Bændablaðið - 07.04.2022, Blaðsíða 47
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. apríl 2022 47
Víkurhvarfi 8, Kópavogur
Sími 544 4656 - www.mhg.is
EZ-GO RXV ELiTE Golfbílar
Endingargóð og viðhaldsfrí Elite Lithium
rafhlaða með 8 ára ábyrgð
Til á lager
sem hluta af menningarsögulegum
arfi íslensku þjóðarinnar
Félag íslenskra landslags
arkitekta, FÍLA, hefur um árabil
staðið að upplýsingaöflun um sögu
og verndun garða og opinna svæða
á Íslandi.
Styrkur úr Fornminjasjóði gerði
kleift að taka saman greinargerð og
halda málþing vorið 2019 þar sem
kynnt var greinargerð um þessar
„lifandi minjar“. Greinargerðin
ásamt tillögum að friðun má finna
á vef Minjastofnunar.
Við skráningu gamalla garða þarf
að spyrja eftirfarandi spurninga:
• Af hverju?
• Hvað?
• Hvernig?
1. Hvað er gamall garður?
Hvað eru lifandi minjar og hvað
er fastur búnaður í görðum? Hvað
mótar garðinn? Hönnun garða og
mótun lands er samspil menningar
og náttúru. Aðstæður á Íslandi eru um
margt öðruvísi en hjá nágrannaþjóðum
okkar. Engu að síður eru erlend áhrif
greinileg.
Hver er aldur garða? Við hvað
er miðað? Garðar lúta ekki sömu
lögmálum og byggingar hvað
byggingaeftirlit varðar. Mótun lands
og garðs er langt ferli og gróðurinn er
síbreytilegur með afmarkaðan líftíma.
Einkenni garðsögunnar allt frá 19. öld
og til ársins í dag eru hluti af okkar
menningarsögu.
2. Hvernig er lagaramminn?
Lagarammi vegna friðlýsingar
gamalla garða er til staðar. Lög um
menningarminjar nr. 80/2012 nýtist vel
við friðun og varðveislu lifandi minja
með nokkrum breytingum. Samkvæmt
lögunum er talað um mismunandi vernd
minja. „Friðun felur í sér sjálfkrafa
verndun fornminja, húsa og mannvirkja
á grundvelli aldurs þeirra.“ Miðast þá
við 100 ár. „Friðlýsing fornleifa, húsa
og mannvirkja getur falið í sér kvöð
sem þinglýst er á fasteign og hefur þann
tilgang að tryggja sem best varðveislu
menningarminja.“ Í samantekt FÍLA, er
bent á nauðsynlegar breyting á „Lögum
um menningarminjar nr. 80/2012“.
Frh. á næstu síðu
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
ALLAR STÆRÐIR
AF CAT RAFSTÖÐVUM
Gerðu kröfur - hafðu samband við Karl
í síma 590 5125 og kynntu þér þína möguleika.
Stöðvar í gám
5. Lystigarður Akureyrar, elsti hlutinn 1912
Lystigarður Akureyrar er á svonefndri suðurbrekku sunnan við
aðalbyggingu Menntaskólans á Akureyri. Gerð hans hófst árið 1909
og var hann byggður í áföngum. Garðurinn er afrek akureyskra kvenna
sem voru í fararbroddi um mótun hans frá fyrstu tíð. Framfarahugur
aldamótaáranna endurspeglast í gerð hans.
6. Hellisgerði í Hafnarfirði 1922
Hellisgerði hefur fágætisgildi á heimsvísu sem almenningsgarður á
norðlægum slóðum sem vaxinn er upp úr fjölbreyttu hraunlagslagi sem
er helsta sérkenni bæjarstæðis Hafnarfjarðar. Botninn í garðinum er mjög
mishæðóttur með djúpum hraunbollum og háum hólum. Garðurinn var
frá fyrstu tíð mótaður eftir sérkennum landsins.
7. Skallagrímsgarður
í Borgarnesi 1930
Skallagrímsgarður hefur sett svip á
miðbæ Borgarness frá því um 1930.
Garðurinn er eitt af kennileitum
staðarins. Kröftugur trjágróður
umlykur grasflatir sem halla til norðurs
í átt til sjávar. Göngustígar liggja með
jöðrum garðsins umhverfis grasflatir
undir miklu laufþaki hávaxinna trjáa.
Upphaflega samstarf kvenfélags og
ungmennafélags.
8. Hallargarðurinn
við Fríkirkjuveg 1954
Hallargarðurinn við Fríkirkjuveg í
Reykjavík er fyrsti almenningsgarður á
Íslandi sem skipulagður er í anda módernisma eftirstríðsáranna þar sem
áherslan er á ávalar línur og lífræn náttúruform. Garðurinn var fyrsta
stóra verkefni Jóns H. Björnssonar, fyrsta íslenska landslagsarkitektsins.
Frh. á næstu síðu
Mynd / Minjasafnið á Akureyri
Mynd / Sveinn Þormóðsson
Mynd / Friðrik Þorvaldsson
Mynd /S. Vignir