Bændablaðið - 10.02.2022, Blaðsíða 52
52 Bændablaðið | Fimmtudagur 10. febrúar 2022
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Uppgjöri á skýrslum fjárræktar
félaganna fyrir árið 2021 er að
mestu lokið. Þrátt fyrir mikinn
kulda og lítinn gróður lengi
vel vorið 2021 var fallþungi
sláturlamba um haustið sá mesti
frá upphafi, eða 17,7 kg að
meðaltali.
Reiknaðar afurðir eftir hverja
fullorðna kind voru 29,5 kg að
meðaltali og aldrei verið hærri í sögu
skýrsluhaldins sem brátt fyllir 70 ár.
Reiknaðar afurðir voru meiri í öllum
héruðum landsins en árið 2020 að
Eyjafirði og Suður-Þingeyjarsýslu
undanskildum þar sem sömu afurðir
voru milli ára. Þegar fimm ára
meðaltal hverrar sýslu er skoðað
þá er aukning í afurðum árið 2021
hvað mest í Borgarfirði, Dölum og
Rangárvallasýslu eða tæp tveggja
kíló aukning á hverja kind.
Samhliða fækkun sauðfjár
þá hefur þátttaka í skýrsluhaldi
einnig dregist saman en tæplega
1.600 aðilar skiluðu skýrslum með
298.606 (315.748 - 2020) fullorðnar
ær haustið 2021. Veturgamlar ær í
skýrslu haldinu voru 63.389 (64.978
- 2020). Í heild er fækkun um nærri
70.000 ær og 190 skýrsluhaldara
frá árinu 2017 þegar fjöldi kinda í
skýrslu haldi var mestur.
Í skýrsluhaldi sauðfjár rækt-
arinnar eru skráðar um 95% af
ásettum ám m.v. upplýsingar úr
forða gæsluskýrslum. Einhver
bú eiga þó enn eftir að skila
skýrsluhaldi og eru þau hvött til þess
að ganga frá skýrslum hið fyrsta.
Rétt er að benda á að þetta hlutfall
heildarstofns í almennu skýrsluhaldi
sauðfjár er einsdæmi á heimsvísu.
Bætt meðferð að vori samhliða
betri beitarstjórnun að hausti er að
skila þessum árangri að stærstum
hluta ásamt aukinni frjósemi. Þegar
lykiltölur um frjósemi eru skoðaðar
nánar undanfarin ár hefur hlutfall
kinda sem verða þrílembdar aukist
talsvert og var 9,7% vorið 2021
en var 6,4% árið 2015. Yfir sama
tímabil má einnig sjá að hlutfall
geldra kinda er að aukast en það
var 4,2% vorið 2021 en var 3,1%
árið 2015. Þetta atriði þarf að
skoða betur, sérstaklega ef hlutfall
geldra kinda er að aukast vegna
erfðafræðilegra áhrifa.
Afurðir árið 2021
Frjósemi hefur aukist hægt og
bítandi undanfarin ár og var 1,85
fædd lömb á hverja kind. Hún er
mest í Vestur-Húnavatnssýslu eða
1,93 fædd lömb á hverja kind.
Þar er líka hvað hæst hlutfall af
fleirlembum (13,6%) og hlutfall
geldra kinda er undir landsmeðaltali.
Af þeim tæplega 1.000 búum
sem hafa fleiri en 100 fullorðnar
ær eru 125 bú með 2 lömb fædd
eða fleiri eftir hverja kind. Í
þremur fjárræktarfélögum eru 2
lömb eða fleiri fædd að jafnaði, í
fjárræktarfélagi Grýtubakkahrepps,
Vestur-Bárðdæla og Hvammshrepps
í V-Skaft.
Afurðir eftir fullorðnar ær voru
29,5 kíló eftir hverja kind árið 2021
sem er tæpu kílói meira en árið á
undan (28,6 kg - 2020) og talsvert
meiri en meðalafurðir síðustu fimm
ára sem reiknast 28,3 kíló. Á með-
fylgjandi mynd má sjá afurðir síð-
ustu tveggja ára (2021 rauð súla,
2020 græn súla) sýndar eftir sýslum
ásamt meðaltali áranna 2017-2021
(blá súla) í viðkomandi héraði. Alls
náðu 5 bú með fleiri en 100 kindur
því að vera með meira en 40 kg eftir
hverja fullorðna kind og sífellt fleiri
bú bætast í hóp afurðahárra búa.
Eyjólfur Ingvi Bjarnason
ráðunautur, Búfjárræktar-
og þjónustusvið
eyjólfur@rml.is
Helstu niðurstöðutölur sauðfjárskýrsluhaldsins árið 2021:
Afurðir eftir hverja kind aldrei verið
meiri – en fé fækkar mikið
Dreift í 32 þúsund eintökum
á yfir 420 dreifingarstaði
Smáauglýsingar 56-30-300
Hafa áhrif um land allt!
4,9%
8,1%
18,8%
27,0%
41,9%
0,0%
5,0%
10,0%
15,0%
20,0%
25,0%
30,0%
35,0%
40,0%
45,0%
Viðskiptablaðið Stundin Morgunblaðið Fréttablaðið Bændablaðið
Meðallestur prentmiðla
á landsbyggðinni
Samkvæmt prentmiðlamælingu Gallup
á fjórða ársfjórðungi 2021
24,0
25,0
26,0
27,0
28,0
29,0
30,0
31,0
32,0
33,0
Kjós. Borg. Mýr. Snæf. Dal. Barð. Ísafj. Strand. V-Hún. A-Hún. Skag. Eyjafj. S-Þing. N-Þing. N-Múl. S-Múl. A-Skaft. V-Skaft. Rang. Árn.
Reiknaðar afurðir (kg) eftir fullorðar ær eftir sýslum síðustu ár
Árið 2021 Árið 2020 Meðaltal 2017-2021
Kg
Efstu búin með fleiri en 100 skýrslufærðar kindur - raðað eftir kg eftir skýrslufærða kind árið 2021
Fj.áa Fædd
lömb
Til
nytja
Kg. e.
kind Fj.áa Fædd
lömb
Til
nytja
Kg. e.
kind
Fall-
þungi Gerð Fita Sláturaldur
Eiríkur Jónsson Gýgjarhólskoti, Biskupstungum 297 2,05 1,86 45,2 61 1,60 1,07 24,4 41,7 23,5 11,0 8,0 165,9
Gunnar, Gréta, Jóhannes og Stella Efri-Fitjum, Fitjárdal 850 2,13 1,98 42,5 184 1,53 0,97 21,1 38,7 20,2 12,1 7,0 139,8
Elín Anna og Ari Guðmundur Bergsstöðum, Miðfirði 501 2,18 2,01 40,3 110 1,64 1,39 26,4 37,8 19,4 11,7 7,1 136,6
Félagsbúið Lundur Lundi, Völlum 487 2,02 1,87 40,2 103 1,39 1,12 21,2 36,9 20,9 9,7 8,0 139,2
Ágúst Ingi Ketilsson Brúnastöðum, Flóa 101 2,11 1,76 38,9 27 1,54 1,31 27,2 36,4 21,2 11,8 8,6 151,3
Ólafur og Dagbjört Syðri-Urriðaá, Miðfirði 549 2,07 1,92 38,9 103 1,51 1,12 22,6 36,3 19,8 11,9 7,2 143,8
Jón og Hrefna Hóli, Sæmundarhlíð 197 2,12 1,90 39,6 43 1,19 0,91 20,4 36,2 20,3 10,8 8,0 149,4
Ólafur Magnússon Sveinsstöðum, Þingi 623 2,11 1,85 38,4 116 1,49 1,22 23,4 36,0 19,5 10,3 7,5 158,4
Atli Þór og Guðrún Koti, Svarfaðardal 124 1,88 1,79 36,4 7 1,57 1,29 24,8 35,8 20,2 10,0 7,8 131,6
Elín Heiða Valsdóttir Úthlíð, Skaftártungu 326 2,11 1,96 40,3 81 1,36 0,80 17,1 35,7 20,1 10,0 7,6 161,7
Inga Ragnheiður Magnúsdóttir Svínafell 3, Öræfum 290 2,00 1,83 37,4 34 1,29 1,03 21,3 35,7 19,9 9,8 7,8 160,7
Böðvar Sigvaldi og Ólöf Mýrum 2, Hrútafirði 570 2,10 1,87 38,3 107 1,37 1,10 21,4 35,6 19,7 11,4 7,4 149,0
Þorsteinn og Katrín Jökulsá, Borgarfirði eystri 237 2,06 1,83 38,2 56 1,23 1,16 24,0 35,5 20,4 8,9 7,6 133,5
Bergþóra og Sigurbjörn Kiðafelli, Kjós 183 1,87 1,65 38,6 52 1,46 1,17 24,2 35,4 22,4 11,5 8,1 150,9
Marsibil Erlendsdóttir Dalatanga, Mjóafirði 83 1,98 1,89 40,8 18 0,78 0,56 10,4 35,4 20,9 9,4 8,4 127,9
Hellur ehf. Hellum, Andakíl 161 2,13 1,91 38,9 46 1,42 1,07 21,9 35,1 19,7 12,0 7,1 161,9
Björn og Badda Melum 1, Árneshrepp 384 1,96 1,84 38,9 89 1,39 0,88 18,0 35,0 19,8 11,3 7,1 123,7
Sigurður Birgisson Krossi, Þingeyjarsveit 161 1,93 1,82 36,5 23 1,83 1,30 24,4 35,0 19,2 10,6 7,2 149,8
Ása Berglind Böðvarsdóttir Mýrum, Hrútafirði 269 2,07 1,89 38,1 58 1,48 1,09 19,9 34,9 19,2 11,1 7,1 151,8
Viðar og Sigríður Kaldbak, Rangárvöllum 173 2,03 1,82 37,6 38 1,24 1,05 22,2 34,8 20,4 10,9 8,2 148,3
Kjötmat
Eigandi Býli
Fullorðnar ær Veturgamlar ær
Kg
. e
.
al
la
r æ
r
Nafn Býli Fjöldi slátulamba Fallþungi Gerð Fita Sláturaldur
Gunnar, Gréta, Jóhannes og Stella Efri-Fitjum, Fitjárdal 1.592 20,2 12,13 6,96 139,8
Hellur ehf. Hellum, Andakíl 265 19,7 12,02 7,12 161,9
Ólafur og Dagbjört Syðri-Urriðaá, Miðfirði 1.034 19,8 11,87 7,17 143,8
Elín Anna og Ari Guðmundur Bergsstöðum, Miðfirði 1.002 19,4 11,70 7,12 136,6
Ragnar og Sigríður Heydalsá 1, Steingrímsfirði 804 19,4 11,69 7,00 139,5
Þráinn Ómar Sigtryggsson Litlu-Reykjum, Reykjahverfi 489 17,6 11,69 7,53 149,6
Dagbjartur Bogi Ingimundarson Brekku, Núpasveit 564 19,4 11,68 7,09 137,0
Ingi Már og Hjördís Rut Suður-Fossi, Mýrdal 209 20,9 11,60 8,10 167,9
Bergþóra og Sigurbjörn Kiðafelli, Kjós 265 22,4 11,54 8,09 150,9
Sigursteinn Sveinbjörnsson Litlu-Ávík, Árneshreppi 208 19,7 11,45 6,67 121,2
Jökull Helgason Ósabakka 2, Skeiðum 317 19,7 11,43 7,49 159,4
Eyjólfur og Lóa Ásgarði, Hvammssveit 579 18,7 11,41 6,83 135,3
Böðvar Sigvaldi og Ólöf Mýrum 2, Miðfirði 1.006 19,7 11,39 7,36 149,0
Eyþór Pétursson Baldursheimi, Mývatnssveit 242 15,3 11,37 5,23 130,8
Sigurður Halldórsson Gullberastöðum, Lundarreykjardal 297 18,8 11,34 6,95 151,7
Ingvar og Malin Syðra-Kolugil, Víðidal 899 18,7 11,32 6,98 131,1
Björn og Badda Melum 1, Árneshrepp 638 19,8 11,31 7,10 123,7
Reynir Björnsson Miðdalsgröf, Steingrímsfirði 412 19,1 11,29 7,09 137,8
Valberg Sigfússon Stóra-Vatnshorni, Haukadal 620 19,4 11,26 6,96 136,1
Nicole og Guðjón Heydalsá 2, Steingrímsfirði 496 18,6 11,24 6,95 135,6
Egill A Freysteinsson Vagnbrekku, Mývatnssveit 203 17,9 11,24 7,18 132,7
Halldór og Elín Bjarnastöðum, Öxarfirði 434 19,3 11,23 7,2 156,6
Indriði Karlsson Grafarkoti, Vatnsnesi 443 19,4 11,22 7,14 139,3
Guðlaugur Agnar Ágústsson Steinstúni, Árneshrepp 399 19,4 11,22 7,26 121,4
Efstu búin með fleiri 200 sláturlömb - raðað eftir einkunn fyrir gerð árið 2021