Bændablaðið - 10.02.2022, Side 54
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. febrúar 202254
Reglulega hef ég reynt að prófa
ódýra litla bíla sem í huga
mínum er aukabíll á heimilið.
Fyrir stuttu heimsótti ég Heklu
á Laugaveginum í leit að bíl til að
prófa og fyrir valinu var Skoda
Kamiq með 1,0TSI bensínvél
sem á að skila 115 hestöflum,
sjálfskiptur, með fimm ára ábyrgð
og kostar ekki nema 3.990.000.
Það hefur stundum verið erfitt
að prufukeyra bíla á tímabilinu
desember og fram í mars sökum
veðurs og færðar, en yfirleitt kemst
ég nokkuð skammlaust frá þessu,
vitandi að prufuaksturinn var engan
veginn fullkominn, einn af þessum
slæmu prufutúrum var helgina 29.-
30. janúar við slæmar aðstæður.
Mikið af góðum hlutum í bílnum
miðað við verð
Þó að vélin sé ekki nema 1000cc,
skilar hún fínum krafti. Bíllinn
er tiltölulega snöggur að ná
umferðarhraða, en sjálfskiptingin
er í raun þrískipt. Venjuleg sex þrepa
skipting =D, S er aðeins snarpari
skipting og svo er hægt að handskipta
bílnum eftir „duttlungum“ hvers og
eins. Í bílnum er mikið af góðum
öryggis- og þægindahlutum þrátt
fyrir lágt verð, en í stýrinu er
hiti (3 mismunandi stillingar),
akreinalesari, fjarlægðarskynjarar
framan og aftan, hraðastillir,
stöðuleikastýring og spólvörn,
skriðvörn, brekkuaðstoðarbremsa,
árekstrarvörn o.fl. Ég keyrði bílinn
um 60 km í myrkri og var ánægður
með ökuljósin, bæði háa geislann og
þann lága, en við þetta má bæta að
stefnuljósin finnst mér einstaklega
flott hönnun.
Gott fótapláss og sæti góð
Eins og venjulega var byrjað á
hávaðamælingu sem reyndist með
betra lagi. 69,2db. er gott af ekki
stærri bíl og það með bensínvél.
Næst var að prófa í langkeyrslu,
en uppgefin meðaleyðsla á
hundraðið er 6,1 lítra á hundraðið,
hjá mér sagði eyðslan 8,4 á
hundraðið eftir 60 km jafnan akstur,
en í innanbæjarakstrinum var ég að
eyða 9,8 lítrum miðað við 100 km.
Ég skoðaði meðaleyðslu þeirra sem
höfðu verið að prófa bílinn á undan
mér, en þeir höfðu verið að eyða
10,8 þannig að ég var nokkuð sáttur
við sjálfan mig.
Fjöðrun er yfir meðallagi góð
og smærri holum finnur maður
lítið fyrir. Þar sem bíllinn er frekar
lítill og ekki hár á vegi fannst mér
nokkrum sinnum við prufuaksturinn
að ég væri sitjandi á götunni.
Mjög gott rými er fyrir farþega í
aftursætum (er 175 á hæð og plássið
fyrir framan hnén þegar ég sat í aft-
ursætinu var vel yfir 10 cm).
Farangursrýmið er mun stærra
en maður mundi ætla miðað við
stærðina á bílnum. Fullbúið varadekk
er undir plötu aftast í bílnum.
Seinni daginn var vont veður
til að prófa bíl
Sunnudaginn 30. janúar var ekki
spennandi veður til að prófa bíl,
en í staðinn náði ég að finna til hins
ýtrasta ABS-bremsubúnaðinn sem
ég var ánægður með, en skriðvörnin
fannst mér koma fullseint inn og
bíllinn kominn of langt út að aftan
þegar skriðvörnin tók völdin. Mér
fannst bíllinn samt glettilega góður
í snjó og hálku þrátt fyrir að vera á
ónegldum dekkjum og bara fram-
hjóladrifinn.
Eftir um 130 km prufu verð ég
að segja að bíllinn, sem flokkaður er
með smábílum, gæti allt eins verið
í miðlungsflokki. Hann er fyrir mér
að skora alls staðar, kraftur í lagi,
þægilegur, rúmgóður, fínt útlit, verð
o.fl. Það var þó tvennt sem var að
trufla mig. Mér fannst eins og ég
væri sitjandi á veginum þegar ég var
að keyra bílinn og skriðvörnin kom
frekar seint á í mikilli hálku. Annars
fyrir þá sem vilja fræðast meira um
bílinn, þá eru meiri upplýsingar á
vefslóðinni www.skoda.is.
VÉLABÁSINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Skoda Kamiq. Myndir HLJ
Hæð 1.840 mm
Breidd 1.988 mm
Lengd 4.241mm
Helstu mál og upplýsingar
Að mælast með bensínvél undir 70db.
í roki og snjó finnst mér mjög gott.
Frágangur á botni bílsins snyrtilegur, allur lokaður með varnarhlífum. Farangursrýmið er ótrúlega stórt af ekki stærri bíl.
Það tók mig smástund að átta mig á hvar ég tók spólvörnina af, en það er
gert á sama skjá og bakkmyndavélin er.
Ljósatakkann má skilja eftir svona, en þá er maður alltaf löglegur í akstri.
Fullbúið varadekk er í skottinu ásamt helstu verkfærum.