Börn og menning - 2020, Side 4

Börn og menning - 2020, Side 4
Voru æsirnir geimfarar? Árni Matthíasson Við bræðurnir vorum tíð- ir gestir í versluninni Stellu í Bankastræti á sjöunda áratug síðustu aldar, en ekki voru það snyrtivörurnar sem við sótt- umst eftir heldur var í rekka til hliðar við innganginn að finna amerísk hasarblöð: Batman og Robin, Wonder Woman, Flash, Cap t ain America, Superman, Silver Surfer, Nick Fury og svo má lengi telja. Í blöðun- um birtist slíkur grúi af ofurhetjum að við þurftum að hafa okkur alla við til að henda reiður á hetjufansinum. Teiknimyndaiðnaðurinn bandaríski átti sína gullöld á fjórða áratugnum, en þegar við laumuðumst til að lesa hasarblöðin á meðan mikið var að gera í búðinni voru aðrir tímar, nýjar hetjur að koma fram. Fátt er leiðinlegra en hið fullkomna Á þeim tíma voru helstu teiknimyndahetjurnar í blöð- um frá Marvel og DC, DC með Superman og Batman fremsta í flokki og Marvel með Spider-Man, Fantastic Four, Hulk, Iron Man, the X-Men og Daredevil, svo dæmi séu tekin, og líka goðin Þór og Loka. DC- hetjurnar voru einkar óáhuga- verðar, því fátt er leiðinlegra en hið fullkomna, samanber Superman (eða Súpermann, eins og hann hét í meðförum Siglufjarðarprentsmiðju). Þótt Superman hafi verið nánast ósigrandi og leiðinlegur fyrir vikið, var Batman erkitýpa fyrir ofurhetju í tilvistarkreppu, milljóneraflysjungur sem klæddi sig upp á nóttunni í eilífri leit að hefnd fyrir víg foreldra sinna. Marvel- hetjurnar voru öðruvísi, þær voru ekki bara hetjur þegar enginn sá til heldur hetjur í fullu starfi, afkáralega klæddar og allskonar í laginu, sumar eiginlega ófreskjur (Hulk) eða ómennskar (Silver Surfer). Óvinirnir voru ekki síðri, mitt uppáhald var Doctor Victor Von Doom, einræðisherra Latveriu, smáríkis í Karpatafjöllum, en líka Galactus, Loki og Doctor Oc- topus. Eitt af því sem gerði Marvel-heiminn frábrugð- inn DC-sögum var að sögurnar sköruðust, hetjurnar, sem margar lögðust saman á árar í súpergrúppunni Avengers, voru flestar til í sama heimi sem hafði vissu- lega svipmót okkar heims, þótt margt væri með öðru sniði. Marvel-hetjurnar voru öðruvísi, þær voru ekki bara hetjur þegar enginn sá til heldur hetjur í fullu starfi

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.