Bændablaðið - 27.01.2022, Page 43

Bændablaðið - 27.01.2022, Page 43
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. janúar 2022 43 AF VETTVANGI BÆNDASAMTAKANNA Bændur geta ekki beðið og vonað Á undanförnum árum hafa sauðfjár bændur á Íslandi þurft að takast á við miklar áskoranir. Árið 2016 varð 10% verðfall og árið 2017 hrundi afurðaverð um 30%. Þetta hefur haft gríðarmikil áhrif á greinina. Ástæður verðfallsins þekkja flestir, framleiðslan hafði verið í hærri mörkum nokkur ár þar á undan, ekki síst vegna þess að vel hafði gengið í útflutningi og afkoman var viðunandi bæði fyrir bændur og afurðastöðvar. En eftir að verð á erlendum mörkuðum gaf eftir árin 2015-2017 leiddi það til birgðasöfnunar hér á landi sem orsakaði verðhrun á innanlands- markaði. Hvað höfum við gert síðan og hvað hefur breyst? Bændur hafa dreg- ið verulega úr framleiðslu dilkakjöts, endurskoðun sauðfjársamnings var flýtt, afurðaverð hefur hækkað en þó ekki að fullu gengið til baka miðað við afurðaverð ársins 2015. Á síðustu árum hafa stjórnvöld í tvígang komið með aukið fjármagn inn í greinina. Annars vegar í upphafi árs 2018 (650 milljónir) og hins vegar á síðasta ári (727 milljónir) til að hjálpa bænd- um að takast á við áhrif Covid-19 á afkomu greinarinnar. Það er rétt að halda því til haga að allt það viðbótarfjármagn sem stjórnvöld hafa lagt til hefur nýst vel til skamms tíma og fyrir það eru bændur þakklátir. Það er ekki, og á aldrei að vera, sjálfsagt að ríkið grípi inn í. Mikilvægt er að vanda vel til verka þegar það er gert og tryggja sem besta nýtingu fjármuna. Því miður hafa þessar aðgerðir ekki skilað viðsnúningi í afurðaverði til bænda með þeim hraða og hætti sem æskilegt væri. Bændum er að blæða út, því miður. En hvað er það sem bændaforustan hefur verið að tala fyrir, allan þennan tíma (fyrir heldur daufum eyrum)? Hagræðing í slátrun og vinnslu. Það hefur verið okkar baráttumál frá því að hrun afurðaverðs varð ljóst. Það sjá það allir sem vilja, að það er bæði neytendum í þessu landi og bænd- um allt of dýrt að vera með slátrun og vinnslu afurðanna á mjög mörg- um höndum. Frá árinu 2017 hefur fé fækkað um rúm 74 þúsund, eða 15%. Á þessu tímabili er samdráttur í dilkaslátrun upp á 100 þúsund dilka. Á sama tíma höfum við ekki gengið nægilega hraustlega fram í hagræðingu afurðageirans. Við sjáum það að á sama tíma og krafa um innflutning matvæla hefur aukist til mikilla muna þá erum við að auka kostnað við slátrun og vinnslu afurð- anna. Það er okkur bændum mikið keppikefli að geta boðið neytend- um gæðavöru á viðráðanlegu verði, en við verðum að geta lifað líka. Greitt okkur laun. Sinnt nauðsyn- legu viðhaldi og uppbyggingu búanna, en til þess að það sé hægt þá verður að gera okkur kleift að hag- ræða í slátrun og vinnslu afurðanna. Samruni Kjarnafæðis og Norðlenska er ágætt fyrsta skref. En það verður að gera betur. Nú má öllum vera ljóst að síðan að afurðaverð hrundi hafa sauðfjár- bændur leitað allra leiða til að hag- ræða í sínum rekstri heima fyrir og gert það með myndarbrag. Staðan er hins vegar sú í dag að við okkur blasa hækkanir á aðföng- um, áburðarverð er að tvöfaldast og hver veit hvar verð á plasti, olíu, kjarnfóðri og öðrum aðföngum mun enda. Það er algjörlega ljóst að bænd- ur eru sjálfir komnir að þolmörkum hagræðingarinnar heima fyrir og alveg ljóst að fækkun fjár með til- heyrandi byggðaröskun mun koma inn af fullum þunga í haust. Hljóðið er þannig í bændum að þeir sem ekki ætla að hætta, ætla að fækka. Hvers vegna er það? Jú, það er vegna þess að nú eru menn búnir að ganga á alla sjóði, hvort sem þeir eru veraldleg- ir eða bara andlegir. Það er búið að draga úr okkur allar tennurnar. Ég get á margan hátt tekið undir með Birgi, félaga mínum á Kornsá, sem skrifaði ágæta grein í Bændablaðið fyrir stuttu síðan, að gott væri að ríkið kæmi að uppsetn- ingu á opinberri verðlagningu og tel ég að það sé vel þess virði að skoða hvernig væri hægt að útfæra. Það mætti kannski hugsa sér að setja það upp og láta gilda tímabundið eða á meðan við erum að klára samtal ríkis og afurðastöðva um hvernig við getum náð fram þeirri hagræðingu sem nauðsynleg er. Það er alveg ljóst að þær áskoranir sem sauðfjárbændur standa frammi fyrir núna með marg- földun á framleiðslukostnaði, sem ekki er ljóst hvernig eigi að mæta, mun hafa mikið meiri áhrif heldur en verðfallið sem við höfum verið að reyna að vinna okkur út úr á síð- astliðnum árum. Framleiðslan hefur dregist það mikið saman á undan- förnum árum að það er ekki langt í að við stöndum frammi fyrir þeirri staðreynd að við getum ekki tryggt nægilegt framboð af öllum skrokk- hlutum lambsins á markað. Hvernig verður því mætt? Í ljósi afkomu í sauðfjárrækt er eðlilegt að bændur taki ákvarðanir nú um að ýmist hætta og eða draga verulega úr framleiðsl- unni, það verða jú allir að reyna að lágmarka þann skaða sem þeir eru að verða fyrir. Sauðfjárbændur eru núna þessa dagana að taka ákvarðanir um framhaldið, en hvaða upplýsingar höfum við til ákvörðunartöku? Við vitum hvað áburðurinn kostar við vitum hvað við fengum fyrir kíló- ið af lambakjöti á síðastliðnu ári en við höfum enga hugmynd um hvað við munum fá næsta haust. Hvernig á að vera hægt að taka meðvitaða ákvörðun um framhald búskap- ar þegar við vitum ekki hvað við erum að fara að fá fyrir afurðirnar? Afurðastöðvar í kjötiðnaði verða að stíga fram núna og sýna okkur hverju við er að búast næsta haust, það er einföld krafa okkar og skilyrðislaus réttur bænda að fá einhverja hug- mynd um hvað er í vændum þegar svo stórar ákvarðanir eru í farvatninu. Það vita allir að margt getur breyst fram á haustið sem getur haft áhrif á verðþróun dilkakjöts, en það þarf enginn að segja mér að forsvarsmenn afurðastöðva horfi ekki lengra fram í tímann en svo að þeir geti ekki sagt okkur núna hverjar lágmarks- breytingar verða á verði til bænda. Það er a.m.k. ekki í boði hjá bændum, afurðastöðvum og ríkinu að sitja og vona það besta. Það er núna sem við þurfum að grípa til þeirra aðgerða sem við sjáum að geti varið okkar framleiðslu og byggt undir stoðir hennar til framtíðar. Trausti Hjálmarsson Austurhlíð, Biskupstungum, stjórnarmaður í búgreinadeild sauðfjárbænda BÍ Gröfin hér fyrir ofan sýna þróun ásetnings og framleiðslu á dilkakjöti síðustu ár. Ekki liggja fyrir fjöldatölur nú um áramót, en gert ráð fyrir að vetrarfóðraðar ær verði um 380 þúsund og heildar framleiðsla á dilkakjöti um 7.600 tonn í haust. Sú óvissa sem nú er varðandi afkomu sauðfjárbænda mun leiða til áframhaldandi fækkunar a komandi hausti. Ef vetrarfóðruðum kindum fækkar t.d. um 20% á komandi haust mun framleiðsla á dilkakjöti haustið 2023 verða um 6.100 tonn. Verkefni ritstjóra eru m.a.: √ Umsjón með ritstjórn, útgáfu og umbroti Bændablaðsins og vefmiðlum √ Stýra fréttafundum √ Rýna fréttaefni og efnistök √ Efnisöflun og skrif √ Þátttaka í öðrum verkefnum sem tengjast starfi og þjónustu félagsins Menntunar- og hæfniskröfur √ Menntun sem nýtist í starfi æskileg √ Ritfærni og góð kunnátta í íslensku og ensku er nauðsynleg √ Þekking og reynsla af fjölmiðlum √ Reynsla af stjórnunarstarfi √ Mikil færni í mannlegum samskiptum √ Þekking á samfélagsmiðlum √ Frumkvæði og sjálfstæði í starfi Vilt þú ritstýra einum stærsta fréttamiðli landsins? Bændablaðið leitar að nýjum ritstjóra. Starfið er umfangsmikið og krefjandi á skemmtilegum vinnustað. Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands sem rekur m.a. vefina www.bbl.is og Hlöðuna hlaðvarp. Viðkomandi þarf að geta unnið vel undir álagi, þekkja vel til málefna líðandi stundar, vera fær verkefnastjóri og vera vel tengdur inn í íslenskt samfélag. Umsóknum skal fylgja ferilskrá með mynd og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, auk rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknir skal senda til Vigdísar Häsler, framkvæmdastjóra Bændasamtaka Íslands á netfangið vigdis@bondi.is fyrir 28. febrúar 2022, merkt Umsókn um starf ritstjóra. Hagatorg, 107 Reykjavík

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.