Bændablaðið - 10.02.2022, Qupperneq 28
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. febrúar 202228
LÍF&STARF
Hafist verður handa nú í mars
næstkomandi við að steypa upp lúx-
ushótel sem reist verður á lóðinni
Skælu á Þengilhöfða við Grenivík.
Framkvæmdir hófust í fyrrasum-
ar, en þá var unnið að vegagerð
frá þorpinu og að svæðinu, einnig
jarðvegsvinnu og settir voru niður
vatnstankar. Vinnubúðir hafa verið
settar upp á gömlum malarvelli á
Grenivík og þar er pláss fyrir 16
til 18 starfsmenn.
Stefnt er að því að hótelið hefji
starfsemi haustið 2023. Alls verða
40 vel útbúin herbergi á hótelinu,
þar af nokkrar svítur. Jafnframt
uppbyggingu mannvirkja er einnig
hugað að því að auka og efla ferða-
þjónustu á svæðinu en margs konar
afþreying stendur væntanlegum
gestum hótelsins til boða.
Það er félagið Höfði Develop-
ment, þróunarfélag sem byggir
Höfði Lodge hótel á Þengilhöfða við
Grenivík. Að því standa félagarnir
og fyrrum skíðamennirnir Björgvin
Björgvinsson og Jóhann Haukur
Hafstein.
Hótelið er um 6 þúsund fermetrar
Framkvæmdir hófust á liðnu ári
með vegagerð upp á Þengilhöfða
og jarðvegsvinnu er einnig lokið.
Björgvin segir að steypuvinna hefj-
ist í mars og gert sé ráð fyrir að sú
vinna taki nokkra mánuði, verkinu
verði lokið þegar líður á sumarið, í
júlí eða ágúst.
„Við gerum ráð fyrir að einhver
mynd verði komin á svæðið þegar
haustar og þá nýtum við næsta vetur
til að vinna innandyra við allt sem
gera þarf þar,“ segir hann. Hótelið
sjálft er um 6 þúsund fermetrar að
stærð, en að auki verður byggð
upp starfsmannaaðstaða í nokkrum
húsum á svæðinu, samtals um eitt
þúsund fermetrar, og eins verður reist
350 fermetra hesthús. Björgvin segir
húsin að mestu smíðuð í Lettlandi og
flutt til Íslands í einingum.
„Það verður fljótlegt að setja þau
saman þegar þau koma, það gerist
hratt,“ segir hann. „Við stefnum á að
ljúka þessu öllu og að hefja starfsemi
hér haustið 2023.“ Gert er ráð fyrir
að á bilinu 40 til 50 manns starfi á
hótelinu þegar rekstur er kominn í
fullan gang.
Einstakt útsýni út Eyjafjörð er eitt
af því sem gerði útslagið varðandi
staðarval hótelsins, sem og nálægð
við ósnortna náttúru og gott skíða-
svæði. Þá nefnir hann að Höfði
Development rekur þegar ferðaþjón-
ustufyrirtækin Viking Heliskiing og
Scandic Mountain Guides og hafi
margoft komið með gesti sína til að
stunda skíðamennsku t.d. á Kaldbak.
„Við höfum alltaf fengið mjög
góðar móttökur á Grenivík og upp-
lifum alltaf að við séum meira en
velkomin þangað. Það auðvitað
hafði sitt að segja,“ segir hann, en
til viðbótar nefnir hann að eiginkona
sín sé frá Grenivík og að afi henn-
ar og amma hafi verið með umrætt
land í erfðafestu og voru þar með
kartöflurækt.
„Það er alveg góð tenging við
staðinn.“
Útivist og náttúruupplifun helsta
aðdráttaraflið
Björgvin segir að samhliða upp-
byggingu á hótelinu sé einnig unnið
að því að byggja upp afþreyingar-
ferðaþjónustu á svæðinu.
„Það verður mikið í boði fyrir
þá gesti sem sækja okkur heim,
það er alveg ljóst að fólk verður að
hafa eitthvað við að vera þegar það
dvelur á svæðinu og er í raun lyk-
illinn að því að fá fólk til að koma,“
segir hann. Helsta aðdráttaraflið
felist í útivist og náttúruupplifun en
Björgvin nefnir að á meðan skíðatíð
standi yfir verði gert út á slíkar ferðir
og verði stórt og gott skíðaherbergi
til staðar á hótelinu fyrir búnaðinn.
Hann segir skíðaferðir hafa um
árin notið vaxandi vinsælda og
engin merki um annað en svo verði
áfram. Gestir geti einnig þeyst um
fjalllendið á vélsleðum.
Þá nefnir hann að sjórinn verði
nýttur og það sem hann býður upp
á, bátar, kajakar og róðrarbretti
verði í boði fyrir þá sem vilja, sem
og hvalaskoðunarferðir. Göngu- og
hjólaferðir og hestaferðir séu einnig
góð dægradvöl fyrir þá sem njóti
lífsins á Höfða. Fjöllin umhverfis
bjóði upp á skemmtilegar fjallgöng-
ur. Veiði ýmiss konar mun standa
gestum til boða, rjúpa og gæs og lax
svo dæmi séu nefnd.
Ísland verður áfram vinsælt
Á hótelinu verður veitingastaður,
stórt og gott spa, þar verður golf-
hermir fyrir gesti, bíósalur og
fundarherbergi.
„Þarna verður að finna allt það
sem prýðir gott hótel. Gestir hafa
kost á því að slaka á kjósi þeir það
og einnig að hafa nóg fyrir stafni frá
morgni til kvölds,“ segir Björgvin.
Hann segist hafa fulla trú á að
ferðaþjónusta á Íslandi muni fyrr en
varir rétta úr kútnum.
„Hún verður komin á fullan skrið
áður en við vitum af. Ísland verð-
ur alveg örugglega áfram vinsælt
meðal ferðalanga, við höfum upp á
svo margt að bjóða sem fólk sækir
í um þessar mundir. Kyrrð, fallega
náttúru og mikla upplifun,“ segir
Björgvin. /MÞÞ
Allt sem prýðir lúxushótel má finna á Höfða Lodge við Grenivík.
„Höfði Lodge”
Björgvin Björgvinsson og Jóhann Haukur Hafstein standa að félaginu Höfði
Development.
Búið er að koma fyrir vinnubúðum á gamla malarvellinum á Grenivík þar
sem pláss er fyrir 16 til 18 starfsmenn. Steypuvinna hefst í næsta mánuði
verði veður til friðs.
Vegagerð frá Grenivík og upp á hótelsvæðið á Þengilhöfða hófst í fyrra.
Útsýni frá hótelinu út Eyjafjörð er sérlega tilkomumikið og ekki ónýtt að
fylgjast með sólarlaginu á fallegu sumarkvöldi þaðan.
HLAÐVARP BÆNDABLAÐSINS https://www.bbl.is/hladan
líka hægt að lesa á bbl.is og Facebook
Smáauglýsingar 56-30-300
Margrét Þóra Þórsdóttir
mth@bondi.is