Bændablaðið - 10.02.2022, Blaðsíða 28

Bændablaðið - 10.02.2022, Blaðsíða 28
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. febrúar 202228 LÍF&STARF Hafist verður handa nú í mars næstkomandi við að steypa upp lúx- ushótel sem reist verður á lóðinni Skælu á Þengilhöfða við Grenivík. Framkvæmdir hófust í fyrrasum- ar, en þá var unnið að vegagerð frá þorpinu og að svæðinu, einnig jarðvegsvinnu og settir voru niður vatnstankar. Vinnubúðir hafa verið settar upp á gömlum malarvelli á Grenivík og þar er pláss fyrir 16 til 18 starfsmenn. Stefnt er að því að hótelið hefji starfsemi haustið 2023. Alls verða 40 vel útbúin herbergi á hótelinu, þar af nokkrar svítur. Jafnframt uppbyggingu mannvirkja er einnig hugað að því að auka og efla ferða- þjónustu á svæðinu en margs konar afþreying stendur væntanlegum gestum hótelsins til boða. Það er félagið Höfði Develop- ment, þróunarfélag sem byggir Höfði Lodge hótel á Þengilhöfða við Grenivík. Að því standa félagarnir og fyrrum skíðamennirnir Björgvin Björgvinsson og Jóhann Haukur Hafstein. Hótelið er um 6 þúsund fermetrar Framkvæmdir hófust á liðnu ári með vegagerð upp á Þengilhöfða og jarðvegsvinnu er einnig lokið. Björgvin segir að steypuvinna hefj- ist í mars og gert sé ráð fyrir að sú vinna taki nokkra mánuði, verkinu verði lokið þegar líður á sumarið, í júlí eða ágúst. „Við gerum ráð fyrir að einhver mynd verði komin á svæðið þegar haustar og þá nýtum við næsta vetur til að vinna innandyra við allt sem gera þarf þar,“ segir hann. Hótelið sjálft er um 6 þúsund fermetrar að stærð, en að auki verður byggð upp starfsmannaaðstaða í nokkrum húsum á svæðinu, samtals um eitt þúsund fermetrar, og eins verður reist 350 fermetra hesthús. Björgvin segir húsin að mestu smíðuð í Lettlandi og flutt til Íslands í einingum. „Það verður fljótlegt að setja þau saman þegar þau koma, það gerist hratt,“ segir hann. „Við stefnum á að ljúka þessu öllu og að hefja starfsemi hér haustið 2023.“ Gert er ráð fyrir að á bilinu 40 til 50 manns starfi á hótelinu þegar rekstur er kominn í fullan gang. Einstakt útsýni út Eyjafjörð er eitt af því sem gerði útslagið varðandi staðarval hótelsins, sem og nálægð við ósnortna náttúru og gott skíða- svæði. Þá nefnir hann að Höfði Development rekur þegar ferðaþjón- ustufyrirtækin Viking Heliskiing og Scandic Mountain Guides og hafi margoft komið með gesti sína til að stunda skíðamennsku t.d. á Kaldbak. „Við höfum alltaf fengið mjög góðar móttökur á Grenivík og upp- lifum alltaf að við séum meira en velkomin þangað. Það auðvitað hafði sitt að segja,“ segir hann, en til viðbótar nefnir hann að eiginkona sín sé frá Grenivík og að afi henn- ar og amma hafi verið með umrætt land í erfðafestu og voru þar með kartöflurækt. „Það er alveg góð tenging við staðinn.“ Útivist og náttúruupplifun helsta aðdráttaraflið Björgvin segir að samhliða upp- byggingu á hótelinu sé einnig unnið að því að byggja upp afþreyingar- ferðaþjónustu á svæðinu. „Það verður mikið í boði fyrir þá gesti sem sækja okkur heim, það er alveg ljóst að fólk verður að hafa eitthvað við að vera þegar það dvelur á svæðinu og er í raun lyk- illinn að því að fá fólk til að koma,“ segir hann. Helsta aðdráttaraflið felist í útivist og náttúruupplifun en Björgvin nefnir að á meðan skíðatíð standi yfir verði gert út á slíkar ferðir og verði stórt og gott skíðaherbergi til staðar á hótelinu fyrir búnaðinn. Hann segir skíðaferðir hafa um árin notið vaxandi vinsælda og engin merki um annað en svo verði áfram. Gestir geti einnig þeyst um fjalllendið á vélsleðum. Þá nefnir hann að sjórinn verði nýttur og það sem hann býður upp á, bátar, kajakar og róðrarbretti verði í boði fyrir þá sem vilja, sem og hvalaskoðunarferðir. Göngu- og hjólaferðir og hestaferðir séu einnig góð dægradvöl fyrir þá sem njóti lífsins á Höfða. Fjöllin umhverfis bjóði upp á skemmtilegar fjallgöng- ur. Veiði ýmiss konar mun standa gestum til boða, rjúpa og gæs og lax svo dæmi séu nefnd. Ísland verður áfram vinsælt Á hótelinu verður veitingastaður, stórt og gott spa, þar verður golf- hermir fyrir gesti, bíósalur og fundarherbergi. „Þarna verður að finna allt það sem prýðir gott hótel. Gestir hafa kost á því að slaka á kjósi þeir það og einnig að hafa nóg fyrir stafni frá morgni til kvölds,“ segir Björgvin. Hann segist hafa fulla trú á að ferðaþjónusta á Íslandi muni fyrr en varir rétta úr kútnum. „Hún verður komin á fullan skrið áður en við vitum af. Ísland verð- ur alveg örugglega áfram vinsælt meðal ferðalanga, við höfum upp á svo margt að bjóða sem fólk sækir í um þessar mundir. Kyrrð, fallega náttúru og mikla upplifun,“ segir Björgvin. /MÞÞ Allt sem prýðir lúxushótel má finna á Höfða Lodge við Grenivík. „Höfði Lodge” Björgvin Björgvinsson og Jóhann Haukur Hafstein standa að félaginu Höfði Development. Búið er að koma fyrir vinnubúðum á gamla malarvellinum á Grenivík þar sem pláss er fyrir 16 til 18 starfsmenn. Steypuvinna hefst í næsta mánuði verði veður til friðs. Vegagerð frá Grenivík og upp á hótelsvæðið á Þengilhöfða hófst í fyrra. Útsýni frá hótelinu út Eyjafjörð er sérlega tilkomumikið og ekki ónýtt að fylgjast með sólarlaginu á fallegu sumarkvöldi þaðan. HLAÐVARP BÆNDABLAÐSINS https://www.bbl.is/hladan líka hægt að lesa á bbl.is og Facebook Smáauglýsingar 56-30-300 Margrét Þóra Þórsdóttir mth@bondi.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.