Bændablaðið - 10.02.2022, Blaðsíða 48
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. febrúar 202248
AF VETTVANGI BÆNDASAMTAKANNA
Landgræðsla og sjálfbærniviðmið
Landgræðsla er fallegt orð. Með
landgræðslu er landið okkar, sjálf
móðir jörð klædd gróðri og gædd
lífi. Forsenda þess er að byggja
upp jarðveg sem er undirstaða
flests sem við þurfum í raun,
helstu grunnþarfa mannsins og
flestra annarra dýrategunda.
Á Íslandi eru víða möguleikar til
landgræðslu, það hefur mikið verk
verið unnið undanfarið árhundrað,
verkefnið sem enn er óunnið er
engu að síður mikið. Þegar markið
er sett um hvert skuli stefna við
endurheimt landgæða er gjarnan
vísað til líklegs ástands gróðurs og
jarðvegs sem hér var þegar land var
numið. Hversu sannar vangaveltur
eru um mögulega gróðursæld og
magn kolefnis í jarðvegi fyrir tíma
mannsins getum við líklega aldrei
verið alveg viss. Framvinda og
hnignun gróðurs og jarðvegs getur
átt náttúrulegar orsakir og á Íslandi
eru til eyðimerkur frá náttúrunnar
hendi. Engu að síður hefur hér
gróður og jarðvegur víða tapast og
týnst umfram eðlilegar náttúrulegar
sveiflur og er ástæðan að líkindum
samspil af áhrifum vegna nýtingar
mannsins við óblíða veðráttu, eldgos
og aðrar náttúruhamfarir. Ómögulegt
er fyrir okkur nútímamanninn að
áætla hlutdeild hvers áhrifaþáttar.
Í umræðunni virðist manni oft
að sauðkindin hafi verið gerð að
táknmynd og stærsta orsakaþætti
gróðureyðingar. Þekkjandi vel
til beitar sauðfjár og hvernig sú
nýting hefur þróast hefur mér alltaf
þótt sú hugmynd fremur ótrúleg
en sú öllu líklegri að búfjárbeit og
þá sér í lagi vetrarbeit hafi komið
frekar inn sem áhrifaþáttur til að
viðhalda gróðurleysi og þá einkum
skógleysi þar sem hann hefur eyðst
vegna eldsumbrota, verið hogginn
til eldiviðaröflunar eða jafnvel
brenndur til að skapa beiti- og
slægnalönd. Hvernig sem því var
farið er þetta gjaldið sem landið
hefur greitt fyrir viðgang og viðhald
íslenskrar þjóðar í gegnum aldirnar.
Uppbygging jarðvegsauðlindar og
aukin fæðuöflun
Viðfangsefni okkar nú er ekki að
verja orku í karp um þetta. Áskorunin
er að halda ótrauð áfram að vinna til
baka gróðurhuluna og byggja upp
jarðvegsauðlind samhliða því að
viðhalda og helst auka í fæðuöflun
og fæðuöryggi fyrir landann. Þjóðin
er langt frá því að vera sjálfri sér
næg um mat. Við ættum að stefna
að því að uppfylla nokkurn veginn
þarfir fyrir kjöt og mjólkurvörur
og auka hlutdeild kornvöru og
grænmetis, en þar liggja líklega
stærstu sóknarmöguleikarnir.
Hingað er fluttur inn allur
tilbúinn áburður á meðan lífræn
efni sem falla til eru ekki fullnýtt
og er reyndar ýmislegt í okkar
regluverki sem er verulega hamlandi
þegar kemur að nýtingu lífrænna
áburðarefna. Þetta er því alvöru
áskorun. Það er margt sem vinnur
með okkur, s.s. tækniframfarir og
hlýtt veðurfar. En það eru einnig
áskoranir, svo sem stóraukin umferð
fólks um landið, einkum vegna
aukins ferðamannafjölda. Gagnvart
fæðuöfluninni er sveiflukennt
umhverfi landbúnaðarins áhyggju-
efni og reyndar sérstakur kapítuli.
Vilja og skilning almennings og
stjórnvalda þarf til að takast á við
verkefni tengd landgræðslu og
sjálfbærri landnýtingu, en fjármagn
hefur aukist í málaflokkinn
undanfarin ár. Við þurfum að skilja
og geta greint áhrif núverandi
nýtingar. Það er mikilvægt að setja
fram reglur og viðmið um nýtingu
til að fyrirbyggja eins og mögulegt
er neikvæð áhrif hennar. Þessar
reglur þurfa að vera rökréttar og
skiljanlegar og gegna sínu hlutverki
en á sama tíma vera sem minnst
hamlandi fyrir matvælaframleiðslu
og aðra mikilvæga landnýtingu.
Í landgræðslulögum er kveðið
á um hvernig skuli vinna þessar
reglur. Samkvæmt þeim skal
Landgræðslan gera tillögu að
viðmiðum um sjálfbæra landnýtingu
er varða beit, jarðrækt, umferð
og framkvæmdir. Stofnuninni er
skylt að vinna þau í samráði við
viðeigandi stofnanir, sveitarfélög
og hagsmunaaðila. Ráðherra setur
svo reglugerð þar um. Hljómar eins
og ágætt fyrirkomulag, ekki satt? Á
síðastliðnu ári skilaði Landgræðslan
tillögu að reglugerð um sjálfbæra
landnýtingu til ráðherra. Ráðherra
valdi að leggja þá tillögu óbreytta
inn í samráðsgátt. Það er skemmst
frá því að segja að þessi vinna fær
algjöra útreið í umsögnum mjög
margra aðila allt frá sveitarfélögum,
bændum, öðrum hagsmunaaðilum
og vísindafólki. Stofnuninni
mistókst algjörlega að hafa viðmiðin
skýr og auðskilin, þaðan af síður er
regluverkið rökrétt eða sanngjarnt og
augljóst að samráð við helstu aðila
málsins var ýmist ófullnægjandi
eða ekki neitt. Af umsögnunum að
dæma á þetta einkum við um viðmið
sem snúa að beit og jarðrækt.
Ginnungagap milli aðila
Það virðist vera ginnungagap
milli aðila þegar kemur að
viðhorfum til áhrifa búfjárbeitar á
gróður. Margir afgreiða beit sem
neikvæðan áhrifaþátt á gróður og
setja núverandi nýtingu iðulega í
samhengi við hnignunarsögu Íslands
sem er auðvitað fráleitt. Þessi
ágreiningur er ekki nýtilkominn
en sauðfjárbændur beittu sér mjög
fyrir því á meðan ég sat í stjórn
Landssamtaka sauðfjárbænda að
koma á vönduðu vöktunarkerfi
fyrir gróðurauðlindina. Það
varð loks að veruleika í kjölfar
búvörusamninganna 2017 að skrifað
var undir slíkt samkomulag milli
samtaka bænda, ráðuneytisins
og Landgræðslunnar sem hefur
haldið á framkvæmd verkefnisins
sem kallað er Grólind. Væntingar
bænda með þessari samvinnu voru
fyrst og fremst að byggja undir
faglega grunninn þegar kemur
að því að meta sjálfbær beitarnot
og freista þess að brúa bil á milli
viðhorfa. Smíði Landgræðslunnar
á fyrrgreindum sjálfbærniviðmiðum
urðu því gríðarleg vonbrigði og
vandséð í hvaða tilgangi bændur
ættu að halda samstarfi um
vöktunarverkefni áfram ef ekki
er stefnan að nota niðurstöður
verkefnisins með vitrænum hætti
inn í sjálfbærnimatið.
Það er ekki hægt að byggja
stefnu um landgræðslustarf og stjórn
beitarmála á einhverri óræðri teóríu.
Byggja ætti á þeirri þekkingu sem
er til og stefna að því að stoppa í
götin þar sem hana vantar. Á þann
hátt er hægt að leggja fram skýrar
praktískar leiðir að settu marki. Þá
er mikilvægt að allir hlutaðeigandi
skilji hugtök eins og sjálfbær not á
sama hátt. Þekking og skilningur
verður einnig að vera á áhrifum
beitar og búskaparháttum og
þróun þeirra, jafnt sem á eðli og
eiginleikum gróðurs og jarðvegs.
Hugmynd til umræðu,
umhugsunar og gagnrýni
Það er ekki góður vani að gagnrýna
vinnu annarra en leggja ekkert
til. Á eftirfarandi skýringarmynd
legg ég fram hugmynd að leið.
Hugmyndin er til umræðu,
umhugsunar og gagnrýni. Til
að vinna matið þarf ástandsmat
allra beitarhólfa að liggja
fyrir. Það er síðan borið saman
við viðmiðunarástand lands.
Viðmiðunarástand á að lýsa því
ástandi lands sem landið ætti að
geta verið í miðað við náttúrulegar
aðstæður s.s. hitastig, úrkomu,
vindálag o.s.frv. Í næsta skrefi er
landinu skipt eftir því hvort það
samræmist viðmiðunarástandi
eða ekki. Það land sem er í lakara
ástandi en viðmiðið segir til um
er til frekari skoðunar gagnvart
sjálfbærri nýtingu. Annað land
ekki, enda landið í ástandi miðað
við aðstæður og ekki árangurs að
vænta af aðgerðum, s.s. uppgræðslu
eða breyttri landnotkun. Gert er
ráð fyrir vöktun gróðurs og mat
á þróun gróðurfars er nýtt í næsta
skrefi. Það land sem er undir
viðmiðunarástandi er flokkað í
land í framför annars vegar og hins
vegar í land sem er án framfara
eða í afturför. Land í framför er
ekki til frekari skoðunar. Hins
vegar það land sem er undir
viðmiðunarástandi og ekki í framför
þarf að skoða sérstaklega gagnvart
sjálfbærum notum. Á slíku landi er
landbótaáætlana krafist og nýting
og aðrir áhrifaþættir settir undir
nálarauga. Skoða þarf beitarnotin,
fjölda beitardaga og beitartíma.
Leggja þarf mat á beitarummerki
á svæðinu og önnur áhrif vegna
búfjárbeitar. Meta önnur áhrif s.s.
af villtum dýrum, umferð fólks
o.fl. Út frá þessum upplýsingum
eru lögð til inngrip eða beinar
aðgerðir, s.s. landgræðslu eða
breytta beitarstjórnun, væntanlega
friðun í einhverjum tilfellum.
Markmið og aðgerðaáætlun þar
um sett fram í landbótaáætlun.
Eins og áður sagði er þessu
varpað hér fram sem tillögu að
nálgun. Samtalið þarf að eiga sér
stað á breiðum grunni. Á meðan
þekkingargrunnurinn er ekki
traustari en raun ber vitni þurfa
aðilar máls e.t.v. að teygja sig eftir
sjónarmiðum til að byrja með.
Engu að síður ætti að stefna að því
að byggja svo undir þekkinguna
að ákvarðanir séu teknar á grunni
niðurstaðna og nokkuð öruggri
vitneskju um afleiðingar og áhrif.
Þá þarf að hafa í huga aðrar stoðir
sjálfbærni en þá umhverfislegu þ.e.
þegar landnotkun hefur veruleg
efnahagsleg og kannski ekki
síður samfélagsleg áhrif. Vonandi
munu bændur og aðrir hagaðilar
fá að koma að uppbyggilegu
samtali um hvernig þessum
takmörkunum verði fyrirkomið
svo byggja megi traust sem flestra
aðila á að þær leiði okkur að sem
bestri niðurstöðu. Það er ekki bara
mikilvægt heldur nauðsynlegt.
Oddný Steina Valsdóttir
Oddný Steina Valsdóttir.
Hugmyndin er til umræðu, umhugsunar og gagnrýni. Til að vinna matið þarf
ástandsmat allra beitarhólfa að liggja fyrir.