Bændablaðið - 10.03.2022, Blaðsíða 46

Bændablaðið - 10.03.2022, Blaðsíða 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. mars 202246 Öll erum við meðvituð um þá hræðilegu atburði sem eiga sér stað í Úkraínu um þessar mundir. Á meðan hugur okkar er hjá hinu hrjáða fólki þar í landi áttar maður sig á smæð þeirra vandamála sem við hér á Íslandi þurfum að kljást við. Vonir stóðu til að 2022 yrði árið sem allt kæmist á réttan kjöl á ný. Við okkur blasti stöðugleiki, gleði og uppgangur. En málin þróuðust á annan veg og enginn veit hve lengi hörmungarástandið mun vara. En eitt er víst, að fullur þungi loftslagsbreytinga hefur ekki enn á okkur dunið, og hann mun verða þyngri en annar helvítis andskoti hingað til. Þrátt fyrir það þurfum við m.a. að bregðast við því ástandi sem er að skapast í landbúnaðarframleiðslu heimsins. Mikilvægt er að hafa í huga að hlutfallslega lítill hluti af landbúnaðarframleiðslu er á heimsmarkaði og því getur uppskerubrestur í þeim fáu löndum sem leggja til stóra hluta af honum haft mikil áhrif. Verulegar hækkanir hafa orðið á kornverði í heiminum undanfarið ár. Frá janúar 2021–janúar 2022 hækkaði heimsmarkaðsverð á byggi um 25%, maís um 18% og hveiti um 23% skv. verðlagseftirliti Framkvæmdastjórnar Evrópu- sambandsins. Skýringuna á þeirri hækkun má að vissu leyti rekja til áhrifa Covid-19 en einnig til annarra þátta. Meðal annars höfðu gríðarlegir þurrkar og hitabylgjur (>50°C) í Kanada neikvæð áhrif á kornuppskeru. Kanada er sjötta stærsta kornræktarland á heimsvísu og því höfðu þessir atburðir áhrif á heimsmarkaðsverð korns. Miklar hækkanir voru einnig á áburðarverði á árinu 2021 eins og allir hafa orðið varir við, eða 142% meðalhækkun á heimsvísu. Þar sem þessi hækkun var mest á seinni hluta ársins 2021 er því spáð að hún muni ekki skila sér að fullu í hærra markaðsverði kornafurða fyrr en á miðju ári 2022. Rússland og Úkraína eru stór framleiðslulönd korns en samanlagt flytja þessi lönd út um 29% af því hveiti sem er selt í alþjóðaviðskiptum. Einnig má nefna að Rússland er stærsti byggframleiðandi heims og Úkraína sjötti stærsti. Innan landamæra Úkraínu er gríðarlega frjósamur jarðvegur, og er hún stundum kölluð brauð- karfa Evrópu. Næstu vikur eru sáðtími á sléttum Úkraínu og ætla má að stríðsástand muni tefja fyrir sáningu á voryrkjum. Viðskiptabann vestrænna ríkja gegn Rússlandi og stríðsástandið í Úkraínu mun að öllum líkindum valda skerðingu á framboði kornvara á markaði. Þessi skortur leiðir til verðhækkana á markaði til viðbótar við hækkanirnar sem eru tilkomnar vegna áburðarverðs og uppskerubrests 2021. Kornrækt verður hagkvæmari hérlendis Það virðist stefna í að verð á innfluttu fóðri til bænda muni hækka verulega á þessu ári. Allar slíkar verðhækkanir á innfluttu korni breyta samkeppnisstöðu innlendrar kornræktar og gerir hana hagkvæmari í samanburði. Það gæti því orðið ábótasamt fyrir bændur að auka kornrækt í sumar. Bygg, sex raða bygg sérstak- lega, er þeim hæfileikum gætt að skila meiri uppskeru á frjósömum mýrarjarðvegi með lægri áburðarskömmtum en til dæmis á rýrum jarðvegi sem krefst hárra áburðarskammta. Sá galli er þó á gjöf Njarðar að byggið er af lakari gæðum. Einnig fylgja önnur vandamál við ræktun korns á mýri, jarðvegurinn getur verið erfiður yfirferðar í vætutíð, kornið þroskast seint og er oft með lágt þurrefnisinnihald við skurð. Auk þess á það heldur til að leggjast í svo frjósömum jarðvegi samanborið við harðari jörð. Í þessu sambandi má einnig nefna að til þess að þessar frjósömu mýrar skili áburðarefnunum í plönturnar þarf jarðvegurinn að losa talsvert magn kolefnis á móti. Á móti kemur að með háum áburðarskömmtum á sandjarðvegi er verið að binda kolefni í jarðvegi. Að sá byggi í mýrarjarðveg sem lið í sáðskiptum getur minnkað áhrif hækkunar áburðarverðs á ræktunarkostnað. Bygg í sáðskiptum í túnrækt er mikill kostur. Áburðarefni sem eru til staðar í jarðvegi en ekki aðgengilegar grösum í eldri túnum geta losnað við jarðvinnslu og orðið aðgengilegar korni. Þannig má uppskera fleiri áburðarefni en borið er á. Á meðfylgjandi töflu má sjá samanburð á uppskeru og áburðarnotkun við byggrækt á mismunandi jarðvegi og gróffóðurræktun. Tölurnar fyrir uppskeru og áburðarmagn byggs eru meðaltöl 32 yrkja úr tilraunum á Hvanneyri og í Gunnarsholti. Sambærilegar tölur fyrir gróffóður koma úr tilraunum á Hvanneyri, annars vegar úr langtímatilraun lögð út 1977 og enn uppskorin árlega, og hins vegar úr sláttutímatilraun sem lögð var út 2018. Fóðureiningar uppskeru byggs voru miðaðar við 1,1 FEm/kg þe en tölur fyrir gróffóður eru byggðar á niðurstöðum heyefnagreininga. Niðurstöður töflunnar benda til þess að hvert áborið N kg skilar sér í flestum fóðureiningum í byggrækt. Það má því segja að hagkvæmni byggræktunar aukist með hækkandi áburðarverði og hægt sé að fá ódýrari fóðureiningar þar en með annarri ræktun. Jóhannes Kristjánsson og Hrannar Smári Hilmarsson. Höfundar starfa hjá LbhÍ. Jóhannes er búfræðikennari og Hrannar tilraunastjóri í jarðrækt. Kornhorn: Stríð og korn – „Milli austurs og vesturs þar geisar stríð, á Kanasjónvarpið horfir fjallkonan fríð“ – Sonja Bára & Tryggvi Már Baldursbörn Jóhannes Kristjánsson. Hrannar Smári Hilmarsson. Kornakur í Gunnarsholti 2021. Mynd / Þóroddur Sveinsson Ræktun Tonn Þe/ha FEm/ha Áburður kg N/ha FEm/kg N Bygg í mýrarjarðvegi 5,3 5.830 45 130 Bygg í sendnum jarðvegi 4,5 4.950 120 41 Gróffóður nýrri ræktun 8,5 5.200 180 29 Gróffóður eldri ræktun 6,5 6.800 180 38 LANDBÚNAÐARHÁSKÓLI ÍSLANDS Búnaðarþing 2022 Búnaðarþing 2022 verður að þessu sinni haldið á Hótel Natura, dagana 31. mars og 1. apríl nk. Þingsetning verður fimmtudaginn 31. mars og hefst athöfnin kl. 12.30. Framboðsfrestur til stjórnar BÍ er 16. mars. Frestur til þess að senda inn mál til stjórnar er 17. mars. Vakin er athygli á því að kæra vegna kosningar búnaðarþingsfulltrúa þarf að berast stjórn BÍ a.m.k. tveimur vikum áður en þing er sett. Óskir þingfulltrúa um setu í ákveðnum nefndum þingsins þurfa að berast stjórn fyrir 17. mars nk. Fundargögn verða send þingfulltrúum í síðasta lagi 24. mars nk. Nánari upplýsingar verður að finna á bondi.is Stjórn Bændasamtaka Íslands Fylgstu með bændum á Facebook, á bondi.is og bbl.is LESENDARÝNI Búgreinaþing sauðfjárbænda sem haldið var 3-4. mars var vel heppnað. Á fundinum voru málefni sauðfjárræktarinnar rædd vítt og breitt. Upp úr stendur umræða um afkomu greinarinnar, enda staða sauðfjárbænda mjög erfið á þessum miklu óvissutímum. Á fundinum voru samþykktar áherslur varðandi endurskoðun sauðfjársamnings og lögð áhersla á að hefja þá vinnu sem fyrst þannig að breytingar taki gildi 1. janúar 2023. Það er algjört forgangsatriði nýrrar stjórnar að vinna að því að bæta afkomu sauðfjárbænda. Bændur hafa undanfarin ár unnið mikið og gott starf við að efla sinn búrekstur og munu halda því áfram. Þetta má t.d. sjá í aukinni afurðasemi og bættri flokkun sláturlamba. Þá felast mikil tækifæri í hagræðingu í afurðageiranum en óvíst hvernig næst að sækja hana. Hér skiptir máli að stjórnvöld stígi fram og skapi skilyrði til að sækja þessa hagræðingu. Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins hefur undanfarin ár safnað saman gögnum um rekstur sauðfjárbúa. Á grunni þessa gagnasafns getum við sett fram skýrar og vel rökstuddar kröfur um afurðaverð til bænda. Miðað við fyrirliggjandi gögn frá RML þarf afurðaverð, að lágmarki, að vera 850 kr/kg á komandi hausti. Ef ekki verður viðsnúningur í afkomu sauðfjárbænda mun draga verulega úr framleiðslu á næstu árum með tilheyrandi byggðaröskun. Það er mikilvægt að hafa í huga þann mikla mannauð sem sveitir landsins búa yfir. Mörgum hefur verið tíðrætt um mikilvægi nýsköpunar í íslenskum landbúnaði á síðastliðnum árum m.a. á sviði loftslagsmála. Bændur munu grípa þau tækifæri sem gefast, það hafa þeir alltaf gert. En besta leiðin til að virkja hugvit og áræðni íslenskra bænda er að tryggja þeim sanngjarna afkomu af sinni vinnu. Ef okkur tekst það, þá eru bændum allir vegir færir. Trausti Hjálmarsson, Austurhlíð, formaður búgreinadeildar sauðfjárbænda Samstíga sauðfjárbændur Trausti Hjálmarsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.