Bændablaðið - 10.02.2022, Blaðsíða 54

Bændablaðið - 10.02.2022, Blaðsíða 54
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. febrúar 202254 Reglulega hef ég reynt að prófa ódýra litla bíla sem í huga mínum er aukabíll á heimilið. Fyrir stuttu heimsótti ég Heklu á Laugaveginum í leit að bíl til að prófa og fyrir valinu var Skoda Kamiq með 1,0TSI bensínvél sem á að skila 115 hestöflum, sjálfskiptur, með fimm ára ábyrgð og kostar ekki nema 3.990.000. Það hefur stundum verið erfitt að prufukeyra bíla á tímabilinu desember og fram í mars sökum veðurs og færðar, en yfirleitt kemst ég nokkuð skammlaust frá þessu, vitandi að prufuaksturinn var engan veginn fullkominn, einn af þessum slæmu prufutúrum var helgina 29.- 30. janúar við slæmar aðstæður. Mikið af góðum hlutum í bílnum miðað við verð Þó að vélin sé ekki nema 1000cc, skilar hún fínum krafti. Bíllinn er tiltölulega snöggur að ná umferðarhraða, en sjálfskiptingin er í raun þrískipt. Venjuleg sex þrepa skipting =D, S er aðeins snarpari skipting og svo er hægt að handskipta bílnum eftir „duttlungum“ hvers og eins. Í bílnum er mikið af góðum öryggis- og þægindahlutum þrátt fyrir lágt verð, en í stýrinu er hiti (3 mismunandi stillingar), akreinalesari, fjarlægðarskynjarar framan og aftan, hraðastillir, stöðuleikastýring og spólvörn, skriðvörn, brekkuaðstoðarbremsa, árekstrarvörn o.fl. Ég keyrði bílinn um 60 km í myrkri og var ánægður með ökuljósin, bæði háa geislann og þann lága, en við þetta má bæta að stefnuljósin finnst mér einstaklega flott hönnun. Gott fótapláss og sæti góð Eins og venjulega var byrjað á hávaðamælingu sem reyndist með betra lagi. 69,2db. er gott af ekki stærri bíl og það með bensínvél. Næst var að prófa í langkeyrslu, en uppgefin meðaleyðsla á hundraðið er 6,1 lítra á hundraðið, hjá mér sagði eyðslan 8,4 á hundraðið eftir 60 km jafnan akstur, en í innanbæjarakstrinum var ég að eyða 9,8 lítrum miðað við 100 km. Ég skoðaði meðaleyðslu þeirra sem höfðu verið að prófa bílinn á undan mér, en þeir höfðu verið að eyða 10,8 þannig að ég var nokkuð sáttur við sjálfan mig. Fjöðrun er yfir meðallagi góð og smærri holum finnur maður lítið fyrir. Þar sem bíllinn er frekar lítill og ekki hár á vegi fannst mér nokkrum sinnum við prufuaksturinn að ég væri sitjandi á götunni. Mjög gott rými er fyrir farþega í aftursætum (er 175 á hæð og plássið fyrir framan hnén þegar ég sat í aft- ursætinu var vel yfir 10 cm). Farangursrýmið er mun stærra en maður mundi ætla miðað við stærðina á bílnum. Fullbúið varadekk er undir plötu aftast í bílnum. Seinni daginn var vont veður til að prófa bíl Sunnudaginn 30. janúar var ekki spennandi veður til að prófa bíl, en í staðinn náði ég að finna til hins ýtrasta ABS-bremsubúnaðinn sem ég var ánægður með, en skriðvörnin fannst mér koma fullseint inn og bíllinn kominn of langt út að aftan þegar skriðvörnin tók völdin. Mér fannst bíllinn samt glettilega góður í snjó og hálku þrátt fyrir að vera á ónegldum dekkjum og bara fram- hjóladrifinn. Eftir um 130 km prufu verð ég að segja að bíllinn, sem flokkaður er með smábílum, gæti allt eins verið í miðlungsflokki. Hann er fyrir mér að skora alls staðar, kraftur í lagi, þægilegur, rúmgóður, fínt útlit, verð o.fl. Það var þó tvennt sem var að trufla mig. Mér fannst eins og ég væri sitjandi á veginum þegar ég var að keyra bílinn og skriðvörnin kom frekar seint á í mikilli hálku. Annars fyrir þá sem vilja fræðast meira um bílinn, þá eru meiri upplýsingar á vefslóðinni www.skoda.is. VÉLABÁSINN Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is Skoda Kamiq. Myndir HLJ Hæð 1.840 mm Breidd 1.988 mm Lengd 4.241mm Helstu mál og upplýsingar Að mælast með bensínvél undir 70db. í roki og snjó finnst mér mjög gott. Frágangur á botni bílsins snyrtilegur, allur lokaður með varnarhlífum. Farangursrýmið er ótrúlega stórt af ekki stærri bíl. Það tók mig smástund að átta mig á hvar ég tók spólvörnina af, en það er gert á sama skjá og bakkmyndavélin er. Ljósatakkann má skilja eftir svona, en þá er maður alltaf löglegur í akstri. Fullbúið varadekk er í skottinu ásamt helstu verkfærum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.