Börn og menning - 2020, Side 32
Börn og menning32
upp úr hellinum og finna annað fólk sem hefur sama
brennandi áhuga og maður sjálfur.“
„Við erum sífellt að endurhanna og fínpússa nám-
skeiðin okkar,“ segir Atla Hrafney, formaður ÍMS.
„Myndasögur eru frábært barnaefni sem hefur einnig
sannað sig sem aðgangstól fyrir nemendur með les-
blindu eða aðra lestrarerfiðleika. Svo er auðvitað líka
fullt af myndasögum sem eru hannaðar með fullorðna
lesendur í huga, svo sem spennusögur, vísindaskáldsög-
ur, rómantískar sögur og hrollvekjur.“
„Sjálfur tilheyri ég kynslóð sem ólst upp við að lesa
Andrés önd, Ástrík og Steinrík, Lukku-Láka, Tinna
og Sval og Val,“ bætir Einar Valur við. „Myndasögur
eru virt listform og gefandi iðnaður á Norðurlöndum,
í Belgíu og Frakklandi og á Ítalíu. Íslenskir unglingar
eru sólgnir í japanskar og kóreskar myndasögur. Fólk
flykkist milljónum saman í bíósali til að sjá kvikmyndir
byggðar á bandarískum ofurhetjum. Það er í raun mjög
lítið okkur til fyrirstöðu hér á Íslandi til þess að rækta
þennan listageira.“
„Þá vil ég ekki meina að næsta Hollywood-mynd
með milljarðaveltu verði byggð á íslenskri myndasögu,“
heldur Einar áfram. „Ég á einungis við að íslenskir
myndasöguhöfundar geta náð jafnmiklum frama og
við Íslendingar höfum náð í tónlist (Björk, Sigurrós,
Of Monsters and Men), sjónvarpi (Latibær, Ófærð),
kvikmyndum (Kona fer í stríð, Hildur Guðnadóttir) og
tölvuleikjum (EVE Online). En fyrst viljum við tryggja
að næstu kynslóðir hafi góðan grunn til að byggja á.“
ÍMS er metnaðarfullt félag sem er óhrætt við að taka
að sér krefjandi og langvarandi verkefni. Félagið býð-
ur fólki að fylgjast með komandi námskeiðum og við-
burðum á Facebook-síðu sinni, www.facebook.com/
islenskamyndasogusamfelagid.
Höfundar eru í stjórn Íslenska myndasögusamfélagsins.
Fjölmenn myndasögusulta á kaffistofu bókabúðar
Máls og Menningar.
Myndir nemenda á námskeiði ÍMS í
Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsi.
Afrakstur dútls frá fyrstu stafrænu „myndasögusultu“ ÍMS.