Bændablaðið - 10.02.2022, Side 47
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. febrúar 2022 47
Það er gömul saga og ný að
mjólk er eitt næringarríkasta
einstaka matvæli sem völ er á.
Hún er uppfull af bætiefnum og
fjölmargar rannsóknir staðfesta
jákvæð áhrif kalkneyslu og
mjólkur á beinþéttni, sérstaklega
ef D-vítamíns er neytt með.
Í lok síðasta árs voru niðurstöður
ástralskrar rannsóknar kynntar í
British Medical Journal þar sem
fram kemur svo ekki verður um villst
að með aukinni neyslu mjólkurvara
minnki verulega áhætta á beinbrotum
hjá eldra fólki. Beinbrotum fækkaði
um þriðjung, mjaðmabrotum um
46% og byltum um 11% með aukinni
neyslu mjólkurvara.
Þátttakendum fylgt eftir í 2 ár
Rannsóknin var afar yfirgripsmikil
og náði til yfir 7.000 eldri borgara á
60 hjúkrunar- og dvalarheimilum í
Melbourne í Ástralíu þar sem þeim
var fylgt eftir í 2 ár. Á helmingi
hjúkrunarheimilanna voru íbúar
á sama mataræði og áður, en hinn
hópurinn nær tvöfaldaði daglega
neyslu mjólkurafurða og fengu
þannig marktækt meira af kalki
og próteini. Hóparnir fengu sömu
orkuna úr mat og drykk og áður, en
seinni hópurinn breytti mataræðinu
með því til dæmis að skipta kökum
og kexi út fyrir ostaköku og fengu
sér mjólkurglas í stað safa.
Beinbrotum fækkaði
um þriðjung
Eftir einungis 5 mánuði gátu
rannsakendur staðfest að tölu-
verð fækkun beinbrota var meðal
þátttakenda, eða um heil 33%.
Ekki nóg með það að almennum
brotum fækkaði um þriðjung, þá
fækkaði mjaðmabrotum um 46%
en þau eru sérstaklega hamlandi
eldra fólki enda hafa slík brot
mikil áhrif á hreyfigetu og þar
með lífsgæði. Það er því óhætt að
segja að niðurstöður rannsóknar-
innar séu gleðitíðindi, sérstak-
lega fyrir þennan hóp.
Samkvæmt rannsókninni er
skýring þessarar jákvæðu niður-
stöðu sú að meiri inntaka kalks
og próteina sem mjólkin er rík
af, hafi styrkt bein þátttakenda
og hjálpað til við að hægja á
tapi beinmassa sem fylgir því
að eldast.
Sterkari vöðvar og færri byltur
Hluti af skýringunni er einnig sú
að hópurinn sem jók neyslu sína
á mjólkurvörum datt ekki eins
oft, byltum fækkaði um 11%. Hið
merkilega er að þessi breyting
gerði vart við sig einungis þremur
mánuðum eftir að rannsóknin hófst.
Skýring rannsakenda á færri byltum
er sú að mikið próteininnihald
mjólkurafurðanna hafi jákvæð áhrif
á vöðvamassa aldraðra. Því sterkari
sem vöðvarnir eru, því minni hætta
er á falli og þar með beinbrotum.
Hækkuðu dagskammtinn úr
2 skömmtum í 3,5
Hópurinn sem jók neyslu sína á
mjólkurafurðum fór úr 2 skömmtum
í 3,5 skammta. Í Ástralíu sem og á
Íslandi jafngildir 1 skammtur 250
ml af mjólk, 200 ml af jógúrt eða
40 g af osti. Þar með jókst magn
kalks í fæðunni úr 700 mg í 1.142
mg á dag og próteininnihald jókst
úr 58 g í 69 g.
Embætti landlæknis ráðleggur að
neyta tveggja skammta af mjólk eða
mjólkurvörum á dag og er ráðlagður
dagskammtur af kalki fyrir eldra fólk
hærri hér en í Ástralíu þar sem rann-
sóknin fór fram, eða 800 mg. Er það
m.a. vegna þess að beinþynning er
algengari hér á norðurhjara sem má
rekja til erfða. Jákvæðu fréttirnar eru
þær að það er bersýnilega hægt að
hafa áhrif á þessa þróun með neyslu
kalkríks og D-vítamínríks matar líkt
og fyrrgreind rannsókn sýnir fram á.
Niðurstöðurnar styðja því vel við
hið forkveðna: Mjólk er góð!
Margrét Gísladóttir, sérfræðingur
hjá Mjólkursamsölunni.
Aðalnúmer: 412 5300 | Söludeild: 412 5350 | Netfang: sala@limtrevirnet.is
Söluskrifstofur: Lynghálsi 2, 110 Reykjavík | Borgarbraut 74, 310 Borgarnes
Áratugareynsla við íslenskar aðstæður
Stuttur afgreiðslutími og fjölbreytt úrval
Uppsetning í boði á hurðum og viðbótarbúnaði
Margir litir og fylgihlutir í boði
Traustar bílskúrs- og
iðnaðarhurðir frá Lindab
og Krispol
limtrevirnet.is
FALLEGAR
HURÐIR SEM
ÞÚ GETUR
TREYST
skoðaðu úrvalið limtrevirnet.is
Mjólkurvörur draga úr líkum á beinbrotum aldraðra
Á FAGLEGUM NÓTUM
Margrét Gísladóttir.