Bændablaðið - 27.01.2022, Blaðsíða 22
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. janúar 202222
UTAN ÚR HEIMI
Fuglaflensa:
Stökkbreytingar geta leitt
til alvarlegs smits í fólki
Hröð útbreiðsla fuglaflensu er
verulegt áhyggjuefni. Illa hefur
gengið að hefta útbreiðslu flens
unnar í alifuglum þrátt fyrir
miklar varúðarráðstafanir. Fram
til þessa hefur H5N1 veiran sem
veldur fuglaflensu verið talin
skaðlaus mönnum og smit í fólki
sjaldgæf.
Ný afbrigði veirunnar vegna
stökkbreytinga gætu reynst fólki
verulega hættuleg og með allt að
50% dánartíðni.
Tugum milljónum alifugla hefur
verið lógað og fargað til að reyna að
hefta útbreiðslu flensunnar en þar
sem hún berst meðal annars milli
landa með farfuglum hefur það
reynst erfitt.
Fyrir skömmu greindu heil
brigðis yfirvöld á Bretlandseyjum
frá því að maður í SuðurWales sem
lifði í návígi við nokkrar aliendur
hefði greinst með H5N1 veiruna
en einnig eru dæmi frá Kína og
víðar þar sem útbreiðsla hennar er
mikil um að menn hafi greinst með
veiruna.
Hröð útbreiðsla
Útbreiðsla fuglaflensu hefur verið
gríðarlega hröð á Bretlandseyjum frá
því í október síðastliðinn og greinst
á ríflega 70 alifuglabúum síðan þá
og um milljón alifuglum lógað og
fargað.
Útiganga bönnuð
Í framhaldi af því var lausa
ganga alifugla, bæði á býlum og í
heimagörðum, utandyra bönnuð og
fuglarnir settir í útgöngubann. Þrátt
fyrir aðgerðir af þessu tagi og aðrar
strangar varúðarráðstafanir hefur
ekki tekist að hefta útbreiðsluna enda
bráðsmitandi milli fugla. Smitleiðir
vírussins eru margar og getur hann
meðal annars borist með farfuglum,
fugladriti, fjöðrum, fóðri, vatni,
bifreiðum, landbúnaðartækjum,
fatnaði og skóm.
Menn og fuglaflensa
Ástæða þess að smit í fólki vegna
H5N1 er sjaldgæft er að veira hefur
til þessa ekki borist með lofti eins
og kvefpestir og Covid19.
Samkvæm tölum Alþjóða
heilbrigðisstofnunarinnar, WHO,
eru vitað um 863 tilfelli frá byrjun
janúar 2003 þar til í lok desember
2021 um fuglaflensu í mönnum í
átján löndum. Þar af létust 436,
ríflega 50%, vegna sýkingarinnar
en til samanburðar er dánartíðni
vegna árlegrar kvefflensu um 0,1%
Flest tilfelli smita í mönnum
tengjast meðhöndlun, slátrun og
neyslu á sýktum fuglum en einnig
eru dæmi um að smit hafi borist á
milli fólks innan sömu fjölskyldu
þar sem nærvera er mikil og til
þeirra sem hafa sinnt sýktum
einstaklingum.
Ný afbrigði vegna
stökkbreytinga
Verksmiðjubúskapur þar sem tugir
þúsunda alifugla eru samankomir
í þröngu rými eru kjöraðstæður
fyrir veiruna til að berast á milli
fugla og á sama tíma til að hraða
stökkbreytingum.
Vísindamenn sem rannsaka
veiruna segja og vara við að það
þurfi ekki margar stökkbreytingar,
hugsanlega þrjár til fimm, til að
veira geti farið að berast með lofti
og orðið verulega hættuleg fólki.
Dæmi um stökkbreytingu sem
flestir kannast við er Covid19
Omicron afbrigðið sem tók við
af Delta afbrigðinu. Þrátt fyrir
að Omicron afbrigðið sé meira
smitandi en Delta er það sagt vera
skaðminna og vírusinn að linast.
Komi til þess að H5N1 veiran
stökkbreytist þannig að hún geti
borist með lofti og valdið sýkingu
í fólki má búast við að útbreiðsla
hennar yrði mjög hröð og dánartíðni
mjög há.
Dæmi um sýkingu sem barst milli
manna með lofti var spænska veikin
1918 sem talið er að hafi valdið
dauða 50 til 100 milljón manna um
allan heim.
Varnaðarorð sérfræðinga
Sérfræðingar Alþjóðaheilbrigðis
stofnunarinnar, WHO segja
að afleiðingar þess ef veiran
stökkbreytist og verði smitandi
með lofti og haldi núverandi
dánartíðni geti orðið skelfilegar og
að dánartíðin á heimsvísu gæti legið
á milli 5 til 150 milljón manns.
24 milljarðar hænsnfugla
Helsta ástæða hraðrar útbreiðslu
fuglaflensu er sögð vera
síaukið alifuglaeldi í stórum
verksmiðjubúum eða einingum og
far fugla milli landa.
Talið er að hænsnastofninn í
heiminum telji um 24 milljarða
fugla, þrisvar sinnu fleiri hænsn eru
samkvæmt því í heiminum en fólk,
og er langstærsti hluti þeirra alinn í
verksmiðjubúum.
Í dag eru til bóluefni gegn
nokkrum afbrigðum fuglaflensu sem
notuð eru í alifuglaeldi. Auk þess
sem til eru bóluefni sem nýst hafa
gegn sýkingum í fólki og önnur eru
á tilraunastigi.
Ekkert þessara bóluefna er samt
til í því magni sem nauðsynlegt er
talið ef fuglaflensa stökkbreytist
þannig að hún smitast í fólk og er
með allt að 50% dánartíðni.
Fari allt á versta veg og
svartsýnustu spár ganga eftir er
líklega best að lýsa mögulegu
ástandi með fleygri setningu Ólafs
Ragnars Grímssonar, fyrrverandi
forseta: „You ain't seen nothing yet“.
/VH
Lífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19
Smásjármynd af H5N1. Veiran er lituð gul. Myndir / Wikipedia
Fuglar á verksmiðjubúum sem reynast smitaðir af fuglaflensu eru oft kæfðir
með kvoðu áður en þeim er fargað.
Statisk sentralbyräd og raforkuverð í Noregi:
Allt að 550% hækkun
á 12 mánaða tímabili
Haustið 2021 bárust fréttir af því
frá Noregi að rafmagnsverð væri
þá orðið hærra en nokkru sinni
áður í sögunni. Í frétt RÚV var
þá haft eftir Gísli Kristjánssyni,
fréttaritara í Noregi, að talað væri
um allt að tíföldun á verði frá árinu
2020. Einnig að verðið sveiflaðist
svo mikið að venjulegt fólk sundlaði
við að horfa á rafmagnsmælana.
Ástæða þessa háa orkuverðs er
ríkjandi orkukreppa og stórhækkanir
á raforkuverði á meginlandi Evrópu
sem Norðmenn tengjast beint í gegn
um samþykkta orkupakka frá ESB.
Árið 2020 var meðal „spottverð“
á Nord Pool raforkuverinu hins
vegar óvenju lágt, eða 11,6 aurar
NKR á kílóvattstund. Þetta var
lægsta ársverð sem skráð hafði
verið í kauphöllinni. Það þýddi að
meðalheimili í SuðurNoregi voru
að borga mun minna fyrir orkuna en
í meðalári vegna offramboðs.
Nær 430–550% hækkun á
raforkuverði til heimila í Noregi
á 12 mánuðum
Þegar tölur frá Statisk sentralbyräd
í Noregi frá 15. nóvember 2021
eru skoðaðar sést að orkuverð með
flutningskostnaði (heildarverð
til heimila fyrir orku, netleigu og
gjöld) hafði hækkað hrikalega og
var 147 aurar (NKR). Þá var verð
á kílówattstund 26,6% hærra en
meðalverð á öðrum ársfjórðungi og
101,6% hærra en 12 mánuði þar á
undan. Rafmagnið sjálft var þá 76,3
aurar á kWst. Hafði það hækkað um
49,9% frá öðrum ársfjórðungi og
hvorki meira né minna en 429,9%
fá síðustu 12 mánuðum þar á undan.
Til viðbótar rafrokuverðinu kom svo
netleiga eða flutningur og opinber
gjöld.
Þegar skoðað er rafmagnsverð
til heimila eftir tegund samnings og
nýir fastverðssamningar með allt
að 1 árs gildistíma fyrir utan gjöld,
nam hækkunin á 12 mánaða tímabili
336,5% og upp í 550,8% þegar talað
er um samninga tengda raforkuverði.
Ef svo er skoðað það sem kallað er
„viðskiptaaflsverð” án gjalda og þá
til iðnaðar utan stóriðjuvera, námu
hækkanirnar á tólf mánaða tímabili
til 15. nóvember 2021 hvorki meira
né minna en 614,1%.
Næsta uppfærsla á þessu árs
fjórðungs verði Statisk sentral byräd
verður 14. febrúar næst kom andi.
Orkupakkarnir skipta miklu máli
Þriðji orkupakkinn var samþykkur á
Alþingi Íslendinga þann 2. september
2019. 46 þingmenn greiddu atkvæði
með innleiðingu orkupakkans og
13 voru á móti. Þessi samþykkt
var grundvöllur þess að grænt ljós
yrði gefið á innleiðingu hans í
hinum aðildarríkjum samningsins
um Evrópska efnahagssvæðið, þ.e.
Noregi og Liechtenstein.
Mikil átök urðu um þessa
innleiðingu á Íslandi og fylgdust
Norðmenn grannt með þeirri
framvindu enda var samningnum
ætlað að festa enn frekar í sessi
regluverk um sameiginlegan
orkumarkað í Evrópu. Þetta skipti
Norðmenn enn meira máli en
Íslendinga þar sem þeir voru þegar
tengdir þeim orkumarkaði með
rafstrengjum til meginlands Evrópu.
Allt frá innleiðingu orkupakka 3
í Noregi hafa deilur haldið áfram og
þær jukust til mikilla muna eftir að
orkukreppa og stórhækkun orkuverðs
fór að gera vart við sig fyrir alvöru í
Noregi eftir óvenju hagstæða stöðu á
fyrri hluta árs 2020. Lágt raforkuverð
þá mátti rekja til góðs aðgengis að
orku ásamt minni raforkunotkun en
venjulega.
Mjög mikil rigning og snjór í
fjöllunum og góð vindskilyrði gáfu
mikla orkuframleiðslu. Auk þess
var árið 2020 hlýjasta ár sem mælst
hefur og því notað minna rafmagn
til upphitunar. Ofan á þetta var tak
mörkuð afkastageta á strengjum til
nágrannalanda sem dró úr möguleik
um á útflutningi á umframafli.
Síðan hefur allt farið á verri veg.
/HKr.