Bændablaðið - 07.04.2022, Blaðsíða 42
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. apríl 202242
LÍFRÆNN LANDBÚNAÐUR
Skýrsla Íslandsdeildar Evrópuhóps IFOAM:
Markmið ESB að fyrir 2030 verði 25%
landbúnaðarlands lífrænt vottað
Í nýlegri skýrslu dr. Ólafs R.
Dýrmundssonar, vegna starfa
í Evrópuhópi lífrænna land
bún aðar hreyfinga árin 2020 og
2021, er að finna áhugaverðar
upplýsingar um starf hópsins og
það sem efst er á baugi í starfi
hans.
Þar segir meðal annars að á
meðal markmiða ESB sé að fyrir
2030 verði að minnsta kosti 25%
landbúnaðarlands í aðildarríkjunum
vottað lífrænt og stórlega verði
dregið úr notkun eiturefna og
tilbúins áburðar.
Í skýrslunni segir að frá og með 1.
janúar 2020 hafi heiti Evrópuhópsins
breyst úr IFOAM EU Group í
IFOAM Organics Europe og að
vegna Covid-19 hafi samskiptin
við starfsfólk og stjórn hópsins
undanfarin tvö ár farið að mestu
fram með tölvupósti og fjarfundum.
Mál til umræðu og skoðunar
Ólafur bendir í skýrslunni á dæmi
um mál sem hafa verið til umræðu
og skoðunar innan hópsins. Þar á
meðal má nefna nýja tækni til að
greina erfðabreytt efni, áskorun
til ESB að virða niðurstöður
Evrópudómstólsins frá 2018 um
eftirlit með seinni tíma tækni til
erfðabreytinga á plöntum.
Einnig hefur verið greint
frá rannsóknum á beit sauðfjár
á beitilyngi til varnar gegn
sníkjudýrum í meltingarfærum
sauðfjár en rannsóknir hafa sýnt að
lífvirk efni í sumum plöntum, svo
sem tannin, virka sem eins konar
náttúruleg ormalyf.
Mikið er af þessu efni í beitilyngi
og getur því beit á það stuðlað að
bættu heilsufari í sauðfé og jafnvel
öðru búfé í lífrænum búskap. Víða
er beitilyng í úthaga hér á landi
og samstarf um þessar rannsóknir
nefnist RELACS og styrkir ESB það
undir hatti HORIZON 2020
nýsköpunaráætlunarinnar.
25% ræktunarlands
verði vottað lífrænt
Landbúnaðarstefna ESB,
sem var staðfest 23.
nóvember 2021, felur í
sér markviss stefnumið
um eflingu lífrænna
búskaparhátta. Á meðal
markmiða ESB er að
fyrir 2030 verði a.m.k.
25% landbúnaðarlands
í aðildarríkjunum vottað
lífrænt og stórlega
verði dregið úr notkun eiturefna og
tilbúins áburðar. Litið verði á eflingu
lífræns landbúnaðar sem eina þeirra
lausna sem séu vænlegar til að
takast á við hnignun líffræðilegrar
fjölbreytni og loftslagskreppu
en stuðla þó um leið að
fæðuöryggi. Skulu aðildarríkin
koma á fót aðgerðaáætlunum til að
framfylgja þessari stefnu. Það hafa
þau flest gert en orðum þurfa að
fylgja efndir og eru dæmi þess, t.d.
í Hollandi, að nú séu
engin ljós markmið
og ekki gert ráð
fyrir áframhaldandi
stuðningi til aðlögunar
og viðhalds lífrænum
búskap. Aftur á móti
standa t.d. Svíþjóð og
Danmörk sig mjög vel.
Hnignun
líffræðilegrar
fjölbreytni
Lífræna hreyfingin, og
þar með Evrópuhópurinn, hefur um
langt árabil vakið athygli á jákvæðu
framlagi lífrænna búskaparhátta
til þess að stöðva hnignun
líffræðilegrar fjölbreytni og eyðingu
erfðaefnis sem m.a. tengist efna- og
lyfjavæddum landbúnaði.
Forræktaðar fræplöntur
Nær undantekningarlaust mun nýja
ESB-reglugerðin, sem tók gildi
1. janúar 2022, herða ákvæði um
viðurkennda og vottaða lífræna
framleiðsluhætti. Þó er þar að
finna hugsanlega tilslökun sem
Evrópuhópurinn telur óþarfa en hún
varðar ungar fræplöntur, forræktaðar
í gróðurhúsum. Nú er staðan þannig
að aðeins gróðrarstöðvar með lífræna
vottun geta fengið undanþágu til að
framleiða slíkar forræktaðar plöntur
af fræi sem ekki hefur lífræna
vottun. Mælt er gegn því að ungar,
forræktaðar fræplöntur, ræktaðar
með öðrum hætti (non-organic),
verði notaðar í lífrænni framleiðslu.
Vinnuhópur um velferð búfjár
Nýlega stofnaði Evrópuhópurinn
sérstakan nýjan vinnuhóp til að
fjalla um velferð búfjár. Á hann að
huga sérstaklega að reglum ESB um
velferðarmerkingar á búfjárafurðum
og bera saman við þær kröfur sem
lífræn vottun gerir um þessi efni.
Þar með verður forgangsröðun
mælikvarða skoðuð og mismunandi
reglur bornar saman.
Mengun af völdum
plöntuvarnarefna sem berast yfir
á lífrænt vottað akurlendi
Hér er um að ræða verulegt vandamál,
einkum í þéttbýlli löndum, sem bæði
Evrópuhópurinn og Bændahópurinn
láta sig mjög varða. Sum þessara
eiturefna eru að berast með vindi við
úðun yfir á lífrænt ræktað akurlendi,
t.d. illgresiseyðir, en slík mengun
getur leitt til þess að viðkomandi
bóndi missi lífrænu vottunina.
Reglur um notkun búfjáráburðar
fyrir lífræna ræktun
Ólafur segir í skýrslunni að að
sínu mati sé þetta mikilvægasti
þátturinn í aðlögun að lífrænum
búskaparháttum, ekki síst vegna
þess hve belgjurtarækt er miklum
annmörkum háð hér á landi. Hann
segist hafa orðið þess áskynja að
túlkun vottunarstofa á grunnreglum
ESB, einkum um notkun á
búfjáráburði og öðrum lífrænum
áburðarefnum, hafi verið og sé enn
nokkuð mismunandi.
„Það er að sjálfsögðu óviðunandi
að mismunandi reglur um þessi
efni gildi í hinum ýmsu Evrópu-
löndum því að þær geta skekkt
samkeppnisstöðuna, nokkuð sem
stangast á við veigamikinn þátt í
löggjöf ESB.“
Reglur um notkun lífræns
úrgangs fyrir lífræna ræktun
Að sögn Ólafs er hér um veigamikið
mál að ræða og vekur athygli á
eftirtöldum meginákvæðum.
• Nota má hráefni sem fengin eru
úr flokkuðum heimilisúrgangi
eftir að þau hafa farið í
gegnum jarðgerð í safnhaugi
eða loftfirrta gerjun við
lífgasframleiðslu.
• Aðeins er heimilt að nota
lífrænan heimilisúrgang sem
inniheldur afurðir plantna
og dýra.
• Aðeins er heimilt að nota
úrgang sem hefur farið í gegnum
afmarkað söfnunarkerfi
undir eftirliti samkvæmt
viðurkenndum reglum í
viðkomandi landi.
• Leyfilegur hámarksstyrkur
eftirtalinna efna skal vera
mældur í mg./kg. þurrefnis:
kadmíum 0.7, kopar 70, nikkel
25, blý 45, zink 200, kvikasilfur
0.4, króm (samtals) 70 og króm
(VI), ekki greinanlegt.
Á þessu sést að notkun lífræns
heimilisúrgangs er heimil innan
ákveðins ramma, eftir viðeigandi
meðferð og efnagreiningu tekinna
sýna, sem vottunarstofa þarf að fá frá
viðkomandi búi. Þetta gæti vissulega
skipt máli fyrir framgang lífrænnar
ræktunar hér á landi.
Nánari upplýsingar fást hjá Ólafi,
oldyrm@gmail.com. /VH
Greint er frá rannsóknum á beit sauðfjár á beitilyngi til varnar gegn sníkjudýrum í meltingarfærum þess.
Á meðal markmiða ESB er að fyrir 2030 verði a.m.k. 25% landbúnaðarlands
í aðildarríkjunum vottað lífrænt og stórlega verði dregið úr notkun eiturefna
og tilbúins áburðar.
Dr. Ólafur R. Dýrmundsson.
Nær undantekningarlaust mun nýja ESB-reglugerðin, sem tók gildi 1. janúar 2022, herða ákvæði um viðurkennda
og vottaða lífræna framleiðsluhætti.
Lífræna hreyfingin, og þar með
Evrópuhópurinn, hefur um langt
árabil vakið athygli á jákvæðu
framlagi lífrænna búskaparhátta
til þess að stöðva hnignun líf-
fræðilegrar fjölbreytni.