Bændablaðið - 27.01.2022, Side 36
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. janúar 202236
LÍF&STARF
SAGA&MENNING
Að hræra steypu á höndum var ekki létt vinna. Mynd / Bjarni Guðmundsson
Sögubrot um búfræðslu 2:
Að læra steinsteypugerð
Steinsteypa er ekki gamalt
fyrirbæri sé miðað við tímann frá
því jörðin tók að kólna. Í byrjun
síðustu aldar var steinsteypa
flestum Íslendingum framandi.
Þess vegna þótti það nokkur
nýlunda þegar um steinsteypu og
húsagerð var fjallað í rækilegum
fyrirlestri á einu af fyrstu
bændanámskeiðunum, sem haldin
voru við Hvanneyrarskóla á öðrum
áratug aldarinnar. Fyrirlesturinn
hélt Jón þorláksson, sem þá var
landsverkfræðingur. Fáir kunnu
þá betur til hinnar nýju
byggingartækni.
Meðal forngripa
sem varðveittust í
Gömlu skemmunni á
Hvanneyri fyrir til-
stilli Guðmundar
Jónssonar, síðar
s k ó l a s t j ó r a ,
og fleiri góðra
manna, voru
sérkennileg
steypumót.
Sennilega eru það mótin sem
Halldór skólastjóri Vilhjálmsson
skrifaði svo um í skólaskýrslu sinni
fyrir árin 1926-1928:
„Skólinn hefir loks eignast ágætt
steinsteypumót og er meiningin að
piltar læri að steypa steina í því
framvegis. Áhugasömu og iðju-
sömu mennirnir, sem kunna að grípa
hverja stund sem gefst, eru fljótir
að steypa nokkra tugi steina, sem
áður en varir eru orðnir hundruð -
þúsundir. Nægilega mikið bygging-
arefni til þess að byggja heil hús
á ódýrasta hátt, sem orðið getur.
En enn vantar okkur góða tilsögn í
húsagerð og þyrfti að senda færan
mann út til þess að kynna sjer hana
vel og rækilega.“
Eins og meðfylgjandi mynd gefur
til kynna eru mótin traustlega gerð-
ur trépallur, sem á eru borð er
mynda rétt horn. Á móti
því hefur verið
hægt að
mynda annað horn með borðum,
sem stillt skyldu af með okum/kubb-
um. Virðist þannig hafa mátt ráða
stærð steinanna.
Sá er þó galli á gjöf Njarðar að
við höfum ekki vissu fyrir því hvort
hér er um sérsmíðuð mót að ræða,
t.d. aðeins vegna kennslunnar, eða
hvort þetta muni hafa verið staðal-
verkfæri sem víðar þekktist. Hefur
einhver ykkar séð svona mót? Það
er vitað að steypusteinagerð var
stunduð víðar á fyrstu áratugum
steinsteypualdar. Þannig var skrif-
aranum til dæmis sagt frá steypu-
steinagerð námspilta Núpsskóla í
Dýrafirði undir lok fjórða áratugar-
ins. Skyldu þeir steinar fara í hús-
byggingu Kristins Guðlaugssonar,
bónda á Núpi.
Ef til vill hafa einhverjir, sem
lærðu steinsteypu- og steinagerð
á Hvanneyri með þessum mótum,
haldið henni áfram þegar heim
kom. En þótt steypumót
Hvanneyrarskóla hafi
varðveizt skortir okkur
örugga lýsingu á því
hvernig steypuverkið gekk
fyrir sig. Sé einhver lesandi
aflögufær um þá vitneskju væri
afar gagnlegt að heyra í honum
eða frá honum um það.
Gripahús og jafnvel íbúðarhús
voru hlaðin úr steyptum steinum, og
þá steinum sem sérstaklega höfðu
að efni og gerð verið þróaðir í því
skyni. Sá byggingarmáti tengir með
sínum hætti saman hina aldagömlu
aðferð við húsbyggingar hérlendis,
hleðslu úr torfi og grjóti, og stein-
steypuöldina.
Bjarni Guðmundsson
Mót til að steypa
hleðslusteina.
Alþjóðahafrannsóknaráðið:
Upphafsráðgjöf ICES loðnu-
veiða er 400.000 tonn
Ráðgjöf ICES byggir á mælingum á stærð ókynþroska hluta loðnustofnsins,
eins og tveggja ára.
Alþjóðahafrannsóknaráðið
(ICES) hefur birt upphafsráðgjöf
um veiðar á loðnu á vertíðinni
2022/23. Ráðgjöfin hljóðar upp
á 400 þúsund tonn, sem er í
samræmi við gildandi aflareglu
strandríkja að stofninum.
Á vef Hafrannsóknastofnunar
segir að ráðgjöfin byggist á mæl-
ingum á stærð ókynþroska hluta
loðnustofnsins, eins og tveggja
ára, í september síðastliðnum í
leiðöngrum Hafrannsóknastofnunar
og systurstofnunar hennar á
Grænlandi. Samtals mældust um
130 mill jarðar af ókynþroska
eins og tveggja ára loðnu sem
er nægjanlegt magn til að gefa
hámarks upphafsráðgjöf sem
aflareglan leyfir, eða 400 þúsund
tonn. Þetta er sama upphafsráðgjöf
og ICES gaf fyrir ári síðan fyrir
núverandi vertíð en þá var vísitalan
146 milljarðar.
Ráðgjöf verður endurskoðuð
að loknum mælingum á þessum
hluta stofnsins sem fyrirhugaðar
eru í september 2022. /VH
NYTJAR HAFSINS
Brislingur (Sprattus sprattus) er smávaxinn fiskur af síldarætt, verður
sjaldnast stærri en 16 sentímetrar. Mynd / wikimedia.org
Brislingur er farinn
að veiðast við Ísland
Brislingur er fisktegund sem
er farinn að veiðast í auknum
mæli við landið. Í nýlegu hefti
Náttúrufræðingsins er grein um
fisktegundina og þar segir að hún
hafi fundist í vaxandi mæli við
Íslandsstrendur frá árinu 2017.
Í greininni er getið um alla þekkta
fundarstaði brislings við landið
hingað til. Brislingur er fremur
strandlægur fiskur og hefur nú fundist
víða við sunnan- og vestanvert
landið, flestir út af Rangársandi og
Landeyjasandi, í Faxaflóa, Arnarfirði
og Ísafjarðardjúpi. Langflestir
brislinganna voru kynþroska fiskar.
Samkvæmt upplýsingum á
vefsíðu Hafrannsóknastofnunar
veiddist brislingur í fyrsta skipti
við Ísland í ágúst 2017. Einungis
einn fiskur veiddist og var hann 15
sentímetra langur og fékkst á 20
metra dýpi undan Eyjafjallasandi.
Brislingur (Sprattus sprattus)
er smávaxinn fiskur af síldarætt,
verður sjaldnast stærri en 16
sentímetrar. Hann líkist smásíld,
en er auðgreindur frá síld á því að
kviðrönd er með þunnan, snarp-
tenntan kjöl og rætur kviðugga eru
undir eða rétt framan við upphaf
bakugga í stað þess að vera undir
honum miðjum.
Brislingur er uppsjávarfiskur á
grunnsævi, oft nærri ströndum og
þolir vel seltulítinn sjó.
Útbreiðslan er víðáttumikil
á landgrunni Norður-Evrópu
og Afríku, einkum innan 50
m dýptarlínu. Hún nær frá
Atlantshafsströnd Marokkó og
norður í Norðursjó og að strönd
suðurhluta Noregs og inn í Eystrasalt.
Þá finnst hann í Miðjarðarhafi,
Adríahafi og Svartahafi.
Brislingur er mikilvæg stærð
í vistkerfinu í Eystrasalti og
Norðursjó og spennandi verður að
fylgjast með hvernig honum muni
reiða af hér við land. /VH
4,9%
8,1%
18,8%
27,0%
41,9%
0,0%
5,0%
10,0%
15,0%
20,0%
25,0%
30,0%
35,0%
40,0%
45,0%
Viðskiptablaðið Stundin Morgunblaðið Fréttablaðið Bændablaðið
Meðallestur prentmiðla
á landsbyggðinni
Samkvæmt prentmiðlamælingu Gallup
á fjórða ársfjórðungi 2021
Kemur næst út 10. febrúar – Hvar auglýsir þú?
Olís lokar Rekstrarlandi
á Selfossi og í Reykjavík
„Já, það er rétt skilið, lokun-
in á Selfossi er liður af stærri
skipulagsbreytingu á stórnotenda-
sölu innan Haga samstæðunnar.
Rekstrarland í Reykjavík mun
jafnframt loka sem hluti af þessum
skipulagsbreytingum. Við gerum
ráð fyrir að loka á Selfossi í núver-
andi mynd 1. febrúar,“ segir Frosti
Ólafsson, framkvæmdastjóri Olís.
Hann var einnig spurður hvort
það væri rétt að fyrirtækið væri að
loka Rekstrarlandi sínu á Selfossi og
þá Reykjavík líka.
„Gert er ráð fyrir því að ný
rekstrareining verði stofnuð innan
Haga til að sinna uppbyggingu á
sölu- og þjónustustarfsemi gagnvart
stór notendum. Þessi eining kemur til
með að nýta það sterka innkaupa-
og vöruhúsakerfi sem til staðar er í
samstæðu Haga,“ bætir Frosti við.
Samhliða stofnun þessarar nýju
rekstrareiningar verður skipulagi
stórnotendasölu innan Olís breytt.
Ný sölueining Haga kemur til með
að taka yfir þá vöruflokka innan
Olís, sem hafa sterka samlegð
með innviðum, skipulagi og væntu
vöruframboði nýrrar einingar.
Umræddir vöruflokkar sem koma
til með að flytjast úr Olís yfir í nýja
einingu eru hreinlætis-, rekstrar- og
heilbrigðisvörur.
„Auk vefverslunar og
símasöluvers verðum við með lítinn
afgreiðslulager og söluskrifstofu á
Selfossi. Og til að mæta þörfum
einstaklinga verður vöruframboðið
aukið á þjónustustöð Olís á
Selfossi. Til viðbótar selur Bónus
á Selfossi ýmsar rekstrarvörur á
samkeppnishæfu verði sem hentar
minni aðilum,“ segir Frosti.
/MHH
Olís mun loka Rekstrarlandi sínu á
Selfossi 1. febrúar. Einnig verður
lokað í Reykjavík. Mynd / MHH