Bændablaðið - 10.03.2022, Blaðsíða 20

Bændablaðið - 10.03.2022, Blaðsíða 20
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. mars 202220 Ríflega fjórar milljónir tonna af skordýraeitri, gróðureyðingar­ efnum og sveppaeitri hafa verið notaðar í landbúnaði 160 ríkja á ári hverju. Jarðvegsmengun vegna notkunar slíkra efna veldur sívaxandi áhyggjum. Töluvert af þessum efnum endar í korni og öðrum matvælum og í raun veit enginn hvaða langtímaáhrif það hefur á heilsu fólks. Mikið hefur verið rætt um áhrif efna í plastiðnaði, m.a. ófrjósemi og myndun krabbameina, en markvisst hefur verið reynt að þagga niður áhrif efnanotkunar í landbúnaði. Þá hefur verið sýnt fram á að öflugur svartur markaður þrífst í Evrópu og víðar í viðskiptum með skordýraeitur og ýmis gróðureyðingarefni sem innihalda efni sem hafa verið bönnuð í Evrópu. Þannig er ljóst að opinberar tölur sýna ekki allan sannleikann um notkun hjálparefna í landbúnaði víða um lönd. Ekkert virðist geta stöðvað þessa þróun sem kynt er undir af sterkum fjármálaöflum. Eini möguleikinn virðist vera stórhertar reglur um notkun eiturefna í landbúnaði samfara öflugri hugarfarsbreytingu neytenda og stóreflingu á lífrænum landbúnaði í heiminum. Á móti er beitt þeirri lífseigu röksemd að ómögulegt sé að fæða alla jarðarbúa án þess að beita öflugum efnahernaði gagnvart jörðinni. Magn margs konar eiturefna hefur haldið áfram að aukast hröðum skrefum frá 1960 með tilheyrandi mengun jarðvegs og grunnvatns. Á sama tíma er verið að taka ræktunarland undir aðra starfsemi í heiminum í stórum stíl að því er sjá má m.a. í skýrslunni Statistical Yearbook FAO 2021. Gríðarlegir peningahagsmunir Eftir miklu er að slægjast því talið er að markaður með hjálparefni í landbúnaði hafi aukist úr 80,27 milljörðum dollara á árinu 2020 í 84,82 milljarða dollara á árinu 2021, þrátt fyrir heimsfaraldur af völdum Covid-19. Það er árs- vöxtur upp á 5,7%. Þá er búist við að markaðurinn með slíkar vörur haldi áfram að vaxa fram til 2025 og verði þá kominn í 109,75 milljarða dollara. Þetta er fyrir utan umtalsverð svartamarkaðsviðskipti með slíkar vörur. Helstu fyrirtæki í framleiðslu á skordýraeitri, gróður- og sveppaeyðingarefnum eru þýski efnarisinn Bayer AG, svissneska fyrirtækið Syngenta AG, BASF SE í Þýskalandi, Dow Chemical Company (TDCC) í Bandaríkjunum og China National Chemical Corporation (Chemchina). Ísland í betri stöðu en flestar aðrar þjóðir Líkt og varðandi mikla sýklalyfja- notkun, sem er stórvandamál í verksmiðjubúskap víða um lönd, þá eru Íslendingar samkvæmt alþjóðlegum talnagrunnum að mestu lausir við notkun skordýraeiturs og gróðureyðingarefna í landbúnaði. Ísland er í sjöunda neðsta sæti, eða númer 154 af 160 þjóðum hvað heildarmagn varðar í notkun „hjálparefna“ í landbúnaði. Erum við með 20 grömm á hektara sé það reiknað niður á ræktað land. Hér á landi er hins vegar mest af þessum skordýra- og gróðureyðingarefnum sem flutt eru inn notuð í görðum í þéttbýli og á golfvöllum landsins. Það þýðir þá jafnframt að matvæli sem hér eru framleidd ættu að innihalda minna af skaðlegum efnum en matvæli flestra annarra þjóða í heiminum. Kína og Bandaríkin nota mest Samkvæmt tölfræðivöktun Worldo- meter um eitur- og hjálparefna notkun í landbúnaði í 160 löndum var mest notað af slíkum efnum í Kína 2017, eða 1.763.000 tonn, og næstmest í Bandaríkjunum, eða 407.779 tonn. Gríðarleg aukning hefur verið í notkun slíkra efna í Kína frá 1991, en mest var notkunin 2014, eða rúmlega 1,8 milljónir tonna. Mun lengri hefð er fyrir slíkri efnanotkun í Bandaríkjunum og hefur hún að meðaltali haldist nokkuð stöðug frá 1991 þó hún hafi verið mest 1999, eða nær 434 þúsund tonn. Frá 2012 hefur magnið verið nær óbreytt nær 408 þúsund tonnum í Bandaríkjunum eftir töluverðan samdrátt í kjölfar efnahagshrunsins 2008. Árið 2009 var heildarmagnið í Bandaríkjunum komið niður í 358 þúsund tonn, sem var það minnsta frá 1991, en síðan fór notkunin að aukast á ný. Meira að segja í Úkraínu sem státar af einhverjum besta jarðvegi í heimi til ræktunar, svörtu moldinni, er notkun eiturefna gríðarleg. Er landið þar í sjötta sæti með 78.201 tonn, eða 2,3 kg á hvern hektara ræktarlands. Worldometer sótti grunngögn sín í tölur frá FAOSTAT, The State of Food Insecurity in the World – FAO, United Nations Population Division, United Nations Statistics Division og World Bank. Í töflunni eru gögnin teiknuð upp til ársloka 2017. Síðan virðist notkunin hafa aukist á flestum stöðum í það minnsta til 2020. Svartur markaður, svik og prettir Fyrir utan opinberar tölur um notkun eiturefna í landbúnaði þykir sannað að gríðarlegur svartur markaður er með slíkar vörur í Evrópu og víðar um lönd. Í grein á vefsíðu Euractiv í júní á síðasta ári var greint frá eftirliti Europol með ólöglegri notkun hjálparefna í landbúnaði. Frá janúar til apríl í fyrra gerði Europol upptæk 1.203 tonn af ólöglegum hjálparefnum til landbúnaðarnota. Þessi árangur var afrakstur af sérstakri aðgerð Europol sem nefnd var „Silver Axe“ og stóð yfir frá 13. janúar til 25. apríl 2021. Fór aðgerðin fram í samvinnu lögregluembætta í 35 löndum, þar á meðal í 27 ríkjum Evrópusambandsins. Var aðgerðinni beint gegn ólöglegum innflutningi, svindli og ólöglegum viðskiptum með skordýraeitur og ýmiss konar gróðureyðingarefni. Í aðgerðunum var tilkynnt um 763 brot á lögum og fundust efni í 258 tilvikum. Leiddi þetta til handtöku á 12 einstaklingum. Sannað þótti að blekkingum hafði verið beitt varðandi 100 tonn af slíkum efnum þar sem merkingum hafði verið breytt fyrir sölu og voru 82 tonn til viðbótar til rannsóknar af sömu ástæðu. Europol telur að meginuppspretta ólöglegra hjálparefna fyrir landbúnað sé í Asíu. Hins vegar er bent á að mjög vaxandi viðskipti séu með slík efni í netsölu. Ganga þessi efni undir ýmsum nöfnum og innihalda oftar en ekki efni sem búið er að banna í löndum Evrópusambandsins. Þannig upplýsti búlgarski rannsóknarblaðamaðurinn Valia Ahchieva um notkun ólöglegra efna í fyrra undir nafninu Mocap. Það innihélt efni sem bönnuð höfðu verið af Evrópusambandinu, en voru samt í notkun og meira að segja niðurgreidd af landbúnaðarráðuneyti Búlgaríu. Allt var þetta gert undir „European Green deal“ samningi sem gerir ráð fyrir að ESB verði loftslagshlutlaust fyrir árið 2050 og Evrópuþingmenn heita kjósendum sínum að þeir muni fá öruggan og hollan mat. Þetta hefur líka verið kallað „græn bjartsýni“ í erfiðleikum við að finna frjóan jarðveg í sumum aðildarríkjum, þar sem Búlgaría er sagt gott dæmi. Mjög mikil notkun eiturefna og annarra hjálparefna í okkar helstu viðskiptalöndum Ísland kaupir mikið af korn vöru, ávöxtum og grænmeti til mann- eldis frá Bandaríkjunum þar sem notkun „hjálparefna“ nemur að meðaltali um 2,5 kg á hektara, eða 125 sinnum meira en á Íslandi. Geta má þess að notkun skordýraeiturs í landbúnaði er hvergi meiri en í ávaxtarækt. Þá kaupa Íslendingar mikið af kjötvörum, ávöxtum, grænmeti og víni frá Spáni þar sem notkunin nemur 3,6 kg á hektara, eða 180 sinnum meira en á Íslandi. Við fáum líka margvíslegar landbúnaðarvörur frá Frakklandi þar sem notkun fyrrgreindra efna er jafn mikil á hektara og á Spáni. Frá Þýskalandi fáum við m.a. kjöt og fjölda annarra landbúnaðarafurða en þar er efnanotkunin 4 kg á hektara, eða 200 sinnum meiri en á Íslandi. Ýmsar vörur fáum við einnig frá Ítalíu þar sem efnanotkunin er 6,1 kg á hektara, eða 305 sinnum meiri en á Íslandi. Danmörk notar mest allra Norðurlandanna af hjálparefnum Sé litið á Norðurlöndin, þá er notkunin langminnst á Íslandi, bæði í heildarmagni og reiknað á hektara ræktaðs lands. Noregur kemst næst okkur, en er samt með 40 sinnum meiri notkun á hektara. Sem fyrr segir er Ísland með 2,5 tonn og 20 grömm á hektara á meðan Danmörk er með mesta notkun Norðurlandaþjóða, eða 2.630 tonn og 1,1 kg á hektara. Svíþjóð er með 1.524 tonn og 0,6 kg á hektara. Finnland er með 1.372 tonn og 0,6 kg á hektara. Þá kemur Noregur með 671 tonn og 0,8 kg á hektara. Langmest notkun á hektara á Maldíveyjum Miðað við notkun á hektara ræktaðs lands er notkunin hins vegar hlut- fallslega langmest á Maldív eyjum, eða 52,6 kg á hektara, á meðan Kína er með 13,1 kg á hektara og Bandaríkin með 2,5 kg. Ísland er í 154. sæti af 160 löndum í notkun eitur- og hjálparefna með 2,54 tonn, eða 0,02 kg (20 grömm) á hektara sé því deilt niður á ræktað land. Önnur lönd sem nota mikið af skordýraeitri og gróðureyðingar- efnum á hvern hektara ræktaðs lands, eða yfir 10 kg, eru Trínidad og Tóbagó með 24,9 kg á hektara, Kosta Ríka með 22,5 kg á hektara, Ekvador með 13,9 kg á hektara, Taívan með 13,5 kg á hektara, Ísrael með 12,6 kg á hektara, Suður-Kórea með 12,4 kg á hektara, Japan með 11,8 kg á hektara og Gvatemala með 10 kg á hektara. FRÉTTASKÝRING Hörður Kristjánsson hk@bondi.is Eiturefnanotkun í landbúnaði í heiminum veltir um 85 milljörðum dollara og hefur aukist gríðarlega frá 1960: Ísland er í 154 sæti af 160 þjóðum með eina allra minnstu eiturefnanotkun á heimsvísu – Helstu viðskiptalönd Íslands í matvælaframleiðslu nota allt upp í 300 sinnum meira á hektara ræktarlands en hér er gert í heild Notkun skordýraeiturs og gróðureyðingarefna í landbúnaði Röð Hjálparefni (Pesticide) Kg á hektara mv/magn í tonnum ræktarlands 1 Kína 1.763.000,00 13,100 2 Bandaríkin (USA) 407.779,00 2,500 3 Brasilía 377.176,00 6,000 4 Argentína 196.009,00 4,900 5 Kanada 90.839,00 2,400 6 Úkraína 78.201,00 2,300 7 Frakkland 70.589,00 3,600 8 Malaysía 67.288,00 8,100 9 Ástralía 63.416,00 2,000 10 Spánn 60.896,00 3,600 11 Ítalía 56.641,00 6,100 12 Tyrkland 54.098,00 2,300 13 Indland 52.750,00 0,300 14 Japan 52.249,00 11,800 15 Þýskaland 48.193,00 4,000 16 Mexíkó 47.128,00 1,800 17 Kolumbía 37.698,00 9,900 18 Thailand 35.287,00 1,700 19 Ecuador 34.253,00 13,900 20 Suður-Afríka 26.857,00 2,200 21 Russland 25.961,00 0,200 22 Pólland 25.075,00 10,000 23 Guatemala 20.489,00 12,400 24 Suður-Kórea 20.043,00 3,200 25 Bretland (UK) 19.844,00 4,000 26 Paraguay 19.662,00 1,700 27 Víetnam 19.154,00 1,400 28 Myanmar 17.274,00 1,800 29 Bangladesh 15.144,00 1,800 30 Bolivía 14.758,00 3,300 31 Kazakhstan 13.811,00 0,500 32 Morocco 13.697,00 1,500 33 Uruguay 13.366,00 5,400 34 Costa Rica 12.811,00 22,500 35 Taiwan 10.549,00 13,300 36 Chile 9.831,00 5,700 37 Ungverjaland 9.759,00 2,200 38 Turkmenistan 9.712,00 4,900 39 Grikkland 9.384,00 2,900 40 Portúgal 9.293,00 5,400 41 Perú 8.992,00 1,800 42 Dominíska lýðveldið (DR) 8.985,00 7,800 43 Holland 8.495,00 7,900 44 Egyptaland 8.044,00 2,200 45 Hondúras 7.195,00 4,200 46 Rúmenía 6.859,00 0,800 47 Ísrael 6.093,00 12,600 48 Alsír 5.983,00 0,700 49 Belgía 5.742,00 6,700 50 El Salvador 5.638,00 6,000 Land Fimmtíu öflugustu ríki heims í notkun á skordýraeitri og margvíslegum gróður- og sveppaeyðingarefnum. Ísland er í sjöunda neðsta sæti, eða númer 154 af 160 þjóðum. Hér á landi er hins vegar mest af þessum skordýra- og gróðureyðingarefnum, sem flutt eru inn, notuð í görðum í þéttbýli og á golfvöllum landsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.