Börn og menning - 2020, Page 10
Börn og menning10
hafa slæm áhrif á ungdóminn. Gagnrýnendur höfðu þó
ekki erindi sem erfiði, Hogan’s Alley var svo vinsæl að
ógrynni keimlíkra myndasagna spruttu upp í kjölfar-
ið í öðrum dagblöðum. Trúarfélög, kvennasamtök og
fleiri siðapostular urðu ævareiðir. Baráttan um tilgang
og takmörk myndasagna í Bandaríkjunum var hafin.
Á árunum eftir seinni heimsstyrjöldina komu til
sögunnar í Bandaríkjunum myndasögur sem sögðu frá
ofurhetjum. Ofurmennið, Kapteinn Ameríka, Kapteinn
Marvel, Undrakonan og jafnvel Leðurblökumaðurinn
voru skrifaðar á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar. Of-
urhetjurnar voru bein afleiðing af stríðsárunum og not-
aðar til að lokka fólk til að borga peninga í stríðsrekstur
eða fá unga menn til að skrá sig í herinn. Ofurhetjurnar
reyndust gott myndefni í stríðsáróður, á plakötum og í
myndsögum barðist þetta einvala lið við einræðisherra,
gaf Hitler á kjamminn og lúbarði Stalín sjálfan.
Þegar stríðinu lauk héldu myndasögurnar áfram
að koma út. Þemu sem höfðu verið ásættanleg til að
kynda elda stríðsreksturs voru ekki lengur ásættanleg.
Eftirstríðsárin voru erfið, fjöldi hermanna hafði snúið
Myndasögublöð voru mjög vinsæl meðal bandarískra
hermanna í seinni heimsstyrjöldinni sem fengu þau send á
framlínurnar. Kapteinn Ameríka er ein af elstu ofurhetj-
unum sem komu fram á þessum tíma, klæddur í fánalitina.
Hann var talinn standa fyrir hin svokölluðu bandarísku
gildi og þar að auki vera góð fyrirmynd.
Yellow Kid, úr Hogan’s Alley eftir Richard F. Outcault.
Hugtakið „gula pressan“ ( yellow press) var fyrst notað
til að gera lítið úr The New York World og til að gefa til
kynna að það ynni ekki rannsóknarvinnu og væri lélegt
blað.
Myndasagan getur verið
spéspegill samfélagsins,
hún getur ógnað með
fyndinni ádeilu og vek-
ur þar af leiðandi ótta í
brjósti yfirvalda.