Bændablaðið - 10.02.2022, Blaðsíða 42

Bændablaðið - 10.02.2022, Blaðsíða 42
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. febrúar 202242 Kettir eru eina dýrið sem hefur gert manninn að húsþjóni og annaðhvort elskar fólk þá eða hatar og ef til vill eitthvað þar á milli. Kisur voru dýrkaðar í Egyptalandi til forna. Þær eru sagðar hafa níu líf og til Íslands bárust kettir á landnámsöld. Af uppruna katta er það að segja að samkvæmt einni sögu urðu þeir til þegar djöfullinn var að reyna sig við Guð í sköpunarlistinni. Kettir eru eitt vinsælasta gæludýrið í heimi og árið 2021 er áætlað að til hafi verið 220 milljón heimiliskettir og 480 villikettir, sem eru afkomendur heimiliskatta, á jörðinni. Í reglugerð um velferð gæludýra er kveðið á um skyldu gæludýraeigenda til að láta örmerkja alla hunda, ketti og kanínur, þannig að í dag ættu öll gæludýr að finnast í grunninum. Þrátt fyrir merkingarskyldu er ekki vitað hversu margir kettir finnast á Íslandi. Skráðir kettir á landinu eru rúmir 20 þúsund og eitthvað er um óskráða ketti. Gæti því heildarfjöldi höfuðborgar- og landsbyggðarkatta gróft áætlað verið milli 25 til 28 þúsund. Karldýr katta kallast högni eða fress, kvendýrið læða eða bleyða og afkvæmin kettlingar. Ætterni Heimiliskötturinn er eina tamda tegundin innan ættarinnar Feldae. Talið er að allar kattartegundir innan ættarinnar séu komnar frá sama forföður og -móður sem var uppi fyrir 10 til 15 milljón árum. Ættkvíslin Felix kom fram á sjónarsviðið fyrir sex til sjö milljónum ára og tegundin F. sylvestri, sem heimiliskettir, fyrir um tveimur milljónum ára. Elstu minjar um að kettir hafi verið tamdir eru frá Egyptalandi, norðanverðri Afríku og löndum við botn Miðjarðarhafsins þar sem fundist hafa grafir katta af tegundinni F. lybica við mannabústaði frá því milli 7500 og 7200 fyrir Krist. Tamdir kettir eru bein afleiðing landbúnaðarbyltingarinnar og aukinnar kornræktar og hlutverk þeirra í fyrstu það helst að veiða mýs og halda smávöxnum afætum kornsins í stefjum. Fönikíumenn, kaupmenn frá Karþagó og Etrúar versluðu með ketti og kynntu þá fyrir íbúum Evrópumegin við Miðjarðarhafið og á fimmtu öld eftir Krist voru kettir algengur í álfunni allt norður til Þýskalands, bæði sem húskettir til músaveiða og sem villikettir. Rándýr Líkt og stóru frændur katta, ljón og tígrisdýr, eru kettir kjötætur og afkastamikil rándýr og vitað að þeir veiða yfir 1.000 dýrategundir og ekki síst smáfugla og mýs. Kettir eru hópdýr en veiða einir og eru virkastir við veiðar við sólarlag og sólarupprás. Við veiðar beita kettir helst tveimur aðferðum og fer aðferðin eftir því hver bráðin er. Önnur felst í því að sitja fyrir bráðinni og stökkva á hana þegar hún er komin í færi og er þeirri aðferð oft beitt við músaveiðar. Þegar kemur að því að veiða fugla læðast kettir að þeim til að stökkva á þá. Sú hugmynd að kettir leiki sér við bráðina áður en þeir drepa hana með því að sleppa henni og grípa hana aftur er röng og felst atferlið í því að þreyta bráðina það mikið að hún geti ekki skaðað köttinn áður en lagt er til atlögu við að kála henni. Kettir eiga það einnig til að færa húsþjónum sínum matargjafir, hér á landi dauðan fugl eða mús, og er líklegasta skýringin sú að kötturinn hafi samþykkt þjóninn inn í félagakerfi sitt. Kettir lepja vökva hratt með tungunni og sjúga hann síðan upp í munn til að kyngja honum. Almennt kjósa kettir vatn að drekka fram yfir mjólk og eldri kisur eru yfirleitt með mjólkuróþol. Eins gagnlegir og kettir eru við músaveiðar eru flestir sammála um að dráp þeirra á smáfuglum sé skelfilegt, ekki síst ungum í hreiðri, sem þeir drepa í hundruð milljóna tali um allan heim á hverju ári. Reyndar ættu allir kattareigendur hér á landi og annars staðar að sjá sóma sinn í að halda köttunum innanhúss á vorin á meðan varptíminn gengur yfir. Líkamsbygging Kettir eru ferfætt náttdýr með góða sjón, þefskyn og heyrn. Líkaminn er langur, rennilegur og sveigjanlegur. Að meðaltali eru þeir um 23 sentí- metrar að hæð, 46 sentímetrar að lengd og með 30 sentímetra langt skott og fjögur til sex kíló að þyngd eftir afbrigðum. Fress er yfirleitt stærri en læða. Tennurnar eru beittar og klærnar, fimm á framfótum og fjórar á afturfótunum, inndraganlegar. Kisur mjálma, mala og hvæsa eftir því hvernig skapi þeir eru í og fressinn merkir sér yfirráðasvæði með lyktarmerkjum. Heimiliskettir eru eina kattar tegundin sem getur sperrt skottið beint upp í loftið. Villikettir sperra það beint út og stinga því á milli fótanna þegar þeir ganga. Feldur katta er yfirleitt marglitur en einnig eru til einlitir kettir. Læður gjóta venjulegast tveimur til fimm kettlingum í goti. Æviskeið Meðalævi heimiliskatta hefur aukist undanfarna áratugi vegna betri umhirðu. Á áttunda áratug síðustu aldar var meðalævi þeirra sjö ár en í dag er hún 15 ár. Elsti köttur sem heimildir eru til um var læða sem gekk undir heitin Cream Puff og lifði í 38 ár. Orðsifjar Heimiliskettir, eða íslenski fjósa- kötturinn, er undirtegund villikatta sem kallast Felix silvestris og kallast Felix silvestis catus eða Felix catus á latínu. Enska orðið cat er talið vera komið úr bóklatínu cattus og það orð komið úr egypsku, coptic, sem er heiti á fress eða coptit sem er læða. Sumir segja að orðið cat sé upprunnið í máli Núbía, kaddiska. Í Danmörku og Noregi segja menn kat og katt og þaðan er líklegast heiti skepnunnar köttur komið. Auk hefðbundinna heimiliskatta eru til tugir afbrigða katta í ræktun með ólíku útliti og litbrigðum. Sem dæmi er til hárlaust afbrigði sem kallast Sfinxar/snoðkettir, en ræktun þeirra hófst árið 1966 í Hollandi eftir að fæddust kettlingar með þann genagalla að á vantaði hárið. Rófulausar tegundir má einnig finna, svokallaðir Manarkettir eða Manx – upphaflega ættaðir frá eyjunni Mön á Írlandshafi. Kettir í Egyptalandi til forna Auk þess að vera með þeim fyrstu til að temja ketti og nota til að halda afætum frá kornbirgðum sínum litu Egyptar á ketti sem guðlegar verur í ríflega 3.000 ár. Gyðjan Baast er oft sett fram sem kona með höfuð af ketti á myndum en helgi hennar var mest um 2.900 árum fyrir upphaf kristins tímatals. Sagan segir að þegar Persar gerðu árás á Pelesium í Egyptalandi, 525 fyrir Krist, hafi þeir fest lifandi ketti á skildi sína og að Egyptar hafi ekki þorað að ráðast til atlögu við þá vegna hræðslu við að drepa kettina og borgin því verið Persum auðveld viðureignar. Dæmi er um að rómverskur hermaður í Egyptalandi, sem drap kött þegar dýrið hljóp undir hjólið á hestvagni, hafi verið grýttur til dauða af æstum múgi og þegar heimiliskötturinn drapst var algengt að húsbóndinn rakaði af sér augabrúnirnar til að tjá sorg. Dauðir kettir voru oft varðveittir sem múmíur og fjöldi slíkra hefur fundist í gröfum í Egyptalandi. Skýring Egypta á góðri náttsýn katta var að augasteinar þeirra fönguðu sólargeisla á daginn og sendu þá frá sér á nóttunni. Grikkir og Rómverjar héldu marðardýr til að veiða nagdýr og furðaði gríski sagnfræðingurinn Herodotus sig á þeim sið Egypta að hafa ketti sem gæludýr þar sem hann segist bara hafa séð slík kvikindi villt. Smám saman viku merðirnir fyrir köttum í Grikkja- og Rómaveldi og þeir tengdir grísku gyðjunni Artemis og Díönu í Róm. Komdu hérna, kisa mín Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is GÆLUDÝR Íslenskur fjósaköttur. Mynd / HKr. Nornamessa í lok 16. aldar. Teikning / Jacques de Gheyn II. Bengal kettir eru blendingar af heimilisketti og egypsku mau-kyni og vinsælir í ræktun. Baast, kattargyðja Egypta til forna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.