Bændablaðið - 10.02.2022, Blaðsíða 58
• Fyrsta leikna kvikmyndin
um Spiderman, eða Köngu
lóarmanninn eins og við
þekkjum hann á íslensku,
var ekki sýnd í kvikmynda
húsum fyrr en árið 2002, en
þá lék Tobey Maguire aðal
hlutverkið.
• Fyrsta teiknimynda
serían, nefnd
„SpiderMan“
kom hins vegar
í sjónvarpinu
árið 1967 og
var sýnd þar
til árið 1970.
• Því næst
kom barna
þátturinn
The Electric
Company
Spidey
Super Stories
og á svipuðum
tíma, áttunda
áratugnum,
voru sýndir
leiknir þættir á
CBS sjónvarps
stöðinni, með
Nicolas
Hammond
í hlutverki
Köngu lóar
mannsins.
Á árunum
milli 1978
1979 voru svipaðir
leiknir þætttir á
sjónvarpsskjám
Japana en frá sirka
1980 var þessi
vinalega hetja
fólksins einungis
í teiknimyndaformi
þar til hann komst
í kvikmyndahúsin
í byrjun 21.aldarinnar
eins og
áður sagði.
Frægðina geta margir eflaust nýtt
sér til framdráttar, en þá eru skipt-
ar skoðanir um hvort fleiri gera
það sér í hag eða annarra.
Foreldrar stirnisins Tom Holland,
sem þekktur er fyrir hlutverk sitt sem
ofurhetjan Spiderman, tóku til sinna
ráða er frægðarsól hans fór að rísa og
stofnuðu samtökin Brothers Trust.
Á vefsíðu Brothers Trust er athygli
almennings vakin á smærri samtök-
um sem fá ef til vill ekki nægilegan
hljómgrunn í hringiðu allra þeirra
góðu manna og samtaka er vilja láta
gott af sér leiða.
Þessi minni samtök eiga það
meðal annars sameiginlegt að hafa
ekki það fjárhagslega bolmagn og
mörg önnur en standa þó fyrir upp-
byggilegum og jákvæðum málefnum
auk þess að vera vanalega rekin af
sjálfboðaliðum – þannig að vænta
má að styrkir Brothers Traust hafi
hámarksáhrif.
Fjársterkir bakhjarlar
Taka skal fram að ætlunin er ekki að
gera þessi minni samtök háð styrkjum
eða aðstoð Brothers Trust heldur er
þarna boðið upp á aðstoð við að kom-
ast á framfæri.
Á móti, til þess að meta reglulega
hve vel tekst til við styrkveitingar,
óska foreldrar Spidermanleikarans
eftir reglulegum endurgjöfum og skýr-
slum hvað varðar framvindu frá styrk-
þegum sínum. Þeim upplýsingum er
svo beint til bakhjarla Brothers Trust,
en samtökin njóta stuðningsmanna um
heim allan sem leggja reglulegar upp-
hæðir af mörkum í þágu vinnu þeirra.
Auk utanaðkomandi fjárútláta fer
fjáröflun fram á ýmsa vegu. Meðal
annars er almenningi boðið upp á að
taka þátt í getraun þar sem verðlauna-
hafinn fær að fylgja Tom Holland á
kvikmyndasett eða heimsfrumsýn-
ingar kvikmynda.
Ungviðið virkt til þátttöku
Foreldrar Tom Holland mega eiga það
að þau virkja alla syni sína, þá Sam,
Harry and Paddy, auk hans sjálfs, til að
taka hvað mestan þátt í framtíðarsýn
og vinnu samtakanna og hafa nýverið
haft veg og vanda af hlaðvarpi þar sem
þeir bræður láta til sín taka.
Það er þó ekki eina verkefnið í
sameiginlegri umsjá þeirra, en sam-
tökin bjóða upp á bíóferðir eða annars
lags uppákomur með bræðrunum þar
sem Tom er þá vanalega í búningi
Köngulóarmannsins.
Einnig eru haldnir Instagram-
viðburðir með bræðrunum, þar sem
hvatt er til frjálsra framlaga gesta í
þágu samtakanna auk þess sem hægt
er að greiða fyrir kynn-
ingar á Instagram-síðu
Spiderman-leikarans, en
einnig standa samtökin
Brothers Trust fyrir sölu
varnings er kemur frá
fátækum svæðum eins
og Masai í Kenía.
Hægt er að versla eða
veita styrki eftir geð-
þótta á vefsíðu þeirra,
thebrotherstrust.org/
en það hlaut nú að
vera að Köngulóar-
maðurinn kæmi af
góðu fólki. /SP
Veganismi, eða að vera hliðhollur
helst öllu því sem lifir og andar og
forðast neyslu þess hvort sem um
ræðir til matar, fataframleiðslu
eða annars, er stefna sem ryður
sér reglulega til rúms.
Gaman er að segja frá því að í
Lögréttu, árið 1912, birtist dálkur er
sagt er frá hugmyndum prófessorsins
þekkta, Ilya Ilyich Mechnikov, sem
var þekktur fyrir að leggja áherslu á
neyslu jurtafæðis og góðgerla.
Hér er gripið inn í dálkinn;
„... menn geti aukið mjög aldur sinn
með því að breyta um fæðu, jeta
minna en gerist og því nær eingöngu
jurtafæði og mjólkurmat, finna ráð
til vörnunar allri rotnun í þörmunum
og neita sjer um neytslu skaðvænna
efna, áfengis, tóbaks o. s. frv. Til
þess að eyða rotnun í þörmunum
hefur Mechnikov fundið upp gerla,
er hann lætur menn jeta og eiga
að drepa þar rotnunargerlana.
Kenning hans er, að líkaminn
slitni fyrir tímann af skaðvænum
efnum, sem myndast úr fæðunni
í meltingarfærunum ...“
Vegan fatnaður
Vegan fatnaður er hins
vegar mögulega nýstárlegra
fyrirbæri. Þá er fatnaðurinn
að mestu unninn úr bómull,
hampi, bambusi, sjávargróðri
eða þvíumlíku … leðurvörur
úr t.d. kaktus og eplum … og
mættu í raun hönnuðir fá mikið lof
fyrir tilraunir sínar við klæðisgerð.
Sífellt fleiri taka nú þátt í þessari
umhverfisvænu stefnu og eru þekktar
manneskjur, leikarar, áhrifavaldar
eða aðrir oft fengnir til að taka þátt
í hönnunarferli fataframleiðenda,
enda vekur það jafnan áhuga hinna
neyslumeiri.
Strigaskór
Fyrir nokkru tók leikarinn
havaíski, Jason Momoa, helst
þekktur í hlutverki Aquamanns
– hetju undirdjúpanna – þátt í
hönnun skófatnaðar í samstarfi
við útivistarvörufyrirtækið So
iLL. Strigaskórnir, framleiddir í
takmörkuðu upplagi eru gerðir úr
þörungum eins og fleiri fyrirtæki
hafa tekið upp á, en skórnir eru
hluti af vörum undir merkinu On
The Roam, sem leikarinn frísklegi
og So iLL hafa staðið fyrir.
Vísindaleg hönnun BLOOM
Þeim innan handar var fyrirtækið
BLOOM, stofnað árið 2007 af
vísindamanninum Ryan Hunt, sem
sérhæfir sig í nýtingu þörunga
við vinnslu sjálfbærs efnis.
Umframvöxtur þörunga er oft
skaðlegur nærliggjandi vistkerfi
þeirra vegna lækkunar súrefnismagns
í vatni og hindrunar sólarljóss og því
upplagt að nýta þá í strigaskó. Froða
sem gerð er úr þörungum er nýtt í
innleggssóla strigaskónna sem eru
að sjálfsögðu sjálfbærir og býður
hönnun Jason Momoa upp á lífræna
bómull og kork í bland enda brotna
skórnir auðveldlega niður eftir
lífaldur sinn. Ytri gúmmísóla hefur
einnig verið breytt til þess að flýta
fyrir niðurbrotsferli en skórnir fást á
vefsíðu So iLL fyrir um 15 þ. krónur.
Mikilvægi endurvinnslu
Hetja undirdjúpanna stendur þó ekki
einungis fyrir lífrænt ræktuðum
strigaskóm. Hann er talsmaður
mikilvægi endurvinnslu og árið 2019
stofnaði hann fyrirtækið Mananalau
þar sem ferskvatni er tappað á
álflöskur sem eru gerðar úr 69%
endurunnu áli. (Mana þýðir hinn
heilagi andi lífsins og Nalu þýðir
öflug bylgja sjávarins.)
Fyrir hverja selda flösku státar
fyrirtækið sig af því að fjarlægja
í staðinn sem samsvarar einni
plastflösku sjávarúrgangs.
Á vefsíðu Mananalau má einnig
finna upplýsingar þess efnis að
um 9% af öllu því plasti er til er í
heiminum hefur verið endurunnið
á meðan að 75% áls er enn notað
í dag frá upphafi. Enda ódýrara að
framleiða nýtt plast heldur en að
endurvinna það.
Að auki er leikarinn virkur
þátttakandi í mótmælum heimalands
síns, Havaí, þar sem mótmæli standa
yfir gegn byggingu þrjátíu metra
sjónauka á heilögu landi innfæddra,
á fjallinu Mauna Kea. /SP
Leikarinn havaíski, Jason Momoa, tekur skref til þess að bjarga heiminum:
Hetja undirdjúpanna lætur til sín
taka í umhverfismálum
Með frægðina til framdráttar:
Spiderman-leikar-
inn Tom Holland
Hundaól er dæmi um varning gerðan af Masaifólki Kenía. Mynd / Af vefsíðu
UTAN ÚR HEIMI
Leikarinn Jason Momoa
ásamt varningi er
frá honum kemur.