Morgunblaðið - 01.04.2022, Side 10

Morgunblaðið - 01.04.2022, Side 10
Morgunblaðið/Árni Sæberg Hafnarfjörður Færanlegu stofurnar verða settar norðan við skólahúsið. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Barnaskóli Hjallastefnunnar í Hafn- arfirði þarf ekki að fækka nemend- um næsta vetur, eins og óttast var um tíma. Hjallastefnan ætlar að út- vega skólanum átta færanlegar skólastofur, alls 142 fermetra, sem koma m.a. í staðinn fyrir leiguhús- næði sem ekki er lengur í boði. Stof- urnar verða settar við norðurenda skólahússins. „Við erum komin vel á veg í sam- vinnu við sveitarfélagið að leysa þetta mál,“ segir Hildur Sæbjörg Jónsdóttir, skólastjóri barnaskóla Hjallastefnunnar í Hafnarfirði. Auk þess að fá stöðuleyfi fyrir færanlegu skólastofurnar er einnig verið að ræða við sveitarfélagið um varanlega framtíðarlausn fyrir skólann. „Þetta þýðir að yngstu nemend- urnir komast inn í leikskóla Hjalla- stefnunnar samkvæmt áætlun í haust og fimm ára börnin munu flytj- ast yfir í húsnæði barnaskólans,“ sagði Hildur. Í barnaskóla Hjalla- stefnunnar í Hafnarfirði er 1.-4. bekkur og tveir bekkir í hverjum ár- gangi. Grunnskólabörnin eru 86 tals- ins í dag. Fimm ára nemendurnir eru 36 talsins, 19 drengir og 17 stúlkur. Reiknað er með að fimm ára nem- endurnir verði 44 á næsta skólaári. Starfið með fimm ára börnunum er leikskólastarf þótt það sé í húsnæði með grunnskólanum. Þrír barnaskólar starfa innan Hjallastefnunnar og eiga þeir það sameiginlegt að kenna fimm ára nemendum í sama húsnæði og grunnskólabörnum. Hildur sagði að það hafi gefist mjög vel. Átta færanlegar kennslustofur - Skóli Hjallastefnunnar í Hafnarfirði 10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. APRÍL 2022 Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Samþykkt nýafstaðins Kirkjuþings um að fella niður gjaldskrá vegna aukaverka presta var að ósk stjórnar Prestafélags Íslands. Þetta segir séra Arnaldur Bárðarson kjara- málafulltrúi fé- lagsins. „Nú er það Prestafélag Ís- lands sem setur viðmiðunargjald- skrá. Samningar um kjaramál presta heyra ekki undir kirkjuþing lengur, heldur undir sérstaka kjaranefnd þjóðkirkj- unnar,“ segir hann. Arnaldur bendir á að með viðbót- arsamningi ríkisins og þjóðkirkjunn- ar hafi miklar breytingar orðið á stöðu presta sem ekki séu lengur op- inberir embættismenn heldur starfs- menn á almennum vinnumarkaði. Stjórn Prestafélagsins hafi látið vinna lögfræðiálit um gjaldskrá presta. Þar hafi komið fram að laga- heimild Kirkjuþings til að setja slíka gjaldskrá væri ekki til staðar og að prestafélaginu væri heimilt að setja viðmiðunargjaldskrá. Það hefur ver- ið gert og byggir sú gjaldskrá á þeirri sem kirkjuþing var að afnema. Arnaldur segir að heimild presta til greiðslna vegna aukaverka sé tryggð í gildandi kjarasamningi Prestafélags Íslands og þjóðkirkj- unnar sem gildir frá 1. júní 2021 til 31. mars 2023. Hann segir að inn- heimta greiðslna fyrir aukaverk byggi á mjög gamalli hefð. Gjaldskrá vegna þeirra hafi um áratugaskeið verið ákvörðuð í dóms- og kirkju- málaráðuneyti. „Það hefur verið vilji presta að fá þessar greiðslur inn í föst laun og hafa nokkrar tilraunir verið gerðar af hálfu Prestafélags Ís- lands til að svo megi verða en án ár- angurs. Það hefur ekki skort á vilja prestastéttar að fara úr þessu gamla launakerfi en það getur hins vegar ekki gerst bótalaust,“ segir hann. Þrátt fyrir þessa breytingu eru enn uppi raddir meðal presta um að ekki skuli innheimt sérstök gjöld fyr- ir aukaverkin, svo sem skírn, ferm- ingu, hjónavígslu og útför. Komu þær fram á undanförnum kirkju- þingum. Var gjaldtakan sögð „frá- hrindandi ásýnd kirkjulegrar þjón- ustu“. Prestafélagið hefur sett eigin gjaldskrá - Kirkjuþing felldi gjaldskrá fyrir prestsverk úr gildi Morgunblaðið/Kristinn Magnúss. Aukaverk Frá fermingu í Grafarvogskirkju. Ferming er ásamt skírn, hjónavígslu og útför helsta aukaverk presta sem svo er nefnt. Sr. Arnaldur Bárðarson Löggiltur heyrnarfræðingur Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is Gríptu til þinna ráða Pantaðu tíma í HEYRNAR GREININGU Nánari upplýsingar í síma 534 9600 eða á heyrn.is Allar helstu rekstrarvörur og aukahlutir fyrir heyrnartæki fást í vefverslun heyrn.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.