Bændablaðið - 27.01.2022, Page 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. janúar 2022 39
Þann 1. febrúar n.k. opnar Matvælastofnun fyrir umsóknir um styrki vegna vatnsveitna á lögbýlum í samræmi við reglugerð
um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til vatnsveitna á lögbýlum, nr. 180/2016.
Umsókn um styrk til vatnsveituframkvæmda (nr. 10.06) er í þjónustugátt MAST sem er aðgengileg á heimasíðu Matvælastofnunar.
Umsækjandi skráir sig inn með Íslykli eða rafrænum skilríkjum.
Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar n.k. Umsóknarfrestur verður ekki framlengdur.
Eftirfarandi fylgigögn skulu fylgja með umsókninni:
• Mat úttektaraðila á þörf býlis fyrir framkvæmd
• Staðfest kostnaðar- og framkvæmdaráætlun
• Teikningar sé um byggingar að ræða
• Umsögn viðkomandi sveitastjórnar um að skilyrði 1. mgr. 1. gr. ofangreindrar reglugerðar séu uppfyllt,
þ.e. að hagkvæmara sé að mati sveitastjórnar að leggja vatnsveitu að einstökum bæjum,
sbr. 2. mgr. 1. gr. laga um vatnsveitur sveitafélaga, nr. 32/2004
Stuðningur fyrir hverja framkvæmd getur að hámarki numið 44% af stofnkostnaði við vatnsveitu til heimilis- og búsþarfa,
þ.e. kostnaðar við vatnsupptöku, þar með talin borun eftir vatni og dælur, vatnsgeyma og leiðslu frá vatnsbóli að bæjarvegg.
Ennfremur telst til stofnkostnaðar þóknun fyrir úttekt á framkvæmdinni.
Vakin er athygli á því að þeir umsækjendur sem áttu samþykkta umsókn á sl. ári,
en luku ekki framkvæmdum, þurfa að sækja um aftur.
Ítarefni
• Upplýsingasíða Matvælastofnunar um vatnsveitustyrki,
www.mast.is/is/baendur/vatnsveitustyrkir
Vatnsveitur fyrir lögbýli
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
árum fyrr á síðum prentmiðlanna.
Þar var annar póll tekinn í hæðina
og konum hyglt eins og enginn væri
morgundagurinn. Jafnvel þótti við
hæfi að þær veldu sér blómin sjálfar.
Blómaflaustur þetta hófst annars
allt með uppátækjasemi í bland við
alúð blómakaupmanns nokkurs,
Þórðar Þorsteinssonar að nafni, en
hann átti einmitt Gróðrarstöðina að
Sæbóli sem var lengi farsællega rekin
í Fossvogi. Vegna áhrifa Þórðar kemur
svo fyrsta blaðaauglýsing konudags-
blóma, árið 1957, frá Félagi garð-
yrkjubænda og blómaverslana. Þórður
þessi, ásamt fjölskyldu sinni, sá stór-
um hluta íbúa á höfuðborgarsvæðinu
fyrir blómum til fjölda ára auk þess
sem ágóða mæðradags hvers árs létu
hann og Helga kona hans ávallt renna
til mæðrastyrksnefndar.
Mánuður góu hefst annars á
sunnudegi átjándu viku vetrar sem
er nefndur konudagur.
Síðasti dagur góu nefnist hins
vegar góuþræll og samkvæmt íslenska
almanaksvefnum þykir hann einn
versti óhappadagur ársins.
Yngissveinadagur
Einmánuður er síðasti vetrarmánuð-
urinn en fyrsti dagur hans er helgaður
ungum piltum, kallaður yngismanna-
eða yngisveinadagur. Þótti við hæfi að
stúlkur færu á fætur þann dag fyrr en
piltar og færðu þeim glaðning.
Yngismeyjadagur
Harpa, fyrsti sumarmánuðurinn, er
haldinn hátíðlegur, í raun bæði með
sumardeginum fyrsta og þá jafnframt
degi yngismeyja. Ekki fer þó fregnum
af því að piltar hafi rokið upp fyrir allar
aldir og stússað við ungmeyjarnar,
þótt dagurinn væri víst helgaður þeim.
Heldur hefur þó fólk vanist því að
halda hátíðlegan fyrsta sumardag á
meðan dagur yngismeyja hefur fallið
í skuggann, en aldir eru síðan sumrinu
var fyrst blótað þennan dag.
Og svo áfram veginn
Skerpla tekur við af hörpu sem áttundi
mánuður ársins og er uppruni nafnsins
óræður, en gæti komið af orðinu
skorpinn eða þurrinn.
Sólmánuðurinn, þriðji sumar-
mánuðurinn, byrjar á sólstöðum
og í byrjun hans þótti gott að fara
á grasafjall eins og var kallað.
Jurtum til lækninga var safnað og
hvannir skornar auk þess sem töfrar
Jónsmessunnar voru hylltir.
Heyannir, nafn mánaðarins næst á
eftir sólmánuði, kennir iðju þess tíma
árs, heyskapar auk þess sem þótti best,
um miðjan mánuð að hefja sölvatekju.
Nafn tvímánaðar hefur verið skýrt
á ýmsa vegu en réttasta skýringin er
sjálfsagt sú að á þeim tíma eru tveir
mánuðir til vetrar.
Að lokum ber að nefna haust-
mánuð, sem einnig er nefndur garð-
lags mánuður þar sem á þessum tíma
þótti ekki seinna vænna en að ganga í
að bæta túngarða, hús eða annað sem
þótti bóta við.
En nú er ekki seinna vænna að fara
að huga að konudeginum ef frúrnar
hafa ekki skellt í lás eftir síðasta
bóndadag.
(Svona ef einhver gerði alvöru úr
því að hoppa um buxnalaus ...) /SP
Norræn goðafræði segir svo frá að Máni væri persónugervingur tunglsins,
sonur Mundilfara og bróðir Sólar sem á næturnar ferðaðist í hestvagni yfir
himininn og réði hvort tunglið væri vaxandi eða minnkandi.
Helluhraun 4, Hafnarfirði
sími 565 2727 & 892 7502HECHT barna
Rafmagnsfjórhjól
Verð128.000 kr.
FLIEGL vélavagnar ERGOLASH strappar
35% fljótvirkari.
Verð 4.990 kr. + vsk