Bændablaðið - 07.04.2022, Blaðsíða 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. apríl 2022 45
Sjá nánar á
landstolpi.is
SÁÐVÖRULISTINN
2022
Nýr samningur um framkvæmd
markaðsverkefnisins Horses
of Iceland var undirritaður í
matvælaráðuneytinu þann 25.
mars síðastliðinn.
Samkvæmt samningnum
mun ráðuneytið verja allt að 25
milljónum á ári næstu fjögur árin til
þess að styðja við markaðssetningu á
íslenska hestinum og hestatengdum
vörum gegn jafnháu mótframlagi
samstarfsaðila úr atvinnugreininni
sem nú er leitað að en stofnaðilar
að verkefninu eru Deild hrossa
bænda BÍ, Landssamband hesta
mannafélaga og Félag tamninga
manna.
„Fyrsta stóra verkefnið á
þessu nýja samningstímabili er
að taka þátt og kynna íslenska
hestinn í Þýskalandi á Equitana,
stærstu hestasýningu í Evrópu, nú
í apríl. Þar er Horses of Iceland
með bás í samstarfi við íslenska
hestasamfélagið í Þýskalandi. Á
lokadegi sýningarinnar verður Ísland
í brennidepli og m.a. verður keppt
í mismunandi greinum íslenskra
hestaíþrótta og kynnir útskýrir bæði
gangtegundir og keppnisformið,“
segir Jelena Ohm, verkefnastjóri hjá
Íslandsstofu.
Meðal verkefna sem innt verða
af hendi næstu misseri séu ný
vefsíða fyrir Horses of Iceland, nýtt
útflutningsmyndband, samstarf við
Landsmót hestamanna í sumar og
þátttaka í fleiri sýningum erlendis.
Markaðsverkefnið hefur staðið
frá árinu 2016. Samkvæmt Jelenu
hefur tekist vel að markaðssetja
íslenska hestinn undir merkjum
þess. Fulltrúar ráðuneyta, fyrr
nefndra stofnaðila, Samtaka
ferðaþjónustunnar og útflytjendur
hrossa koma að stjórn verkefnisins.
„Þessi sameiginlegi vettvangur
og samræmdu skilaboð auka
slagkraft markaðssetningarinnar
bæði innanlands og erlendis.
Ávinningurinn er metinn tífaldur
á við það fjármagn sem lagt hefur
verið til verkefnisins,“ segir Jelena.
/ghp
Jelena Ohm, verkefnastjóri hjá
Íslandsstofu.
Samræmd skilaboð auka slagkraft markaðssetningar á íslenska hestinum
að sögn Jelenu. Mynd / Christiane Slawik
Markaðsverkefnið Horses of Iceland fjármagnað:
Tífaldur ávinningur