Bændablaðið - 27.01.2022, Síða 20
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. janúar 202220
Það hefur legið fyrir í mörg ár að
í árslok 2023 er áætlað að loka
endanlega fyrir urðun sorps í
Álfsnesi sem tekur við stærstum
hluta sorps af landinu. Enn hafa
engar ákvarðanir verið teknar
um byggingu sorpeyðingar- eða
sorporkustöðvar til að taka við
þessu verkefni. Það blasir því við
að flytja verður út sorp í stórum
stíl til eyðingar næstu árin.
Talið er að undirbúningur og
bygging sorporkustöðvar, sem gæti
brennt um 100 til 120 þúsund tonnum
á ári, geti tekið átta ár. Það virðist því
borðleggjandi að ef Álfsnesi verður
lokað, þá sé fátt annað í stöðunni en
að flytja sorp úr landi til förgunar á
næstu árum ef ekki fást undanþágur
til áframhaldandi urðunar.
Fundur Sambands íslenskra
sveitarfélaga 11. janúar 2021
Þann 11. janúar 2021 stóð Sam
band íslenskra sveitarfélaga fyrir
fjölmennum netfundi um hátækni
brennslu sem framtíðar lausn. Þar
kom fram að taka þyrfti ákvarðanir
varðandi byggingu sorporkustöðvar
án tafar og að tímaglasið væri
þegar tómt. Nú ári seinna er ekki
búið að taka neinar ákvarðanir um
framhaldið, þrátt fyrir mikla vinnu
starfshóps sem settur var á fót
um málið á vegum Sorpu, Kölku
sorpeyðingarstöðvar, Sorpstöðvar
Suðurlands, Sorpurð unar Vesturlands
og umhverfisráðu neytisins.
Guðjón Bragason, sviðsstjóri hjá
Sambandi íslenskra sveitarfélaga,
stýrði fundinum í janúar á síðasta
ári. Sagði hann þá að það hafi
lengi verið sinn draumur að menn
kæmust á þetta stig að ræða stóru
myndina í sorpeyðingarmálum og
þá sérstaklega uppbyggingu innviða.
Sagði hann það reyndar markmiðið
með fundinum að komast að því
hvað þyrfti að gera næst til að
hrinda byggingu brennslustöðvar í
framkvæmd.
Karl Eðvaldsson, framkvæmda
stjóri Resource International ehf.,
lýsti á fundinum í fyrra niðurstöðum
annarrar skýrslu sem unnin var fyrir
stjórnvöld. Markmið þeirrar vinnu
var að meta þróun óendurvinnanlegs
úrgangs á Íslandi til næstu 25 ára,
eða til 2045.
Samkvæmt skýrslunni er áætlað
að heildarmagn brennanlegs
úrgangs á Íslandi fari úr um 280.000
tonnum og í 380.000 tonn á árinu
2045. Fjölmargar aðgerðir eins og
moltugerð, endurvinnsla á pappír og
plasti og ýmislegt fleira minnkar þetta
magn hins vegar verulega. Á árinu
2018 fóru t.d. 35% af úrganginum í
endurnýtingu eða endurvinnslu.
Klukkan tifar
Helgi Þór Ingason, prófessor við
Háskólann í Reykjavík (HR),
sem var um 11 mánaða skeið
framkvæmdastjóri hjá Sorpu,
stýrði verkefni starfshópsins sem
gekk út á að skoða möguleika í
sorpeyðingarmálum. Gerðar voru
margs konar greiningar og haldnir
sex opnir streymisfundir um
málið undir heitinu „Skör ofar“. Í
framhaldinu var gefin út skýrsla sem
kom út 15. desember síðastliðinn.
Verkefnið var fjármagnað af Sorpu,
Sorpstöð Suðurlands, Sorpstöð
Vesturlands, Kalka sorpeyðingarstöð
sf. á Suðurnesjum ásamt umhverfis
og auðlindaráðuneytinu. Nú er að
fara fram áframhaldandi kynning á
málinu fyrir borgaryfirvöldum og
bæjarstjórnum.
Helgi sagði í samtali við
Bænda blaðið að málið snerist nú
ekki síst um að leggja fram stað
reyndir og vinna á tortryggni í garð
sorpeyðingarstöðva. Klukkan tifaði
nú á landsmenn um að finna lausn
á sorpeyðingarmálum sínum til
framtíðar.
Í stað urðunar kemur brennsla til
orkuvinnslu
Í skýrslunni sem kynnt var í
desember undir heitinu; Forverkefni
um framtíðarlausn til meðhöndlunar
brennanlegs úrgangs í stað urðunar“,
segir m.a. í samantekt:
„Vegna innleiðingar reglna
um forgangsröðun úrgangs og
hringrásarhagkerfið á að hætta
förgun brennanlegs úrgangs með
urðun. Stóraukin áhersla er á flokkun
og sérsöfnun og í stað urðunar kemur
brennsla til orkuvinnslu. Í samræmi
við þetta er gert ráð fyrir að árið
2030 munu falla til á Íslandi allt
að 130.000 tonn af brennanlegum
úrgangi og tilgangur þessa verkefnis
er að skoða hvers konar brennslustöð
þyrfti að byggja til að brenna þetta
efni og vinna úr því orku.
Enn er mögulegt að flytja
brennanlegan úrgang úr landi, en
tekið er að þrengjast um þá leið og
stefnubreyting Evrópusambandsins
hefur leitt til þess að nokkur lönd
sem tekið hafa við úrgangi frá
Íslandi á undanförnum árum
virðast stefna að því að loka fyrir
innflutning. Ætla má að sú þróun
haldi áfram og að áhætta sem fylgi
því að treysta á útflutning sé ekki
ásættanleg. Flest íslensk sveitarfélög
eru þessu sammála.”
Þörf á brennslustöð með 130.000
tonna afkastagetu
Í skýrslunni segir að brennslustöð
sem reist verður á Íslandi þurfi að
hafa afkastagetu sem nemur allt að
130.000 tonnum á ári. Ef fyrirætlanir
um bætta flokkun og endurvinnslu
ganga eftir munu 70% af þessum
afköstum duga að jafnaði.
Spilliefni yrðu ekki tekin þar til
vinnslu – meðal annars til að tryggja
að botnaska sem fellur til í verulegu
magni spillist ekki. Notast verður
við bestu fáanlegu tækni í brennslu
og hreinsun á afgasi. Gert er ráð
fyrir einni vinnslulínu sem afkastar
rúmlega 16 tonnum á klukkustund.
Þá segir líka í skýrslunni að
miklar framfarir hafi átt sér stað
í tæknibúnaði til brennslu og
hreinsunar á afgasi og nýlegar
hátæknibrennslur er ekki hægt að
bera saman við litlar brennslur sem
voru starfræktar á Íslandi um hríð í
byrjun aldarinnar, en lokað vegna
mengunarvandamála.
Sorpbrennslustöð í Álfsnesi
talinn besti kosturinn
Starfshópurinn komst að þeirri
niðurstöðu að besti kosturinn
sé að reisa sorpbrennslustöð í
Álfsnesi. Þorlákshöfn, Straumsvík,
Helguvík og Grundartangi komu þó
líka til greina að mati hópsins en
Álfsnes þótti besti kosturinn út frá
flutningahagkvæmni. Meðal helstu
niðurstaðna hópsins eru:
• Hátæknisorpbrennsla yrði reist
á suðvesturhorni landsins þar
sem meira en 80% af úrgang
inum falla til.
• Mat á staðsetningu leiðir í ljós að
bygging hátæknibrennslunnar
í Álfsnesi myndi fela í sér
minnstan rekstrarkostnað þar
sem kostnaður við flutning
úrgangs til stöðvarinnar væri
lægstur.
• Hátæknibrennslan þarf að geta
afkastað allt að 130.000 tonnum
á ári. Hún mun framleiða raf
magn og heitt vatn en rekstrar
kostnaði verður einkum mætt
með hliðgjöldum.
• Stofnkostnaður hefur verið
metinn með grófum hætti, sem
og rekstrarkostnaður. Kostnaður
við byggingu brennslunnar
er áætlaður á bilinu 20–35
milljarðar króna.
• Fyrir liggur að hliðgjöldin
munu ráðast fyrst og fremst
af því eignarformi sem verður
fyrir valinu.
• Verði brennslan alfarið í
opinberri eigu er líklegt að
hliðgjald þyrfti að vera 20
krónur á kíló en verði hún
alfarið í einkaeigu er líklegt að
hliðgjald yrði 40 krónur.
• Í næsta áfanga verkefnisins
þarf að stofna félag sem fær
það hlutverk að halda áfram
undirbúningsvinnu og þróa
ítarlega viðskiptaáætlun um
verkefnið.
• Ef niðurstaða viðskiptaáætlunar
gefur tilefni til liggur fyrir hverjir
munu standa að undirbúningi
og framkvæmd verkefnisins,
og rekstri vinnslunnar. Einnig
munu liggja fyrir samningar
við sveitarfélög um ráðstöfun
brennanlegs úrgangs í farveg
vinnslunnar.
Pólitískur rétttrúnaður getur
verið dýrkeyptur
Svo virðist sem pólitískur rétt trún
aður í loftslagsmálum hafi fyrst og
fremst tafið fyrir framgangi málsins
ásamt margvíslegri hagsmunagæslu.
Þó sýnt hafi verið fram á góða
reynslu allra annarra Norðurlanda
og fleiri þjóða af notkun fullkominna
sorporkustöðva, hafa menn dregið
lappirnar á Íslandi. Þar með hafa
menn stórskaðað þetta mikilvæga
umhverfismál og nú er tíminn hlaup
inn frá mönnum.
Það er orðin óumflýjanleg stað
reynd að ef ekki fæst leyfi til að urða
yfir 100 þúsund tonn af sorpi eftir
2023 í Álfsnesi eða annars staðar,
þá eru ekki önnur úrræði í boði
en stórfelldur útflutningur á sorpi,
flokkuðum eða óflokkuðum. Það
er að segja ef einhverjar þjóðir eru
tilbúnar til að taka við því.
Íslendingar eru þegar búnir
að gera upp á bak
Veruleikinn er þó í raun sá að Íslend
ingar eru búnir að gera upp á bak
í þessum málum og öll viðbrögð
héðan í frá munu einungis snúast
um að minnka skaðann sem þegar
er orðinn.
Vandinn er hins vegar að Evrópu
sambandið hefur verið að feta í
slóð Kínverja sem lokuðu fyrir
innflutning á úrgangsplasti til sín
um áramótin 2017/2018. Sumar
Evrópuþjóðir eins og Svíar, Danir og
Hollendingar hafa þó verið að flytja
inn plast og annað sorp til brennslu,
en ólíklegt að því verði haldið lengi
áfram, jafnvel þótt sumir Íslendingar
gæli enn við slíka óskhyggju.
Evrópusambandið er þegar í
stórkostlegum vanda með sitt sorp
og innan þess hafa menn verið að
taka í notkun nýjar sorporkustöðvar
til að slá á þann vanda, en samt er
enn mikið flutt út.
ESB flutti út um 32,7 milljónir
tonna af sorpi á árinu 2022
Á árinu 2020 nam útflutningur
ESB á úrgangi til landa utan ESB
um 32,7 milljónum tonna, sem er
um 75% aukning frá 2004. Stærstur
hluti þessa úrgangs var sendur til
Tyrklands, eða 13,7 milljónir tonna.
Næst á eftir var Indland sem tók við
2,9 milljónum tonna. Bretland tók
við 1,8 milljón tonnum og Sviss 1,6
milljónum tonna. Þá tók Noregur við
1,5 milljónum tonna og Indónesía
og Pakistan tóku samanlagt við 1,4
milljónum tonna.
Í þessu ljósi er augljóst að
ESBríkin hafa engan áhuga
á íslensku sorpi þótt það sé
hlutfallslega ekki stórt í sniðum
miðað við fyrrgreindan sorpvanda
ESB. Eins hefur hættu legur úrgangur
verið að hlaðast upp í ESBríkjunum.
Þannig voru um 7 milljónir tonna af
slíkum úrgangi flutt úr einum stað
í annan innan ESBríkjanna á árinu
2018. Þar virðast einstök ríki ESB
vera að velta vandanum yfir á aðra.
Í nóvember 2021 voru umræður
um að herða allt regluverk um
meðferð úrgangs og búist við að
umhverfisnefnd Evrópuþingsins taki
það fyrir á næstu mánuðum.
ESB herðir reglur um
plastúrgang og annað sorp
Þann 22. desember 2020 samþykkti
framkvæmdastjórn ESB nýjar reglur
um útflutning og innflutning á
plastúrgangi sem og flutning á honum
innan ríkja ESB. Þessar nýju reglur
banna útflutning á plastúrgangi frá
ESB til landa utan OECD, fyrir utan
hreinan plastúrgang sem sendur er
beint til endurvinnslu. Einnig hefur
verið tekið upp strangara eftirlit
með útflutningi á plastúrgangi frá
ESB til OECDlanda og innflutningi
til ESB. Nýju reglurnar tóku gildi
1. janúar 2021. Þær gilda um
útflutning, innflutning og flutning
á plastúrgangi innan ESBríkjanna.
Innflutningur inn í ESB frá
þriðju löndum á hættulegum
plastúrgangi og plastúrgangi
sem erfitt er að endurvinna er nú
háður „fyrirframtilkynningum og
samþykkisferli“. Samkvæmt þessari
aðferð verða bæði innflutnings
og útflutningslandið að heimila
sendingu.
Íslendingar axli ábyrgð
á eigin sorpi
Það virðist því allt vinna gegn þeim
hugmyndum að Íslendingar geti
sópað sínu sorpi undir teppið hjá
nágrannaríkjum eins og ekkert sé.
Nær öruggt er að Íslendingar verða
á komandi mánuðum og árum að
taka fulla ábyrgð á sínum úrgangi.
Hvernig menn ætla að klóra sig
út úr því, verandi búnir að draga
lappirnar í þeim efnum í áraraðir,
skal ósagt látið.
Endalausir fundir,
nefndarskipanir og ályktanir
en engar ákvarðanir
Bændablaðið hefur í mörg ár fjallað
um vandann í sorpeyðingarmálum
á Íslandi, í það minnsta síðan í jan
úar 2011. Síðan hefur nánast ekkert
verið gert til viðunandi úrbóta. Hins
vegar er búið að halda ótal fundi,
skipa nefndir og skrifa ályktanir í
kílómetravís um þessi mál. Enn ein
fundaherferðin er hafin.
Þar er ekki reiknað með að
ákvörðun verði tekin um að ráðast
í verkefnið, heldur er verið að reyna
að sannfæra sveitarstjórnarmenn og
aðra ráða menn um að lausnin geti
falist í bygg ingu á sorporkustöð.
Það er því alls ekki í sjónmáli að
menn setjist niður á næstunni til að
taka ákvörðun um byggingu sorp
orkustöðvar.
Miðað við afgreiðsluhraða við
umhverfismat og ákvarðanatöku
þarf vart að búast við að sorporku
stöð verði tekin í notkun á Íslandi
fyrr en í fyrsta lagi árið 2030.
FRÉTTASKÝRING
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Fjöldi funda haldinn um að byggja sorporkustöð til að taka við af sorpurðun en engin niðurstaða liggur fyrir:
Búið úr stundaglasinu og Íslendingar eru
komnir upp að vegg í sorpeyðingarmálum
– Fyrirhugað er að loka Álfsnesi fyrir urðun 2023, á sama tíma er ESB að herða reglur um innflutning á sorpi til endurvinnslu og eyðingar
Amager Bakke-sorporkustöðin í Kaupmannahöfn var gangsett árið 2017.
Þessi stöð er oft nefnd sem dæmi um einstaklega vel heppnaða hátæknistöð
sem er eins umhverfisvæn og hugsast getur. Á þakinu er skíðabrekka sem
hægt er að renna sér í allt árið um kring. Mynd / Amager Bakke