Bændablaðið - 10.03.2022, Blaðsíða 14
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. mars 202214
Nýtt flugfélag um millilandaflug
var stofnað á Akureyri nýverið
en fyrsta flugið er áætlað 2.
júní næstkomandi. Félagið fékk
nafnið Niceair og vísar það til
Norður-Íslands, en það mun
sinna vaxandi markaði svæðisins
bæði fyrir heimamenn og erlenda
ferðamenn.
Í upphafi verður flogið til þriggja
landa, Bretlands, Danmerkur og
Spánar, og hefst sala innan skamms.
Félagið hefur fest sér Airbus A319
flugvél með 150 sætum en þessi
tegund flugvélar er langdræg og
hentar vel fyrir aðstæður á Akureyri
ásamt því að hafa gott fraktrými.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá
félaginu.
„Forsendur fyrir flugi til og
frá Akureyri hafa breyst verulega
frá því sem áður var en stofnun
Niceair kemur í kjölfar tveggja
ára rannsóknarvinnu í samvinnu
við erlenda og innlenda aðila.
Ætlun félagsins er að festa í sessi
áætlunarflug allt árið á erlenda
áfangastaði frá Akureyrarflugvelli.
Þetta mun í senn bæta lífsskilyrði
einstaklinga á svæðinu, bæta
aðgengi erlendra ferðamanna að
Norðurlandi, og síðast en ekki
síst stóreykst samkeppnishæfni
fyrirtækja á svæðinu,“ segir
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson,
framkvæmdastjóri Niceair.
Fyrst um sinn verður flugrekstrar
leyfið í höndum evrópsks flugrek
anda. Ætla má að um 20 störf muni
skapast á Akureyri en áhafnir verða
bæði innlendar og erlendar, og
launakjör sambærileg þeim sem
gerast á íslenskum vinnumarkaði.
Þjálfun áhafna mun fara fram bæði
á Íslandi og erlendis.
Vel fjármagnað með öfluga
bakhjarla
„Við erum vel fjármagnað félag með
öfluga bakhjarla. Það er sérstaklega
ánægjulegt hversu fjölbreytt
breiðsíða fyrirtækja, einstaklinga
og stofnana á Norðurlandi hefur
flykkt sér að baki félaginu,“
segir Þorvaldur Lúðvík en KEA,
Höldur, Kaldbakur, Norlandair,
Armar, Ferðaskrifstofa Akureyrar,
Norðurböð, brugghúsið Kaldi,
kælismiðjan Frost, Finnur ehf. og
fleiri félög eru meðal hluthafa.
Enginn hluthafa er áberandi stór
og enginn er yfir 8%. „Á næstu
misserum verður almenningi og
fyrirtækjum boðið að eignast
hlutdeild í félaginu,“ segir
Þorvaldur Lúðvík.
Áætlunarflug allt árið um
kring mun þjóna farþegum bæði
á Norðurlandi og Austurlandi sem
hingað til hafa þurft að fara langan
veg til Keflavíkur til að komast í
millilandaflug. Flug Niceair til
Akureyrar er líklegt til að styðja
við heilsársþjónustu um allt land
sem hefur lengi verið markmið
ferðaþjónustunnar en rannsóknir frá
Ferðamálastofu hafa sýnt fram á að
70% endurkomufarþega til Íslands
vilja komast beint út á land.
„Við sjáum fram á vöxt á næstu
árum. Það er mikilvægt að geta
gripið tækifæri til frekari vaxtar
eftir því sem eftirspurn eykst. Við
hlökkum til að taka höndum saman
með Íslandsstofu, Markaðsstofu
Norðurlands, Austurbrú og
stjórnvöldum við að kynna Norður
og Austurland sem nýja áfangastaði
á Íslandi,“ segir Þorvaldur Lúðvík.
Jákvætt og stórt skref
„Við erum gríðarlega ánægð
að fá okkar eigið flugfélag á
Akureyrarflugvöll. Hér í norðrinu
er ört vaxandi borgarsamfélag
sem verður að hafa áætlunarflug
á milli landa á helstu áfangastaði
fyrir fólk og frakt. Það hefur verið
sameiginlegt átak hjá mörgum
hagaðilum hér fyrir norðan um langt
skeið að byggja upp áfangastaðinn
og þetta er afar jákvætt og stórt
skref sem við sjáum hér stigið,“
segir Hjördís Þórhallsdóttir,
flugvallarstjóri Akureyrarflugvallar.
Áfangastaðir verða kynntir á
næstu vikum og mun sala hefjast
strax í kjölfarið á heimasíðu
félagsins, www.niceair.is.
Bókunarvél Niceair verður
tengd Dohop og öðrum erlendum
bókunarvélum sem einfaldar
farþegum félagsins að bóka sig beint
á milli Akureyrar og áfangastaða
erlendis um tengivelli félagsins
í Evrópu. /MÞÞ
FRÉTTIR
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
ÖFLUGAR IÐNAÐARÞVOTTAVÉLAR OG ÞURRKARAR
FYRIR FYRIRTÆKI OG STOFNANIR
Nánari upplýsingar veitir
sölufólk okkar í síma 580 3900
Verkstæði
Slökkvistöðvar
Heilbrigðisstofnanir
Fiskvinnslufyrirtæki Hótel og gistiheimili
Skóla
Íþróttafélög og sundlaugar
Efnalaugar og þvottahús
Tilvalið fyrir:
Nýtt flugfélag um millilandaflug stofnað á Akureyri:
Fyrsta flugið í byrjun júní
og flogið til þriggja landa
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Niceair, segir ætlun félagsins að festa í sessi áætlunarflug allt
árið á erlenda áfangastaði frá Akureyrarflugvelli.
Félagið hefur fest sér Airbus A319 flugvél með 150 sætum en þessi tegund
flugvélar er langdræg og hentar vel fyrir aðstæður á Akureyri ásamt því að
hafa gott fraktrými.
Kemur næst út 24. mars
Hildur Birna Gunnarsdóttir var mætt á Búnaðarþing á Hótel Natura í síðustu
viku til að kynna hvað Ólafur Gíslason & Co. og Eldvarnamiðstöðin byðu
upp á í eldvörnum fyrir bændur landsins.
Ólafur Gíslason & Co. og Eldvarnamiðstöðin:
Eldvarnir alltaf
mikilvægar
Undanfarin ár hefur sívaxandi
áhersla verið lögð á eldvarnir í
sveitum landsins. Hildur Birna
Gunnarsdóttir var því mætt
á Búnaðarþing að kynna hvað
Ólafur Gíslason & Co. og
Eld varna miðstöðin byðu upp á í
þeim efnum.
Hildur segir að þau hafi marg
víslegan eldvarnarbúnað upp á
að bjóða, en oft sé fólk svolítið
andvaralaust gagnvart hættunni á
eldsvoðum.
„Því miður þarf oft svolítið
mikið að gerast til að fólk kveiki
á perunni. Margir eru þó vel
meðvitaðir um að það þurfi að hafa
eldvarnir í lagi. Þetta er þó þannig
að fólk verður alltaf að vera vakandi
fyrir þessu, passa upp á að tækin
séu í lagi og endurnýja búnað. Það
á sérstaklega við í sveitum þar sem
langt er í næsta slökkvilið,“ sagði
Hildur.
Hildur segir að öll slökkvitæki
hafi eitthvað sér til ágætis, en þau
séu þó yfirleitt sérhæfð til að glíma
við mismunandi elda. Dufttæki
dugi á flest, en duftið sé vissulega
andstyggilegt að þrífa ef nota þurfi
slík tæki í heimahúsum. Froðutæki
og kolsýrutæki séu að því leyti betri,
en hafa þurfi þar varann á ef um eld
af völdum rafmagns sé að ræða. Hún
nefnir líka að eldvarnarteppin séu
stórlega vanmetin. Þau geti gengið
til að kæfa elda af öllu tagi, ekki bara
í pottum með steikingarfeiti. /HKr.
– Sjá nánar af sýnendum á
Bú greina þingi á bls. 26 og 27.