Bændablaðið - 07.04.2022, Blaðsíða 16
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. apríl 202216
Úrval vorlauka er gott þessa
dagana og verðið niðursett.
Fyrir okkur sem erum nýjunga
gjörn er upplagt að prófa lauka
eins og Ixia, Barbiana stricta,
Tigridia pavonia eða Sparaxis.
Ixia - kornlilja Heitið kornlilja
á Ixia laukum er í samræmi við
enska heitið cornlily. Nóg er
að setja laukana niður um 8 til
13 sentímetra og hæfilegt bil á
milli þeirra er um 8 sentímetrar.
Blöðin eru lensulaga en blómin
líkjast stjörnu og eru til í
mörgum litum. Kornliljur kjósa
frjósaman og vel framræstan
og samblandaðan jarðveg.
Laukarnir eru upprunnir í
Suður-Afríku og skammlífir
fjölæringar sem ekki þola frost
og því einærir utandyra hér á
landi. Ættkvíslarheitið Ixia er
upprunnið úr forngrísku og
nafn á fugli.
Barbiana stricta – bavíanablóm
Einkímblöðungur sem kallast
baboom flower eða blue freesia
á ensku og gæti því allt eins
heitið bavíanablóm eða blá
fresía. Tegundin er upprunnin
á suðurhluta Suður-Afríku og
nær 10 til 13 sentímetra hæð í
heimkynnum sínum. Blöðin
lensulaga, 4 til 12 sentímetrar
að lengd, hærð og með áberandi
blaðæðum. Laukar bavíanablóma
þola ekki að frjósa og settir
niður á vorin og forræktaðir
innandyra. Til er fjöldi yrkja
og ræktunarafbrigða sem flest
bera blá, bláleit eða bleik blóm
sem eru um sex sentímetrar að
þvermáli og yfirleitt sex eða
fleiri á hverjum blómstöngli.
Blómin, sem standa í þrjár til
fjórar vikur, gefa af sér daufan
sítruskeim. Ættkvíslarheitið
Barbiana er upprunnið úr
hollensku, baviaantje, sem þýðir
litli bavíani, og vísar til þess að
bavíanar grafa upp laukana og
borða þá. Tegundarheitið stricta
þýðir að plantan sé upprétt.
Sparaxis – riflilja Riflilja, eins
og ættkvíslin Sparaxis kallast
á íslensku, eru einkímblaða og
fjölærar laukjurtir en einærar
utandyra hér á landi þar
sem þær þola ekki að frjósa.
Í heimkynnum sínum vex
plantan í leirkenndum jarð-
vegi en sem sumarblóm hér
á landi dafnar hún ágætlega
í hefðbundinni pottamold.
Allar tegundir innan ætt-
kvísl arinnar eru upprunnar
í Suður-Afríku og vaxa þar
villtar. Blöðin lensulaga,
blóm stöngull 15 til 60 cm hár
eftir tegundum, ber eitt blóm
með sex krónublöðum sem
eru kremhvít yfir í hvít að
lit. Latínuheitið Sparaxis er
komið úr grísku, sparasso,
sem þýðir að rífa og vísar til
blómlögunarinnar.
Tigrida pavonia - tígrisblóm
Hitakærar laukplöntur sem þola
ekki frost og þurfa sólríkan
vaxtarstað og vel framræsta
jörð. Tegundin er upprunnin
í Mið-Ameríku og finnst villt
í Mexíkó, Ekvador og Perú.
Laufið lensulaga. Hver laukur
ber einn blómstöngul sem
nær 45 til 60 sentímetra hæð
og blómin, sem eru nokkur á
hverjum stilk, eru með þremur
krónublöðum og geta orðið 7
til 13 sentímetrar að þvermáli.
Til í mörgum litum. Laukarnir
ætir og voru hafðir til matar af
frumbyggjum í Mexíkó og þykja
bestir léttsteiktir eða grillaðir.
/VH
STEKKUR
Ískóð er merkilegur fiskur. Þetta
er hánorræn þorskfiskategund
sem hefur aðlagast sjávarkulda og
er með frostvörn í blóðinu. Stöku
fiskar slæðast til Íslands, að öllum
líkindum frá AusturGrænlandi,
en mjög hefur dregið úr því hin
seinni ár.
Ískóð, öðru nafni pólþorskur,
er smávaxin þorskfiskategund
sem útbreidd er umhverfis
Norðurheimskautið. Það er jafnframt
sú fisktegund sem hefur veiðst hvað
nyrst í Norður-Íshafinu og sennilega
algengasta fisktegundin þar. Ískóð er
ein af örfáum hánorrænum (e. high
arctic) fisktegundum sem finnast við
Ísland. Hánorrænar tegundir halda sig
aðallega á nyrstu svæðum jarðar, t.d.
í Íshafinu og þar rétt fyrir sunnan.
Lengi vel var þekking á
líffræði og útbreiðslu ískóðs við
Ísland mjög takmörkuð. Ólafur
S. Ástþórsson, fiskifræðingur
og fyrrum aðstoðarforstjóri Haf-
rannsóknastofnunar, hefur rannsakað
ískóð við Ísland og ritað um það
meðal annars ítarlega grein í
Náttúrufræðinginn. Byggði hann
rannsóknir sínar á gögnum um
ískóð sem fengust annars vegar í
stofnmælingum botnfiska í árlegu
vorralli Hafrannsóknastofnunar á
árunum 1985 til 2013 og hins vegar
í seiðaleiðöngrum sem farnir voru á
árunum 1974 til 2003.
Hér verður byggt á grein Ólafs í
Náttúrufræðingnum svo og umfjöllun
um málið í Fiskifréttum þegar Ólafur
kynnti niðurstöður sínar.
Hrygnir um hávetur
Ískóð er talsvert útbreitt á
norðurhveli jarðar. Sunnan Ís-
hafsins Atlantshafsmegin nær
meginútbreiðslusvæði ískóðs
suður til Noregs, inn í Hvítahaf og
í Barentshaf, umhverfis Svalbarða,
að norðurströnd Íslands og fyrir
suðurodda Grænlands.
Lífshættir eru best rannsakaðir
í Barentshafi. Ískóð verður að
hámarki um 45 sentímetrar á lengd.
Það lifir innan um ís og ískrapa.
Hámarksaldur er 6 til 7 ár. Ískóðið
lifir á svifi og er talið afar mikilvæg
fæða fyrir spendýr og sjófugla í
vistkerfi norðurslóða. Ískóð hrygnir
við ísröndina um hávetur, í nóvember
til mars. Tvö meginhrygningarsvæði
eru þekkt þar norður frá, þ.e. við
Svalbarða og suður af Novaja
Zemlya í rússnesku lögsögunni.
Með frostvörn í blóðinu
Ískóðið hefur magnaða eiginleika
til að lifa af við erfið skilyrði. Það
er með frostvarnarprótín (AFP) í
blóðinu. Þetta prótín er ríkt í blóði
ýmissa fiska sem lifa í Norður- og
Suður-Íshafi. Prótínið binst við
ískristalla sem kunna að myndast í
blóði og kemur í veg fyrir að þeir
vaxi enn frekar. Ískóð er harðgert
og getur þolað sjávarkulda allt niður
að frostmarki sjávar (–1,8°C). Þetta
fyrirbæri var uppgötvað árið 1960
og hafa frostvarnarprótín verið nýtt í
læknavísindum til að varðveita líffæri
undir frostmarki.
Samfara virkni frostvarnar-
prótínsins fara í gang ýmsir ferlar
innan fruma ískóðsins til þess að
tryggja vökvajafnvægi sem hjálpar
því til að lifa af.
Mest veitt um 350 þúsund tonn
Veiðar á ískóði í Barentshafi
voru töluverðar um og eftir 1970.
Veiðarnar fóru hæst í 350 þúsund
tonn á ári en duttu síðan snögglega
niður um miðjan áttunda áratuginn.
Eftir það hafa veiðarnar verið um 20
til 30 þúsund tonn á ári. Norðmenn
veiddu ískóðið þegar aflinn var sem
mestur en Rússar eru núna eina
þjóðin sem stundar þessar veiðar.
Stofn ískóðs í Barentshafi náði
hámarki fyrir 15 til 20 árum og fór
mest í tæplega 2,5 milljónir tonna.
Stofninn hefur verið í lægð síðustu
ár og útbreiðslan hliðrast til austurs
og norðurs. Vísindamenn velta
því fyrir sér hvort það tengist ekki
veðurfarsbreytingum, þ.e. hlýnun
sjávar og minni hafís í Barentshafi.
Aðallega norðvestur af Íslandi
Suðurmörk fyrir útbreiðslu ískóðs
eru norður af Íslandi. Útbreiðslan er
aðallega á landgrunninu norðvestur
af landinu. Í vorrallinu veiðast ískóð
á togstöðvum frá svæðinu norður af
Vestfjörðum, norður fyrir landið og
þegar mikið fæst af því teygir það
sig suður að miðjum Austfjörðum.
Mjög er misjafnt eftir árum hvað
fæst af ískóði. Sum ár slæðist það
í veiðarfærin í rallinu á mörgum
togstöðvum á öllu útbreiðslusvæðinu
en í rýrum árum veiðist það aðeins á
örfáum stöðvum.
Þegar best lætur hafa fengist 250
stykki af ískóði í vorralli en fjöldinn
fer niður í 10 stykki í rýrum árum.
Á síðustu árum hefur dregið mjög úr
því að ískóð finnist hér.
Samtals fengust 2.376 ískóð í
stofnmælingarleiðöngrum í 823
(5%) af þeim 16.339 togum sem
tekin voru með botnvörpu á 29 ára
rannsóknartímabili.
Mest í köldum sjó
Veiðistaðir ískóðs við Ísland voru
kannaðir með hliðsjón af hitastigi
sjávar og dýpi. Eins og við er að
búast veiðist það í mjög köldum
sjó og mest í kringum 200 til 350
metra dýpi.
Fleiri þættir en hiti og dýpi geta
ráðið því hversu mikið af ískóði
berst hingað. Hugsanlega skiptir
sjógerð máli sem og fleiri eiginleikar
í umhverfinu, svo sem fæða og afrán,
sem gætu átt þátt í því að þjappa
fiskinum saman eða hafa áhrif
á hann. Ískóð í rallinu eru um
15 sentímetrar að meðallengd
og aldursbilið 2 til 6 ár. Flestir
fiskanna eru þó á aldrinum 3 til 4
ára. Lengsta ískóðið sem veiðst hefur
á Íslandmiðum sem vitað er um
var 33 sentímetrar og fékkst
vestan Kolbeinseyjar í mars 1995,
samkvæmt bókinni Íslenskir fiskar.
Flest seiði við Austur-Grænland
Í seiðaleiðöngrum á sínum tíma var
bæði farið um íslensku lögsöguna
og inn á landgrunnið við Austur-
Grænland. Ískóð fékkst í þessum
leiðöngrum í takmörkuðum mæli og
sum árin fengust engin ískóð. Mestur
fjöldinn var við Austur-Grænland en
þá fengust 55 ískóð í holi. Í aðeins
örfá skipti fengust ískóðaseiði á
landgrunninu norður af Íslandi.
Hugsanlega að hverfa úr fánunni
Helstu niðurstöður í rannsóknum
Ólafs eru þær að ískóð á Íslands-
miðum er aðallega bundið við
norðvesturhluta landgrunnsins.
Ungviði ískóðs finnast nær eingöngu
á austurgrænlenska landgrunninu.
Auk tiltækra upplýsinga frá nálægum
hafsvæðum bendir útbreiðslan til
þess að ískóð við Ísland sé upprunnið
í hrygningarstöðvum við Austur-
Grænland.
Útbreiðsla og fjöldi ískóða við
Ísland hefur minnkað samfara
hlýnun sjávar og haldi þessi þróun
áfram og hafísinn hopi muni ískóðið
hugsanlega hverfa úr fánunni
við Ísland.
NYTJAR HAFSINS
Kjartan Stefánsson
kjartanst@simnet.is
Vorlaukar fyrir
nýjungagjarna
Ískóð er heimskautafiskur sem slæðist stundum til Íslands:
Fiskur með frostlög í blóðinu
Ískóð í krapasjó í Norður-Íshafi.
Meginútbreiðslusvæði ískóðs. Skýringmynd sem birt var í Fiskifréttum þegar
fjallað var um rannsóknir á ískóði við Ísland á sínum tíma.
0,0%
5,0%
10,0%
15,0%
20,0%
25,0%
30,0%
35,0%
40,0%
45,0%
50,0%
Bændablaðið Fréttablaðið Morgunblaðið Stundin DV Viðskiptablaðið Mannlíf
20
15
4
5,
0%
20
16
4
3,
8%
20
17
4
3,
1%
20
18
4
5,
6%
20
19
4
1,
9%
20
14
3
3,
9%
20
16
28
,6
%
20
17
27
,3
%
20
18
2
4,
6%
20
19
2
1,
9%
20
14
2
7,
8%
20
15
2
6,
0%
20
16
2
5,
3%
20
17
2
2,
1%
20
18
2
2,
1%
20
19
1
9,
7%
20
19
5
,8
%
20
15
7
,0
%
20
16
1
0,
8%
20
17
1
1,
2%
20
18
1
0,
8%
20
19
9
,1
%
20
14
5
,7
%
20
15
1
0,
0%
20
16
7
,3
%
20
17
8
,0
%
20
18
5
,1
%
20
19
5
,2
%
20
19
2
,2
%
Meðallestur prentmiðla á landsbyggðinni
Þróun lestrar á fjórða ársfjórðungi síðastliðin átta ár, 2014 -2021, samkvæmt prentmiðlamælingum Gallup
Súlurnar sýna þau ár frá 2014 sem viðkomandi miðlar hafa tekið þátt í könnunum Gallup
Meðallestur í aldurshópi 12 - 80 ára
20
20
3
6,
2%
20
21
4
2,
1%
20
20
1
9,
7%
20
21
1
6,
1%
20
21
1
4,
5%
20
21
6
,8
%
20
14
11
,3
%
20
20
2
,8
%
20
21
3
,4
%
20
14
4
3,
3%
20
15
3
1,
0%
20
18
9
,1
%
20
14
1
7,
0%
20
17
9
,4
%
Kemur næst út
28. apríl
Gleðilega
páska!