Bændablaðið - 27.01.2022, Side 24

Bændablaðið - 27.01.2022, Side 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. janúar 202224 Eins og áður hefur komið fram hér á síðum Bændablaðsins á Freyvangur sér langa sögu bæði samkomuhúss og leikhúss en það hefur iðað af lífi um árabil, eitt athafnamesta áhugaleikhús landsins. Samkvæmt dagblaðinu Degi árið 1957 er „Sjónleikurinn Ráðskona Bakkabræðra sýndur að Freyvangi, Öngulsstaðahreppi“ auk þess sem ónefnd hljómsveit lék þar að loknum sjónleik. Nokkrum árum síðar, eða snemma í apríl árið 1962, funduðu áhugamenn í samkomuhúsinu með það fyrir augum að stofna leikfélag í Öngulsstaðahreppi sem síðar var nefnt Freyvangsleikhúsið. Yfir árin hefur leikfélagið fjórum sinnum hlotið þann heiður að sýning þeirra er valin athyglisverðasta áhugaleiksýningin; Kvennaskólaævintýrið 1995, Velkomin í Villta vestrið 1998, Vínland 2009 og Góði dátinn Svejk árið 2011. Þessa dagana standa leikarar Freyvangs í æfingum fyrir sýningu verksins ástsæla sem allir þekkja, Kardimommubæjarins, undir stjórn leikstjórans Ólafs Jens Sigurðssonar. Ólafur hefur leikstýrt félagsmönnum áður með miklum ágætum og var m.a. leikstjóri verksins Vínlands er fór á fjalir Þjóðleikhússins við mikið lof – kröftugur og litríkur söngleikur, saminn af Helga Þórissyni, sem nú er í hlutverki Kaspers, eins ræningjanna og bræðranna þriggja, Kaspers, Jespers og Jónatans. Til gamans má geta að bræður Helga, Ingólfur og Bergsveinn Þórissynir, leika þá Jesper og Jónatan, en eins og flestir vita ógna þeir þremenningar bæjarbúum í fylgd ljónsins síns sísvanga – sem elskar mjólkursúkkulaði. Önnur ógn bæjarins, hin ráðríka og skapstygga Soffía frænka, fléttast inn í líf þeirra er þeir ákveða að ræna henni til þess að sjá um húsverkin fyrir sig ... sem kemur svo í ljós að er frekar vanhugsað hjá þeim. Kardimommubærinn er þó yndis- legur bær þar sem margar skemmti- legar persónur stinga upp kollin- um, en söguna og söngvana samdi Thorbjörn Egner (12. des. 1912–24. des. 1990) norskur rit höfundur, leik- skáld, myndskreytir og tónskáld auk þess sem hann hannaði búninga og leikmyndir við eigin leikrit. Alls eru þeir sem koma að verkinu tæplega fimmtíu talsins, bæði börn og fullorðnir, og því nóg um að vera, enda iðar Kardimommubærinn ávallt af lífi. Stefnt er á að sýningarhald hefjist um mánaðamótin febrúar/mars, að öllu óbreyttu. /SP ÁHUGALEIKHÚS Á ÍSLANDI √ Þrátt fyrir óvissu vegna Covid-19, stefnir Þjóðleikhúsið á val á Athyglisverðustu áhugaleiksýningu ársins næsta vor. Þjóðleikhúsið hefur verið í samstarfi við Bandalagið í tæpa þrjá áratugi með vali á leiksýningu úr smiðju áhugaleikfélaganna sem sérstaka athygli vekur. Í kjölfarið hefur viðkomandi félagi verið boðið að sýna í Þjóðleikhúsinu. Covid-19 hefur komið í veg fyrir valið síðastliðin tvö ár en að óbreyttu er stefnt á að velja sýningu á vori komanda. Að þessu sinni verður hægt að sækja um fyrir sýningar sem frumsýndar voru leikárin 2020-21 og 2021- 22 fram til loka umsóknarfrests sem er 20. apríl 2022. Sótt er um á Leiklistarvefnum. Dómnefnd á vegum Þjóðleikhússins mun velja þá sýningu sem nefndin telur sérstaklega athyglinnar virði og verður valið samkvæmt venju tilkynnt á aðalfundi BÍL sem verður haldinn í byrjun maí. Umsóknarform fyrir Athyglisverðustu áhugaleiksýningu ársins 2022 er tiltækt þegar félag skráir sig inn á vef bandalagsins, www.leiklist.is. Hvað er í gangi?! Kardimommubærinn á fjalirnar í Eyjafjarðarsveit: Freyvangsleikhúsið Hér sjáum við Kristbjörn, Svanhvíti, Pétur og Eyþór standa umhverfis leik- stjórann Ólaf Jens, sem situr á sviðinu og stýrir upplestri. Mikill kraftur er í leikendum og leikstjóra - og án efa verður sýningin hin reffilegasta. Þeir bræður Bergsveinn, Ingólfur og Helgi spreyta sig við textann, en gaman verður að fylgjast með þeim í hlutverkum bræðranna kostugu, Kaspers, Jespers og Jónatans. Varahlu�r i VOLVO Vinnutæki Á sviðinu fæðast töfrarnir og eitt er víst að ævintýri Kardimommubæjarins er og verður öllum minnisstætt sem á það horfa og að því koma. Hér má sjá yngstu leikarana sem taka þátt og víst er að þau búi lengi að þeirri upplifun. Myndir / Aðsendar

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.