Bændablaðið - 10.03.2022, Blaðsíða 21

Bændablaðið - 10.03.2022, Blaðsíða 21
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. mars 2022 21 Segja má að tímamót hafi átt sér stað í rafbílaþróun heimsins í janúar þegar Dongfeng Motor í Kína afhenti 50 rafbíla með fastkjarna, eða „solid-state“, raf- hlöðum til sýnikennslu. Kínversku DongFeng Aeolus E70 rafbílarnir nota fastkjarna rafhlöður sem þróaðar voru í sameiningu við Ganfeng Lithium, sem gerði samning við ríkisbílaframleiðandann um mitt ár 2021. Greint frá því í kínverskum fjölmiðlum 22. janúar síðastliðinn, að fyrstu 50 Dongfeng Fengshen E70 bílarnir með fastkjarna rafhlöðum verði teknir í notkun sem sýningarbílar í Jiangxi, Guangzhou, Zhejiang og Jiangsu héruðum í Kína. Fjölmiðlar segja að Ganfeng Lithium hafi framkvæmt öryggis­ prófanir á nýja rafhlöðukerfinu og að það hafi staðist álag hvað varðar vatnsheldni, sprengiþol, jarðskjálftaþol og burðarstyrk. Ekki kemur fram hvernig þessar rafhlöður eru samsettar eða úr hvaða grunnefnum. Yfirburðir fastkjarna rafhlaðna Munurinn á hefðbundinni liþíum­ jóna (lithium­Ion) rafhlöðu og fastkjarna rafhlöðu liggur í raflausninni. Með því að nota fast efni fyrir raflausnina á milli rafskautsins og bakskautsins í stað seigfljótandi efnis, geta rafhlöðu­ framleiðendur aukið orkuþéttleika og þar af leiðandi aksturssvið eða langdrægni. Þeir geta einnig dregið úr hlutfallslegri þyngd miðað við liþíum­jóna rafhlöðunnar. Í liþíum­ jóna raf hlöðum með seigfljótandi raflausn myndast mikill núningur og hiti sem getur verið mikið vandamál og leitt til sjálfsíkveikju. Því hraðar sem hlaða á slíkar rafhlöður því meiri verða vandamál vegna hita. Slíku er ekki til að dreifa í fastkjarna rafhlöðum sem hægt er að hlaða mun hraðar en rafhlöður með fljótandi raflausn og þær hafa meiri orkuþéttni. Þá eru fastkjarna rafhlöður sagðar einfaldari í framleiðslu, auk þess sem þær hafa mun lengri endingu sem dugar þá vel eðlilegan endingartíma bílsins. Margvíslegt samstarf í gangi DongFeng er einn af „stóru fjórum“ bílaframleiðendunum í Kína ásamt SAIC, Changan og FAW. Þá er Dongfeng einnig þekkt á Vestur­ löndum fyrir sameiginlegt verkefni sitt með Nissan undir Dongfeng Nissan nafninu. Þá er það einnig í sameiginlegum rekstri með Renault, Honda og Peugeot­Citroën. Aðrir bílaframleiðendur sem taka þátt í samstarfi við að koma fastkjarna rafhlöðum í notkun fyrir rafbíla eru Mercedes­Benz, sem í desember gekk til liðs við Facttorial Energy, BMW/Ford í samstarfi við Solid Power og Volkswagen sem er í samstarfi við rafhlöðufyrirtækið QuantumScape. Ártatuga glíma Vísindamenn hafa í áratugi reynt að finna leiðir til að framleiða fastkjarna rafhlöður sem duga fyrir farartæki. Talað hefur verið um að það sé eins og að finna hinn heilaga gral fyrir þann framleiðanda sem tekst að koma með bestu lausnina í framleiðslu á fatskjarna rafhlöðum. Nokkur fyrirtæki hafa sagst vera komin með lausnir sem komnar séu á framleiðslustig. Toyota kynnti t.d. í janúar síðastliðnum að fyrirtækið yrði komið með fastkjarna rafhlöður á markað árið 2025 og þá til að byrja með í tvinnbílum og líklega af gerðinni Prius. Kínverska risafyrirtækið CATL, sem er stærsti rafhlöðuframleiðandi heims, hefur verið með hálf­ fastkjarna rafhlöðu (semi­solid state) í undirbúningi sem á að geta skilað bíl eins og NIO um 1.000 kílómetra á einni hleðslu. Í þessari rafhlöðu, sem á að skila 150 kílówattstundum (kWst) af orku, er nikkel lykilefni. Bílaframleiðandinn NIO hafði áður tilkynnt að bíllinn kæmi á markað í lok þessa árs en óljóst virðist vera um samninga við CATL. Hálf­fastkjarna rafhlöðurnar frá CATL eiga líka að koma í stað LFP rafhlaða í Tesla sem vandræði hafa verið með í kulda. Forráðamenn CATL eru þó ekki ánægðir með hvað þróun á hreinum fastkjarna rafhlöðum hefur gengið hægt. Ekki er gert ráð fyrir að þau verði komin í gagnið svo neinu nemi fyrr en 2025 og að einungis 1% rafbíla verði búnir fatskjarna rafhlöðum árið 2030. Í millitíðinni verður stuðst við framleiðslu á hálf­ fastkjarna rafhlöðum, eða „semi­ solid state“ rafhlöðum. /HKr. Husqvarna K7000 Ring Sögunardýpt 32,5 cm Husqvarna K3600 Vökvasög Sögunardýpt 27 cm Husqvarna K970 Sögunardýpt 15,5 cm Husqvarna K7000 Pre Cut Sögunardýpt 14,5 cm 2021. Tímamót í hönnun á rafhlöðum í bíla: Dongfeng Motor í Kína kynnir 50 bíla til sýnikennslu með „fastkjarna“ rafhlöðum Fyrstu DongFeng Aeolus E70 rafbílarnir sem eru búnir fastkjarna (solid-state) rafhlöðum. Mynd / DongFeng Bílaframleiðendurnir Renault, Nissan og Mitsubishi vinna í sameiningu að hönnun á fastkjarna rafhlöðum (Solid-state) og vonast til að geta verið komnir með tilbúna lausn á árinu 2025. Hálf-fastkjarnarafhlaðan (semi-solid state) frá kínverska iðnaðarrisanum CATL er í undirbúningi og á að geta skilað nýjum bíl frá bílaframleiðandanum NIO í Sjanghæ um 1.000 kílómetra akstri á einni hleðslu. Reykjavík Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is Akureyri Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 Lely Center Ísland Grammer sæti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.