við fundum aðila sem er að fram
leiða viðarstauka úr ólífutrjám.
Hugmyndin var að við myndum
nota viðarstauka og áfyllingu í
pappírspokum. Viðskiptavinir
kaupa því bara einu sinni viðar
stauk eftir tegund og svo áfyllingu
í pappírspoka. Þetta er umhverfis
væn og sjálfbær aðferð.“ ■
40 Helgin 26. mars 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ