Bændablaðið - 10.02.2022, Blaðsíða 47

Bændablaðið - 10.02.2022, Blaðsíða 47
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. febrúar 2022 47 Það er gömul saga og ný að mjólk er eitt næringarríkasta einstaka matvæli sem völ er á. Hún er uppfull af bætiefnum og fjölmargar rannsóknir staðfesta jákvæð áhrif kalkneyslu og mjólkur á beinþéttni, sérstaklega ef D-vítamíns er neytt með. Í lok síðasta árs voru niðurstöður ástralskrar rannsóknar kynntar í British Medical Journal þar sem fram kemur svo ekki verður um villst að með aukinni neyslu mjólkurvara minnki verulega áhætta á beinbrotum hjá eldra fólki. Beinbrotum fækkaði um þriðjung, mjaðmabrotum um 46% og byltum um 11% með aukinni neyslu mjólkurvara. Þátttakendum fylgt eftir í 2 ár Rannsóknin var afar yfirgripsmikil og náði til yfir 7.000 eldri borgara á 60 hjúkrunar- og dvalarheimilum í Melbourne í Ástralíu þar sem þeim var fylgt eftir í 2 ár. Á helmingi hjúkrunarheimilanna voru íbúar á sama mataræði og áður, en hinn hópurinn nær tvöfaldaði daglega neyslu mjólkurafurða og fengu þannig marktækt meira af kalki og próteini. Hóparnir fengu sömu orkuna úr mat og drykk og áður, en seinni hópurinn breytti mataræðinu með því til dæmis að skipta kökum og kexi út fyrir ostaköku og fengu sér mjólkurglas í stað safa. Beinbrotum fækkaði um þriðjung Eftir einungis 5 mánuði gátu rannsakendur staðfest að tölu- verð fækkun beinbrota var meðal þátttakenda, eða um heil 33%. Ekki nóg með það að almennum brotum fækkaði um þriðjung, þá fækkaði mjaðmabrotum um 46% en þau eru sérstaklega hamlandi eldra fólki enda hafa slík brot mikil áhrif á hreyfigetu og þar með lífsgæði. Það er því óhætt að segja að niðurstöður rannsóknar- innar séu gleðitíðindi, sérstak- lega fyrir þennan hóp. Samkvæmt rannsókninni er skýring þessarar jákvæðu niður- stöðu sú að meiri inntaka kalks og próteina sem mjólkin er rík af, hafi styrkt bein þátttakenda og hjálpað til við að hægja á tapi beinmassa sem fylgir því að eldast. Sterkari vöðvar og færri byltur Hluti af skýringunni er einnig sú að hópurinn sem jók neyslu sína á mjólkurvörum datt ekki eins oft, byltum fækkaði um 11%. Hið merkilega er að þessi breyting gerði vart við sig einungis þremur mánuðum eftir að rannsóknin hófst. Skýring rannsakenda á færri byltum er sú að mikið próteininnihald mjólkurafurðanna hafi jákvæð áhrif á vöðvamassa aldraðra. Því sterkari sem vöðvarnir eru, því minni hætta er á falli og þar með beinbrotum. Hækkuðu dagskammtinn úr 2 skömmtum í 3,5 Hópurinn sem jók neyslu sína á mjólkurafurðum fór úr 2 skömmtum í 3,5 skammta. Í Ástralíu sem og á Íslandi jafngildir 1 skammtur 250 ml af mjólk, 200 ml af jógúrt eða 40 g af osti. Þar með jókst magn kalks í fæðunni úr 700 mg í 1.142 mg á dag og próteininnihald jókst úr 58 g í 69 g. Embætti landlæknis ráðleggur að neyta tveggja skammta af mjólk eða mjólkurvörum á dag og er ráðlagður dagskammtur af kalki fyrir eldra fólk hærri hér en í Ástralíu þar sem rann- sóknin fór fram, eða 800 mg. Er það m.a. vegna þess að beinþynning er algengari hér á norðurhjara sem má rekja til erfða. Jákvæðu fréttirnar eru þær að það er bersýnilega hægt að hafa áhrif á þessa þróun með neyslu kalkríks og D-vítamínríks matar líkt og fyrrgreind rannsókn sýnir fram á. Niðurstöðurnar styðja því vel við hið forkveðna: Mjólk er góð! Margrét Gísladóttir, sérfræðingur hjá Mjólkursamsölunni. Aðalnúmer: 412 5300 | Söludeild: 412 5350 | Netfang: sala@limtrevirnet.is Söluskrifstofur: Lynghálsi 2, 110 Reykjavík | Borgarbraut 74, 310 Borgarnes Áratugareynsla við íslenskar aðstæður Stuttur afgreiðslutími og fjölbreytt úrval Uppsetning í boði á hurðum og viðbótarbúnaði Margir litir og fylgihlutir í boði Traustar bílskúrs- og iðnaðarhurðir frá Lindab og Krispol limtrevirnet.is FALLEGAR HURÐIR SEM ÞÚ GETUR TREYST skoðaðu úrvalið limtrevirnet.is Mjólkurvörur draga úr líkum á beinbrotum aldraðra Á FAGLEGUM NÓTUM Margrét Gísladóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.