Bændablaðið - 27.01.2022, Page 63

Bændablaðið - 27.01.2022, Page 63
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. janúar 2022 63 Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020 eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is Skipholt 50b, 105 Reykjavík Vegna aukinnar eftirspurnar óskum við eftir bújörðum á söluskrá VHE • Melabraut 27 Hafnarfjörður • Hraun 5 Reyðarfirði • Sími 843 8804 • Fax 575 9701 • www.vhe.is • sala@vhe.is SMÍÐUM OG GERUM VIÐ ALLAR GERÐIR TJAKKA Glerárgata 34b við Hvannavelli • S 461 1092 • asco.is OKKAR ÆR OG KÝR — STARTARAR OG ALTERNATORAR — Jobman samfestingar: Frábærir gallar sem eru liprir og þægilegir. Rennilás upp að hnjám. Endurskinsrönd til að auka sýnileika. Má þvo samfestinginn við 85°. 85°Verð: 12.388 kr. JOBMAN 4327 Við leggjum áherslu á góða þjónustu við landsbyggðina. Vefverslun: Khvinnufot.is Brettagaflar með EURO festingum og handfærslu. Burður 2,5 tonn kr. 189.000 m/vsk. H. Hauksson ehf. S. 588-1130. Ný hestakerra fyrir 4 hesta frá Cheval-Liberte, vandaðar kerrur með einstakan fjöðrunarbúnað, gormafjöðrun með dempurum. Topplausnir, Smiðjuveg 12- græn gata 200 Kópavog. S. 517-7718. www.topplausnir.is Tokvam 260 THS Monster til sölu. Árg. 2021, 1000 rpm til notkun- ar framan á 160-300 ha drátt- arvél. Mjög lítið notaður og lítur vel út. Verð kr. 3.500.000 +vsk. Uppl. í síma 821-1125. Sjálfsogandi dælur frá Japan (Kos- hin). Fyrir vatn, skolp, mjög óhreint vatn (trash). 2“ , 3“ , 4“. Orginal Honda vélar með smurolíuöryggi. Hákonarson ehf. S. 892-4163, hak@hak.is, www.hak.is Smíðum upphækkanir með neti á flestar kerrugerðir. Flott grind til alls konar flutninga t.d. á kindum, vörum eða rusli. Sími. 837-7750, Til sölu Til sölu Hitachi 140 hjólavél, árg. 2013, ek. 8500 vst. Verð kr. 10.900.000 +vsk. Upplýsingar í síma 892-3009. Til sölu 8 stk. Liner bílskúrshurðir í góðu ástandi, 3 x 2,50 m. Verð kr. 80.000 stykkið Uppl. í s. 895-0665. Er að rífa gráan Nissan Patfinder árg. 2008. Mikið af góðum varahlut- um, sjálfskipting, drif ofl. Uppl. í s. 894-4082 /jarnih@simnet.is Landrover 4 19" álfelgur og 3 dekk Goodyear Allterrain 255-55-19 til sölu, nánast ný. Upplýsingar fridrik@ laeknastodin.is Nokkrar varphænur í fullu varpi. Nokkrar kynbótaendur sem byrja að verpa í febrúar. Hundrað eggja útungunarvélar til sölu á sama stað. Sími 899-4600. Timbur, 71 stk. 48 x 223 mm x 4,8 m. Verð kr. 1.281 lm m/vsk. 25 x 150 mm L = 4,2 m. Verð kr. 340 lm m/ vsk. H. Hauksson ehf. s. 588-1130 Skoda Octavia 2012, dísel, bein- skiptur, framdrifinn, ljósbrúnn, ekinn 138.000 km. Nýskoðaður, einn eig- andi. Verð kr. 990.000. Upplýsingar í s. 892-6824. Óska eftir Rauðmaganet. Óska eftir að kaupa rauðmaganet. Baldur s. 857-1887. Kamína. Má líta illa út ef hún virkar. Ætla að nota úti. Uppl. í s. 698-2157. Óska eftir litlum rúlluvagni (8-11), eða sturtuvagni. Þarf að vera í góðu lagi. Uppl. í s. 893-2659. Willys CJ2 Willys 1947. Átt þú eða veist um einhvern sem á glugga- stykki og eða frambretti sem ég get keypt? Uppl. s. 899-1041, Kiddi. Þjónusta Tek að mér viðgerðir á flestum tegundum sjálfskiptinga. Hafið sam- band í s. 663-9589 til að fá uppl. og tilboð. HP transmission, Akureyri. Netfang- einar.g9@gmail.com, Einar G. Tek að mér að færa vídeó, slide og ljósmyndir á stafrænt form/flakkara. S. 863-7265 siggil@simnet.is Þann 16. desember birtist grein í Bændablaðinu þar sem ég greindi frá því að stjórn Landverndar teldi að fram hefðu komið vís- bendingar um að tvær framandi trjátegundir, stafafura og sitka- greni, hafi eiginleika sem kunni að gera þær ágengar í íslenskri náttúru. Í Bændablaðinu 13. janúar sl. birtist andsvar Skógræktarinnar við greininni undir heitinu Enginn líffræðilegur veruleiki. Þar er tekið undir ákall stjórnar Landverndar um að áhrif stafafuru og sitkagrenis verði metin á vísindalegum grunni. En ef marka má greinina að öðru leyti, telur stofnunin að málið hafi nú þegar verið rannsakað hvað stafafuru varðar og að niðurstöður þeirra rannsókna sýni ekki að þær valdi rýrnun líffjölbreytni og gefi því ekki tilefni til sérstakra aðgerða. Stjórn Landverndar er ekki á sama máli. Í grein Skógræktarinnar er gefið í skyn að annarleg sjónar- mið liggi að baki og Landvernd sé að velja sér „óvin“. Svo er alls ekki og frábið ég samtök- unum slíkar ásakanir af hálfu þessarar mikilvægu ríkisstofnun- ar sem Skógræktin vissulega er. Málefnið eitt ræður afstöðu stjórnar Landverndar; sá grunur sem er uppi um skaðsemi framagreindra fram- andi trjátegunda í íslenskri náttúru er rökstuddur. Ég leyfi mér að rifja upp að stjórn Landverndar byggir skoðun sína á þeirri staðreynd að sitkagreni er skilgreint sem ágeng tegund í Danmörku, Noregi og Svíþjóð og mögulega ágeng tegund á Írlandi í gagnagrunninum NOBANIS sem var stofnaður fyrir tilstuðlan Norrænu ráðherranefndarinnar. Í sama gagnagrunni er stafafura skilgreind sem framandi ágeng tegund í Danmörku og Svíþjóð og sem mögulega ágeng tegund á Írlandi, Noregi og á Íslandi. Ýmsar aðrar rannsóknir og reglur sem beitt er erlendis styðja þá tilgátu að framangreindar tegundir geti verið ágengar. Í nýrri rannsókn Pawels Wasowicz, grasafræðings hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, ber allt að sama brunni. Fjöldi líffræðinga og vistfræðinga hefur einnig varað við mögulegum ágengum eiginleikum tegundanna tveggja. Stjórn Landvernd hefur einnig í huga að ein meginregla í náttúru- vernd er varúðarreglan; að náttúr- an fái að njóta vafans. Þá mótast afstaða hennar af þeirri staðreynd að heilladrýgst er að eiga við mögu- lega ágengar tegundir áður en þær fara í veldisvöxt. Viðvörunarbjöllur hljóma vegna framangreindra trjá- tegunda og nauðsynlegt er að bregð- ast við þeim. Grein Skógræktarinnar staðfestir það sem ég sagði í grein minni í desember; uppi eru mismunandi skoðanir á því hvort gróðursetning framandi trjátegunda hér á landi muni draga úr líffræðilegri fjölbreytni þegar fram líða stundir og skaða þannig okkar viðkvæmu náttúru og draga úr lífbreytileika. Stofnanir íslenska ríkisins greinir á um það og vísindamenn á þessu sviði eru ekki sammála ef marka má grein Skógræktarinnar. Þessi ágreiningur veldur því að félagasamtök og áhugafólk um verndun náttúru Íslands og skógrækt eru ráðvillt. Því kallar Landvernd eftir skýrum leiðbeiningum sem byggja á vísindalegri þekkingu. Stjórn Landverndar telur að svo við getum búið í sæmilegri sátt um skógrækt og náttúruvernd hér á landi þurfi að meta bæði stafafuru og sitkagreni á grundvelli fyrirliggjandi rannsókna, þeirra laga sem gilda um verndun lífbreytileika og þeirra alþjóðlegu samninga sem Ísland á aðild að um þetta efni. Í náttúruverndarlögum er kveðið á um að vernda beri íslenska náttúru gegn framandi ágengum tegundum. Við erum svo heppin að á Íslandi er lögformleg leið til að komast að niðurstöðu um notkun einstakra tegunda. Stjórnvöld hafa nefnilega komið á sérstakri nefnd sérfræðinga um innflutning og ræktun útlendra plötutegunda sem á grundvelli fyrirliggjandi þekkingar skal skera úr um hvort erlend tegund sé ágeng og hvort tilefni sé til að setja reglur um notkun hennar eða jafnvel banna. Landvernd hefur sent erindi til stjórnvalda og kallað eftir því að framangreindar trjátegundir verði teknar til mats eins og lögin segja til um. Ég tel að það sé skógrækt í landinu fyrir bestu að það verði gert fyrr en síðar. Tryggvi Felixson, formaður Landverndar, skrifar: Vafi og vísindi – lögin eru skýr LESENDARÝNI

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.