Bændablaðið - 10.02.2022, Blaðsíða 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. febrúar 20228
Hjá Ráðgjafarmiðstöð landbún
aðarins (RML) hefur skýrsla verið
unnin um rekstur og afkomu kúa
búa fyrir tímabilið 2017 til 2020.
Skýrslan leiðir í ljós að afkoma
greinarinnar hefur versnað til
muna frá árinu 2018 og ef fram
heldur sem horfir muni rekstrar
hæfni hluta íslenskra kúabúa vera
í mikilli hættu.
Kristján Óttar Eymundsson hefur
stýrt verkefninu af hálfu RML og
segir hann skýringuna vera að á árun-
um 2019 og 2020 hafi afurðaverðs-
hækkanir til kúabænda ekki náð að
fylgja eftir hækkunum á aðföngum
og launakostnaði. Á sama tíma hafi
skuldsetning búanna aukist.
Rekstrarhæfni búanna í hættu
Til grundvallar verkefninu liggja
rekstrargögn 123 kúabúa af öllu
landinu, en um framhald verkefnis
er að ræða sem fór af stað sumarið
2020. Það ár tóku 90 kúabú þátt og
fengu ítarlega greiningu á sínum
rekstri á árunum 2017-2019 og hann
settur í samhengi við önnur bú.
Kristján segir að með verkefn inu
nú fáist enn betri mynd á afkomu-
þróun kúabúa síðustu árin, auk þess
sem hver og einn þátttakandi fái betri
tilfinningu fyrir því hvernig hann
stendur í sínum rekstri með tilliti til
annarra búa.
„Þátttökubúin lögðu samtals inn
árlega á bilinu 41,2-43,8 milljónir
lítra af mjólk á árunum 2017-2020
og svarar framleiðslan um 27-29
prósentum af heildarinnleggi mjólk-
ur á landsvísu. Það hlutfall, ásamt
samanburði á gögnum frá fyrra ári,
bendir til að gögnin gefi góða mynd
af stöðu og þróun í greininni.
Aukin skuldsetning og lækk-
andi framlegð er mikið áhyggju-
efni miðað við það umhverfi sem
við búum við í dag þar sem aðföng
fara hækkandi, verðbólga er mikil
og yfirvofandi eru enn meiri stýri-
vaxtahækkanir. Kúabændur sem
stétt, hljóta því að fara fram á hærra
afurðaverð, annars muni rekstrar-
hæfni hluta búanna verða í mikilli
hættu. Í árslok 2020 var 27 prósenta
þátttökubúanna með skuldahlutfall-
ið 2,5 eða hærra en í árslok 2017
var hlutfallið 16 prósent. Aðhald í
rekstri og góð bústjórn, sem stuðlar
að mikilli afurðasemi með hlutsfalls-
lega lágum breytilegum kostnaði,
hefur sjaldan verið mikilvægari,“
segir Kristján.
Meiri afurðasemi, minni
kostnaður
„Það er magnað að sjá bú í verkefn-
inu sem eru að framleiða yfir 7.000
lítra af innlagðri mjólk eftir árskúna
en eru einungis með breytilegan
kostnaðinn um eða undir 50 krónur
á lítrann, þegar meðaltalið er 73,7
krónur á lítrann,“ segir Kristján.
„Það ætti að verða öðrum bænd-
um hvatning en helstu tækifæri
kúabænda liggja einmitt í aukinni
afurðasemi og hlutfallslega lægri
breytilegum kostnaði á innlagðan
lítra. Gögnin sýna fram á mikinn
breytileika á milli búa og þar með á
mikið svigrúm til hagræðingar. Þar
er um að ræða gífurlega hagsmuni
fyrir greinina enda hljóta allir að
sjá þann mikla rekstrarmun á búum
sem hafa breytilegan kostnað 50 eða
75 krónur á lítrann. Þar munar 2,5
milljónum króna á hverja 100 þús-
und lítra.“
Lækkandi framlegðarstig
Sem fyrr segir hafa afurðaverðs-
hækkanir frá 2019 ekki náð að
fylgja eftir hækkunum á aðföngum
og launakostnaði, sem hefur að sögn
Kristjáns leitt til lækkandi fram-
legðarstigs afurðatekna og minni
rekstrarafgangs. Hann bendir á
meðfylgjandi súlurit sem sýnir að
þessi þróun hefur valdið því að af-
urðahæsti flokkurinn á árinu 2020
er með svipað framlegðarstig og
afurðalægsti flokkurinn var með á
árinu 2017.
„Hækkun á breytilegum kostnaði
á föstu verðlagi hvers árs er 9,4 krón-
ur á lítrann á árabilinu 2017-2020.
Hálffastur og fastur kostnaður án
afskrifta og fjármagnsliða hækkaði
síðan um 5,3 krónur á sama tímabili.
Verð á viðmiðunarmjólk, samkvæmt
ákvörðun verðlagsnefndar búvara,
fór úr 87,40 krónur á lítrann 1. jan-
úar 2017, í 97,84 krónur á lítrann 1.
júní 2020. Það er hækkun um 10,44
krónur á lítrann, sem bendir til að
þær hafi ekki verið nægjanlegar og
komið of seint, eins og verðhækk-
anir 1. janúar og 1. júní 2020. Það
leiddi beint til versnandi afkomu
kúabænda á árunum 2019-2020,“
segir Kristján.
Meðalaldur kvígna við burð
er of hár
Kristján bendir á þá áhugaverðu
staðreynd, sem hafi komið í ljós
við yfirferð gagnanna, að hjá fram-
legðarhæstu búunum séu kvígurnar
ríflega mánuði yngri en hjá þeim
framlegðarlægstu.
„Meðalaldurinn á þeim búum
sem voru með mestu framlegðina
var samt 27,6 mánaða og ljóst að þar
er hægt að gera enn betur.
Einnig er áhugavert hvað hlutfall
endurræktunar er að jafnaði minna
á framlegðarhæstu búunum en er
að meðaltali. Þar er hlutfall ræktun-
ar af slegnum hekturum að jafnaði
um 12 prósent fyrir öll árin á meðan
að meðaltal allra búanna er um 17
prósent.
Niðurstöðurnar gefa líka til kynna
að framlegðarlægstu búin heyi fleiri
hektara. Meðaltal allra áranna er þar
2,0 hektarar á hverja árskú á meðan
meðalbúið er að heyja 1,6 hektara
fyrir hverja árskú.
Þetta eru bústjórnarþættir sem
geta haft bein áhrif á fóðuröflunar-
kostnað búanna og því vert að gefa
þeim meiri athygli,“ segir hann.
Skuldsetning búa hefur aukist
um þriðjung
Umfangsmiklar framkvæmdir hjá
mörgum kúabúunum hafa orðið
þess valdandi að skuldir hafa auk-
ist nokkuð á þessum árum. Að
meðaltali hækka skuldir úr 87,6 í
112,6 milljónir króna, eða um tæp
29 prósent.
„Á sama tíma hefur skulda-
hlutfallið hækkað úr 1,6 upp í 1,8
að meðaltali og heildartekjur úr 54,1
milljón króna í 60,5, eða um tæp 12
prósent á föstu verðlagi hvers árs.
Fjármagnskostnaður, sem hlutfall af
heildarveltu, reiknast um 10 prósent
á árinu 2017 og 11 prósent árin eftir
það,“ segir Kristján.
„Samspil vaxta- og verðbólgu-
þróunar var hagstætt á seinni hluta
tímabilsins og því hefði verið æski-
legt að sjá fjármagnskostnaðinn
lækka. Ljóst er að aukin verðbólga
og stýrivaxtahækkanir frá fyrri hluta
árs 2021 munu hafa áhrif á versnandi
afkomuhorfur kúabænda að teknu
tilliti til hækkandi skuldahlutfalls og
lækkandi framlegðar frá árinu 2018
að öðrum forsendum óbreyttum.“
/smh
FRÉTTIR
Kayo motocrosshjól
Flott hjól fyrir alla krakka.
Kayo fjórhjól
Fjórhjól fyrir börn og unglinga.
Nánari upplýsingar á
www.nitro.is
BARNAHJÓL
60cc 219.000,-
90cc 249.000,-
125cc 299.000,-
70cc 259.000,-
110cc 319.000,-
180cc 479.000,-
Nitró - Urðarhvarfi 4 - 557 4848 - nitro.is
Skýrsla RML um afkomu íslenskra kúabúa árin 2017–2020:
Rekstrarhæfni búa er í mikilli hættu
– Ýmsir þættir búrekstrarins þarfnast endurskoðunar
Afkoma kúabúa hefur versnað til muna frá árinu 2018 og ef fram heldur sem horfir mun rekstrarhæfni hluta íslenskra
kúabúa vera í mikilli hættu.
Mat á rekstrarhæfni þátttökubúa í árslok 2020. Myndin sýnir skuldahlutfall
þátttökubúa í árslok 2020 borið saman við hlutfall rekstrarafgangs (EBITDA)
af heildarveltu. 26% búanna eru með skuldahlutfallið undir 1,0 og 33% á
milli 1,0 og 2,0. Í árslok 2017 var samsvarandi hlutfall 32% og 37%. Stærsta
áhyggjuefnið, að mati Kristjáns, er þó hve búum hefur fjölgað mikið sem eru
með skuldahlutfallið 2,5 eða hærra. Í árslok 2017 voru 16 prósenta búanna
með slíkt hlutfall en 27 prósenta í árslok 2020. Mynd / RML
54%
54%
56% 56%
59%
49%
51% 51%
52%
55%
20%
25%
30%
35%
40%
45%
50%
55%
60%
< 5.500 5.501-6.000 6.001-6.500 6.501-7.000 7.001+
Fr
am
le
gð
ar
st
ig
a
fu
rð
at
ek
na
Innlagðrir lítrar á árskú
Samband framlegðarstigs og afurðasemi
2017 2020
Samhengið á milli afurðasemi og framlegðarstigs afurðatekna hjá þátttöku-
búum. Meðaltöl áranna 2017 og 2020 borin saman. Mynd / RML